Morgunblaðið - 22.04.2007, Qupperneq 68
68 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Kalvin & Hobbes
ENN EIN YNDISLEG
SÓLARUPPRÁS OG EKKI
SÁLU AÐ SJÁ
SVO KEMUR MAÐUR
HEIM MEÐ FISK FYRIR
KLUKKAN NÍU. DAGURINN ER
VARLA BYRJAÐUR
SUNDSPRETTUR Í
MORGUNSÁRIÐ OG SVO
BÁTSFERÐ
ÉG HEF SÉÐ HRESSARA
FÓLK Í VINNUNNI
ÞÚ GETUR
BORÐAÐ
ÞETTA
SJÁLFUR
ÉG VIL FÁ
SJÓNVARP!
Kalvin & Hobbes
PABBI SJÁÐU,
ÉG VEIDDI FISK
JÁ, HANN ER
GLÆSILEGUR. ÉG
SKAL KENNA
ÞÉR AÐ
HREINSA HANN
GERA
HVAÐ?
FLÁ HANN
OG BEIN-
HREINSA
TAKK FYRIR ÞESSAR
OSTASAMLOKUR. ÞÆR ERU
VONANDI ALVEG BEINLAUSAR
Kalvin & Hobbes
MÉR SÝNIST ÉG SJÁ
HVAL ÞARNA Í DJÚPINU!
ÞETTA
ER STEINN!
SJÁÐU,
ÞARNA
ER RISA
STÓR ÁLL!
ÞETTA
ER ÞANG!
ÓTRÚLEGT,
ÞARNA ER
MASTUR AF
LÖNGU SOKKNU
SPÆNSKU
HERSKIPI!
ÞETTA
ER GREIN!
ÞETTA ER
ÖMURLEGT! AF
HVERJU ERU
ENGIN BÍÓ
HÉRNA!
Litli Svalur
© DUPUIS
ANSANS... KOMDU
ÞÉR ÞAÐAN NIÐUR
KRAKKAORMUR!
HVAÐ ERTU
EIGINLEGA
AÐ REYNA
AÐ GERA?
JA... ÉG ER AÐ LEITA
AÐ SLÖKKVARANUM
TIL ÞESS AÐ
SLÖKKVA... SLÖKKVA!
ER EKKI Í LAGI MEÐ
ÞIG? ÞETTA ER
HÁSPENNULÍNA!
BURT MEÐ ÞIG SPELLVIRKI!
ANNARS HRINGI ÉG Í
FORELDRA ÞÍNA, KRAKKI...
HLAUPTU
BURT!
FLJÓTUR!
ÉG GAT
ÞAÐ EKKI
KENNARI.
MÉR VAR
BANNAÐ AÐ
REYNA
Í DAG:
AÐ KUNNA
AÐ VEIÐA
dagbók|velvakandi
B&L, takk fyrir mig
ÉG vil láta vita af því sem vel er
gert. Þannig er mál með vexti að ég
keypti bíl hjá B&L fyrir rúmu ári.
Því miður fór fljótlega að bera á bil-
un í sjálfskiptingunni. Ég talaði við
þá hjá B&L og þeir sögðu „ekkert
mál við sjáum um málið þér að
kostnaðarlausu“. Bíllinn varð góður
en tæpu ári seinna kom það sama
upp og nú fauk svolítið í mig. Aftur
tala ég við B&L, viðmælandi sagði
við mig „þetta gengur ekki, við skul-
um sjá um að skipta um skiptingu“.
Það gladdi mig mikið því ég hefði
aldrei getað staðið undir kostnaði
við viðgerðina. Nú segi ég ykkur að
B&L er með frábæra þjónustu.
Takk fyrir mig.
Guðjón Sigurðsson
EES og XF
ÞUNGAMIÐJA deilnanna um aug-
lýsingar og umfjöllun Frjálslyndra,
XF, um innflytjendur er loksins
komin fram, en það er spurningin
hvort við ætlum að segja okkur úr
EES eða ekki, efla eða minnka sjálf-
stæðið. Ef þessi harða innflytj-
endastefna þeirra kæmist til fram-
kvæmda yrðu afleiðingarnar
margvíslegar, sumar til góðs, aðrar
ekki. En þær yrðu eitthvað svipaðar
því að sumu leyti og þegar sjáv-
arútvegsráðherra leyfði hér hval-
veiðar að nýju í atvinnuskyni,
blendnar, erlendis og innanlands.
Auðurinn í þjóðerniskenndinni er
mikill og á grundvelli hans urðu
margar þjóðir það sem þær eru, án
efa, þar af kemur sjálfstraust sem
hjálpar mönnum að berjast við um-
hverfið, í köldu landi ekki hvað síst.
Þau vandamál sem Guðjón Arnar og
fleiri eru að benda á eru hluti af
stærra vandamáli, hnignun Evrópu,
fólksfækkun innan Evrópu meðal
iðnvæddustu ríkjanna þar sem mest
velmegun ríkir, yfirleitt, og hvernig
valdahlutföllin breytast með inn-
flutningi útlendinga, sem fyrst í stað
taka við láglaunastörfunum, en festa
sig svo smám saman betur í sessi
víðast hvar. Það er án efa ágætt en
það er eins og um þetta hafi ekki
verið rætt í samhengi. Þær breyt-
ingar sem hér um ræðir eru stað-
reynd en það er eins og meira sé
rætt um ákveðinn málflutning en
hvar þetta byrjar og hvar þetta end-
ar. Ég efast um að Íslendingar verði
miklir þjóðernissinnar, hvorki með
tilraunum Frjálslyndra né annarra
til að láta svo verða. Þetta mál á sér
þó margar hliðar. Í stað kýtinga er
rétt að líta á okkur, að minnsta kosti
sem hluta af Evrópu, fyrst við erum í
EES, og þar með hluti af þeirra
vandamálum, þótt einangrun okkar
og íhaldssemi hafi kannski firrt okk-
ur hluta þeirra enn.
Ingólfur Sigurðsson,
Furugrund 58, Kópavogi.
Gullarmband tapaðist
GULLARMBAND, rúmlega 1 cm
breitt, tapaðist fyrir páska í mið-
bænum eða í austurbæ. Finnandi
vinsamlega láti vita í síma 587 4026.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
BÆJARBÚAR nýta gjarnan daginn í að ganga Laugaveginn. Kaffihús og
veitingastaðir eru opin og einnig er tilvalið að kíkja í Kolaportið.
Morgunblaðið/Ásdís
Tveir töff
Verið velkomin á fyrirlestraröð
Umhverfisstofnunar
Að þessu sinni heitir fyrirlesturinn:
Fullyrðingar í
merkingum matvæla
Fyrirlesari er: Brynhildur Brim, fagstjóri hjá Umhverfisstofnun
Kynntar verða nýjar evrópureglur um fullyrðingar í merkingum
matvæla (Regulation (EC) No 1924/2006 on nutrition and health
claims made on foods). Reglugerðin tekur gildi í EB 1. júlí 2007,
en ekki er ljóst hvenær hún tekur gildi hér á landi.
Allir velkomnir.
Heitt á könnunni.
þriðjudaginnn 24. apríl 2007 kl. 15.00 - 16.00 á 5. hæð
Umhverfisstofnunar Suðurlandsbraut 24, Reykjavík
VALGERÐUR Sverrisdóttir er
fyrsta konan til að gegna embætti
utanríkisráðherra í sögu íslenska
lýðveldisins og hefur í starfi sínu
lagt sérstaka áherslu á jafnrétt-
ismál. Í erindi á Jafnréttistorgi
fjallar Valgerður vítt og breitt um
jafnrétti og utanríkismál og um
ólíka áherslu kynjanna í hinum
ýmsu málaflokkum. Valgerður hef-
ur tekið virkan þátt í stjórnmálum í
rúma tvo áratugi
og mun í erindi
sínu einnig fjalla
um reynsluheim
kvenna í pólitík
og þær hindranir
sem konur, sem
hyggjast hasla
sér völl í stjórn-
málum, þurfa að
glíma við, bæði
hjá pólitískum
andstæðingum, samherjum og í
samfélaginu. Fyrirlesturinn verður
haldinn mánudaginn 23. apríl kl.
12.00 í stofu L201 á Sólborg við
Norðurslóð á Akureyri og er öllum
opinn.
Ræðir reynslu-
heim kvenna
í pólitík
Valgerður
Sverrisdóttir