Morgunblaðið - 22.04.2007, Qupperneq 73
snúið við upptökuferlið var, að eftir
að Funeral fór í gang, tók við tveggja
og hálfs árs vera á vegum úti. Þannig
að það var ekkert til af lögum þegar
við byrjuðum á Neon Bible. Það var
erfiðast að koma sér í samningar- og
upptökugír aftur og losa sig úr ferða-
lagahamnum.“
– Viðtökurnar sem Funeral fékk
hljóta nú að hafa farið fram úr ykkar
allra björtustu vonum?
„Já, auðvitað. Við gerðum okkur
fyrir það fyrsta engar vonir. Við von-
uðumst þó eftir því að hafa efni á að
túra og geta selt nóg af plötum til að
geta gert aðra plötu (Funeral hefur
nú selst í 500.000 eintökum, þannig
að vonir meðlima rættust svo um
munar).“
– Nú komust þið á forsíðu Time og
hafið verið afar áberandi í fjölmiðla-
umfjöllun. Engu að síður virðist þið
lítt gefin fyrir viðtöl og slíkt. Hvað
segirðu um þessa staðhæfingu mína?
„Amm … ekkert okkar hefur neitt
sérstaklega gaman af því að tala við
fólk sem við þekkjum ekkert (hann
og blaðamaður fara að hlæja, enda að
gera nákvæmlega það sem Kings-
bury er svo illa við). Okkur langar
frekar að vera uppi á sviði, spilandi
og syngjandi, og láta tónlistina tala.
Að veita viðtöl er bara leið til að
koma sveitinni á framfæri. En til að
skilja okkur, þá er best að hlusta,
frekar en að lesa viðtöl.“
– Já, ég er sammála því að það er
eitthvað firrt við það að tveir menn,
sem hafa aldrei talað saman áður,
spjalli saman í korter og með því er
þeim ætlað að ná einhverri „nánd“ …
„Já, nákvæmlega … þetta er sann-
arlega undarlegt samband (ég held
að ísinn hafi verið brotinn með þessu!
Innsk. AET).“
Montreal
– Segðu mér nú Tim. Hvernig
skynjar þú þessa margumræddu
kanadísku senu sem allir eru að tala
um. Er þetta einhver sena … eða
ekki?
„Ja … ég get a.m.k. sagt þér það
Arnar, að fólk er að sönnu farið að
fylgjast betur með því sem er að ger-
ast í dag í kanadískri tónlist. En það
er erfitt að segja ... það hefur alltaf
verið slatti af áhugaverðum böndum
hérna en það er eins og áhugi að utan
sé stöðugt að aukast.“
– Og gróskan er í Vancouver, Tor-
onto og Montreal þaðan sem þið er-
uð. Hefur þú alltaf búið í Montreal?
„Nei, ég flutti hingað frá Toronto
fyrir um sex árum.“
– En af hverju er Montreal svona
gróskumikil tónlistarborg?
„Margir hafa flutt hingað af því að
það er fremur ódýrt að búa hérna.
Borgin hefur verið sem segull á skap-
andi fólk og auk þess er þetta af-
skaplega falleg borg. Hún er nokkuð
evrópsk, gamall arkitektúr og svona
franskur fílingur í gangi. Hún er
mjög sérstök og engin borg í Norður
Ameríku líkist henni.“
– Þið tókuð plötuna nýju upp í
kirkju. Af hverju?
„Við vorum að leita að hljóðveri og
höfðum m.a. rætt þennan möguleika.
Hljóðver eru oft fremur geld og köld;
líflaus. Þetta var bara meira spenn-
andi – og fallegra. Við fundum svo
kirkju sem var til sölu rétt utan við
Montreal. Þetta var líka skynsamlegt
fjárhagslega, þar sem það þarf að
borga tímana í venjulegu hljóðveri en
þarna þurftum við þess ekki; bara
allt borgað á einu bretti og svo er
hægt að nota hana aftur síðar.“
– Þetta er svipað og Sigur Rós
gerði …
„Einmitt.“
– Gekk vel að taka upp í kirkjunni?
„Við komum þarna inn með frekar
hráar hugmyndir og það tók smá
tíma að aðlagast. Það fór líka tími í að
gera allt klárt. Við máluðum og
svona, komum plássinu í stand. Það
þurfti að rífa út bekki og slíkt. En
það var fínt, þetta hristi hópinn sam-
an eftir tónleikafárið, gerði okkur
„eðlilegri“.“
Hljómsveit fólksins
– En hefur það ekki verið dálítið
undarlegt að hitta allt í einu menn
eins og Bowie og Bono?
„Amm … (hugsar) … í fyrstu
kannski. Fyrir mig var rosalegast að
hitta David Byrne (leiðtoga Talking
Heads) en ég hef verið mikill aðdá-
andi hans alveg frá því í mennta-
skóla. Það var mikið mál fyrir mig.
Þetta er svona eins og að hitta pró-
fessor sem maður hefur dálæti á.“
– Jæja, ég á bara eina spurningu
eftir …
„Gott og vel! (viðmælendur verða
alltaf gríðarlega fegnir þegar þeir
heyra þetta og iðulega fær maður
góð og ríkuleg svör við lokaspurning-
unni, enda menn guðslifandi fegnir
að vera lausir úr viðtalinu, slaka þar
með á vörnum og masa óheftir).“
– Hefur þú einhverja hugmynd um
af hverju fólk er svona hrifið af Ar-
cade Fire? Hvar liggja töfrarnir?
„Mér finnst eins og við leggjum
okkur í líma við að búa til tónlist sem
er spennandi að heyra. Tónlist sem
væri spennandi fyrir okkur sjálf, þó
við værum ekki í hljómsveitinni.
Við erum í alvörunni að reyna að
búa til tónlist sem við getum með
stolti boðið fólki að kaupa eða að
hlusta á. Ég hef verið í böndum þar
sem þetta er ekki málið, þar snerist
þetta meira um að semja fyrir okkur
sjálf, skítt með áhorfendur. En með
Arcade Fire hefur þetta verið öðru-
vísi. Á tónleikum t.d., þá djöflumst
við eins og brjálæðingar í stað þess
að horfa á fæturna okkar. Við reyn-
um að vera persónulegri og opnari.
Ég veit það ekki … mér finnst bara
eins og allir séu mjög samtaka í því
að reyna að ná til fólks með tónlist-
inni.“
Kröftug Arcade Fire hefur fengið góðar viðtökur við nýju plötunni Neon Bible.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 73
ÖRUGG FJÁRFESTING Á ÍSLENSKA HLUTABRÉFAMARKAÐN U M
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
7
18
4
Kynntu þér málið á kaupthing.is, í þjónustuveri bankans
í síma 444 7000 eða komdu við í næsta útibúi.
Vegna frábærra undirtekta á ICEin 0308
höfum við opnað fyrir sölu á ICEin 0408.
Fjárfestu á íslenska hlutabréfamarkaðnum án fyrirhafnar og
með takmarkaðri áhættu. ICEin 0408 er höfuðstólstryggður
hlutabréfareikningur sem fylgir gengi íslenska hlutabréfa-
markaðarins, OMXI15 vísitölunni (áður ICEX-15).
• Lágmarksupphæð er 500.000 kr.
• Innlánið er bundið í eitt ár
• Ávöxtun allt að 25%
• Höfuðstóll er tryggður
• Upphafsgengi ákvarðast í lok dags 26. apríl
Sölutímabil
ICEin 040816.-26. apríl