Morgunblaðið - 11.05.2007, Qupperneq 40
40 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
LISTAHÁTÍÐ Í GÓÐUM GÍR
Það hefur augljóslega orðið mikilbreyting á rekstri Listahátíðarí Reykjavík á síðustu árum.
Fyrir tíu árum eða svo snerust fréttir
af Listahátíð ekki síst um fjárhags-
legar þrengingar og annað slíkt.
Skipt var um stjórnanda hátíðarinnar
ótt og títt. Dagskráin var upp og ofan.
Einkanlega virtist ganga erfiðlega að
gera hátíðina að viðburði sem al-
mennir menningarneytendur og fólk-
ið í landinu yfirleitt tengdi sig við.
Stundum tókst að láta borgina lifna
við en stundum varð þorri fólks ekki
var við að það stæði yfir hátíð í höf-
uðborginni. Um þetta var fjallað í fjöl-
miðlum þótt vitanlega væri einnig
vakin athygli á því sem vel var gert.
Hátíðin átti þá og hefur allt frá stofn-
un árið 1970 átt þátt í því að flytja
hingað til lands mikið af fremsta hæfi-
leikafólki heims á sviði menningar og
lista. Sömuleiðis hefur hátíðin oft ver-
ið mikil innspýting í íslenskt menn-
ingarlíf. Innlendir listamenn hafa
verið hinn öxullinn í gangvirki hennar
enda hlýtur það að vera eitt af meg-
inmarkmiðum hátíðar af þessu tagi að
virkja og efla listalíf í landinu.
Síðustu ár hefur neikvæðum frétt-
um af hátíðinni fækkað. Fjárhagsleg-
ar kröggur virðast ekki hrjá hana eða
stjórnendur hennar. Stöðugleiki er í
starfsliði hátíðarinnar en Þórunn Sig-
urðardóttir listrænn stjórnandi henn-
ar hefur til dæmis gegnt því starfi frá
árinu 2000. Dagskráin virðist verða
veglegri með hverju árinu. Það fer til
dæmis vart fram hjá nokkrum manni í
borginni að það stendur yfir hátíð.
Risessan mikla á vegum franska götu-
leikhússins Royal de luxe mun senni-
lega koma mörgum vegfarandanum í
listrænt uppnám að þessu sinni. Frá
árinu 2004 hefur hátíðin verið haldin
árlega og dagskráin hefur orðið þétt-
ari og markvissari. Minna er um
smærri viðburði en meira af eiginleg-
um hátíðarviðburðum.
Og líklega hefur dagskráin sjaldan
verið jafn áhugaverð og einmitt nú.
Koma Helga Tómassonar og San
Francisco ballettsins er stórfrétt og
einstakt innlegg í danslíf Íslendinga.
Koma tveggja af fremstu barítón-
söngvara heims, Dmitri Hvorost-
ovskys og Bryns Terfels, vekur at-
hygli og sömuleiðis tónleikar Gorans
Bregovic. Cheek by Jowl er einn af
framsæknustu leikhópum Evrópu og
myndlistarsýningar um Cobra-hóp-
inn, Roni Horn og ekki síst Spencer
Tunick eru ákaflega spennandi.
Vafalítið liggja miklir möguleikar í
þróun hátíðarinnar í framtíðinni. Þar
mætti ekki síst hugsa hana sem eins
konar útrásarverkefni í menningar-
starfsemi. Hátíðin hefur skapað mikil
tengsl við erlenda listamenn og
menningarstofnanir sem vafalaust
má nýta bæði til þess að efla dagskrá
hátíðarinnar sjálfrar en einnig til
þess að koma íslenskri list á framfæri
erlendis.
En sem stendur er Listahátíð í góð-
um gír og Reykvíkingar og aðrir
landsmenn eiga góða daga framund-
an.
HÆGRI OG VINSTRI?
Skoðanakannanir síðustu dagabenda til þess að sjónarmið og
viðhorf landsmanna séu að þróast í
mjög athyglisverðan farveg. Þjóðin
virðist vera að skiptast í tvennt á milli
vinstri og hægri í stjórnmálum ef
nota má svo gamaldags hugtök.
Í síðustu skoðanakönnun Capacent
Gallup, sem kynnt var í gær, halda
stjórnarflokkarnir, Sjálfstæðisflokk-
ur og Framsóknarflokkur, enn velli
en Samfylking og Vinstri grænir
fylgja fast á eftir. Og í könnun, sem
kynnt var á Stöð 2 í gærkvöldi, eru
stjórnarflokkarnir annars vegar og
Samfylking og Vinstri grænir hins
vegar hnífjafnir að þingmannatölu.
Þessi nauma staða bendir tvímæla-
laust til þess að stjórnmálin hér séu
að þróast í svipaðan farveg og gerzt
hefur í mörgum nágrannalanda okk-
ar. Forsetakosningarnar í Frakk-
landi um síðustu helgi eru mjög skýrt
dæmi um þetta. Þar tókust á tvær
fylkingar, önnur á hægri kantinum og
hin á vinstri. Þar var um að ræða
mjög skýrt val.
Þessar línur hafa ekki verið svona
skýrar á Íslandi síðustu áratugi,
kannski að einhverju leyti vegna
þeirra átaka, sem stóðu hér í langan
tíma um bandaríska varnarliðið, sem
nú er horfið af landi brott.
Ef í ljós kemur í kosningunum á
morgun, að þessi þróun er að verða
hér, má búast við að ýmislegt gerist í
kjölfarið. Þannig munu einhverjir
kjósendur á hægri kanti Samfylking-
ar hverfa til stuðnings við Sjálfstæð-
isflokkinn vegna þess að þeir telja sig
fremur eiga heima þar en í flokki,
sem fyrst og fremst horfir til vinstri.
Þá má líka gera ráð fyrir, að ýmsir
kjósendahópar Frjálslynda flokksins
muni hverfa til stuðnings við Sjálf-
stæðisflokkinn á ný horfi þeir framan
í þann veruleika, að Frjálslyndi
flokkurinn ráði úrslitum um að hér
verði mynduð vinstri stjórn. Þetta
eru einkaframtaksmenn, sem alla tíð
hafa átt heima í Sjálfstæðisflokknum
en hurfu frá stuðningi við hann vegna
þess, að þeim fannst sá flokkur
gleyma einkaframtakinu í grasrót-
inni og horfa meira til stóru fyrir-
tækjanna.
Loks má gera ráð fyrir, að vissir
kjósendahópar Vinstri grænna, sem
þangað eru komnir frá Framsóknar-
flokknum, snúi til síns heima, ef lín-
urnar skýrast með þessum hætti.
Þetta eru kjósendur, sem t.d. skildu
ekki áherzlu Framsóknarflokks Hall-
dórs Ásgrímssonar á aðild að Evr-
ópusambandinu en vilja vafalaust
styðja sinn gamla flokk, þegar þær
áherzlur eru ekki lengur fyrir hendi.
Það þarf ekki að vera neikvætt að
stjórnmálabaráttan á Íslandi falli í
þennan farveg. En það mun koma
mörgum á óvart ef svo verður. Og
kallar á ný viðbrögð og ný vinnu-
brögð af hálfu flokkanna, ekki sízt
Sjálfstæðisflokksins.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Það voru margir sultardroparnirsem féllu þegar áhorfendur biðueftir að ganga um borð í varð-skipið Óðin við Reykjavíkurhöfn
í gærkvöldi til að sjá sýninguna Gyðjuna í
vélinni. Fáir fundu samt fyrir kuldanum
því spennan fyrir því að sjá hvaða gjörn-
ingur biði í skipinu var honum yfirsterkari.
Áhorfendum var skipt í fjóra hópa á
bryggjunni, nefnda eftir árstíðunum. Ung-
ar snótir leiddu síðan hver sinn hóp um
skipið og útskýrðu hvað fyrir varð en ýms-
ar uppákomur biðu víðs vegar og var hvert
skúmaskot vel nýtt. Blaðamanni fannst
sýningin mikil upplifun og svalaði um leið
vissri forvitni um hvernig er innanborðs í
varðskipinu.
Það er Vatnadansmeyjafélagið Hrafn-
hildur sem hefur sett upp Gyðjuna í vélinni
í tengslum við Listahátíð í Reykjavík sem
var sett í gær. Sýningin er blanda af leik-
sýningu og gjörningi þar sem brugðið er
upp táknmyndum af konunni gegnum ár-
þúsundir og saga hennar og samhengi
viðrað á nýstárlegan hátt.
„Við Vatnadansmeyjarnar höfum mikið
velt fyrir okkur konunni og þróun á ímynd
konunnar í gegnum tíðina,“ segir Sigrún
Sól Ólafsdóttir sem stofnaði Vatnadans-
meyjafélagið Hrafnhildi árið 1991 ásamt
Guðlaugu Elísabetu Ólafsdóttur, Höllu
Margréti Jóhannesdóttur, Katrínu Þor-
kelsdóttur og Margréti Vilhjálmsdóttur.
„Skip er mikið karlaveldi svo við sköp-
uðum kvenlíkama í því. Þegar gengið er
um borð er gengið inn í heim konunnar,
andlega og líkamlega. Á efsta dekkinu er
útlitið og hið talaða mál, millidekkið er
maginn og næringin, þar er líka fæðingin,
tilfinningar, lífið sjálft og sjúkrarými þar
sem hjartasár eru læknuð. Á neðsta dekki
veltum við fyrir okkur hvaðan við komum,
þar erum við með þara og þang, blóð og
drullu, drauma og drauga. Í vélarúminu
slær svo hjartað, þar er stundin áður en
allt gerist,“ segir Sigrún Sól en í lok sýn-
ingarinnar er sýnt myndband þar sem má
sjá uppruna gyðjunnar. „Við völdum fimm
norðurheimskautsdýr; ref, hrafn, náhval,
ísbjörn og uglu sem þróast í gyðjur.“
Sýningin er öll hin myndarlegasta enda
segir Sigrún Sól hátt í fimmtíu manns
vinna að henni á einn eða annan hátt.
Þar sem hjartað slær
Búningar, tónlist og skúlptúrar skipa stór-
an þátt í Gyðjunni í vélinni. Vatnadans-
meyjafélagið fékk heldur enga aukvisa til
liðs við sig á þeim sviðum.
„Ásamt Vatnadansmeyjafélaginu eru
listrænir stjórnendur Davíð Þór Jónsson
með tónlistina, Þórunn Sveinsdóttir og
Ríkey Kristjánsdóttir með búninga og ég
með skúlptúra,“ segir Halla Gunnarsdóttir
myndlistarkona sem skapaði hjarta kon-
unnar í vélarými Óðins.
„Ég get ekki hugsað mér skemmtilegri
sýningarstað fyrir verkin en vélarrýmið,
andstæðurnar þar eru svo miklar, þessar
stóru vélar og svo þessar litlu viðkvæmu
verur sem eru hvítar eins og postulín.“
Halla segir vélarýmið vera hálfgerða
fæðingarstöð. „Þarna inni eru átján
skúlptúrar eftir mig og síðan eru fleiri
skúlptúrar út um allt skip. Meðal þessara
átján eru fimm sem tákna gyðjurnar.
Stærsta verkið er hálfur ísbjörn og hálf
kona sem er ófrísk, svo eru hrafninn, ref-
urinn, náhvelið og uglan öll þarna eins og
litlir ungar. Hljóðmyndin í vélarrýminu er
líka hjartsláttur sem táknar upphafið.“
Tónlist Davíðs Þórs tengir saman öll
rými skipsins en það er einhvers konar
hljóð í hverju einasta þeirra sem undir-
strikar það sem þar er inni.
Í miðrými skipsins er Halla með stóran
skúlptúr, sem hún gerði árið 2003, af konu
að fæða. „Ég flutti þetta verk frá New
York fyrir Gyðjuna í vélinni. Það sýnir
fyrstu sekúnduna eftir fæðingu og passar
vel inn í sýninguna. Það er staðsett í skutn-
um og þegar horft er á það er eins og mað-
ur sé að horfa inn í fæðingarveg.“
Halla vinnur mikið með hugmyndina um
konuna í sínum verkum, rétt eins og
Vatnadansmeyjafélagið. „Mér fannst ofsa-
lega gaman að vera beðin um að taka þátt í
þessu og vinna í svona óvenjulegu rými.“
Næstu sýningar á Gyðjunni í vélinni eru
í kvöld og 17., 18. og 19. maí. Gestir eru
hvattir til að mæta vel búnir enda þarf að
standa úti og komast bratta stiga.
Vatnadansmeyjafélagið Hrafnhildur sýnir Gyðjun
Kvenlíkami
skapaður í skipi
Agndofa Fljúg
Náhvalur Katrín Þorkelsdóttir. Hrafn Halla Margrét Jóhannesdóttir. Ugla Guðlaug
Lúðrasveit Davíð Þór Jónsson sér um tónlist og hljóð í ver
Upphafið Halla Gunnarsdóttir í hjarta konunnar umkring