Morgunblaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 58
58 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Magnús Óli Guð-bjargarson fæddist í Reykjavík 3. janúar 1996. Hann lést á leið til Íslands aðfaranótt 2. maí síðastliðins. Foreldrar hans eru Guðbjörg Magnús- dóttir, f. 13. sept- ember 1974, og Jó- hann Garðar Jóhannesson, f. 5. febrúar 1961. For- eldrar Jóhanns eru Jóhannes Óli Garð- arsson, f. 16. maí 1939, og Hulda Róselía Jóhannsdóttir, f. 23. jan- úar 1941. Fósturfaðir Magnúsar Óla er Kristján Már Hauksson, f. 6. september 1966. Foreldrar Kristjáns eru Haukur Halldórs- son, f. 4. júlí 1937, og Sigrún Kristjánsdóttir, f. 12. febrúar 1944. Systur Magnúsar Óla eru Birta Ósk Kristjánsdóttir, f. 18. júlí 2001, og Sigrún Lilja Krist- jánsdóttir, f. 25. jan- úar 2006. Hálf- bróðir Haukur Jarl Kristjánsson, f. 21. október 1987. For- eldrar Guðbjargar eru Bryndís Val- geirsdóttir, f. 11. mars 1953, og Magnús Hreggviðs- son, f. 29. maí 1949. Eiginkona Magn- úsar er Erla Har- aldsdóttir, f. 2. júní 1957. Alsystkin Guðbjargar eru Sesselja Magnúsdóttir, f. 29. júní 1977, og Hreggviður Steinar Magnússon, f. 24. mars 1982. Hálfsystir er Þórdís Erla Magnús- dóttir, f. 9. janúar 1993. Uppeldis- systir Guðbjargar er Sandra Hauksdóttir, f. 21. september 1981. Magnús Óli verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Líklega er stærsti draumur hvers manns að eignast barn. Þeir, sem fá að upplifa hann, geta tekið undir þá kenningu. Skylt þessum draumi er að eignast barnabarn. Þeirri ham- ingju, sem sú upplifun veitir, verður ekki auðveldlega lýst með orðum. Lítill drengur, ljós yfirlitum, fæddist í janúar 1996 og veitti móður og öðrum aðstandendum ólýsanlega gleði. Á fyrstu mánuðum hans kom í ljós hægari þroski en eðlilegt var. Eftir rannsóknir skýrðist að litli drengurinn var fjölfatlaður og átti sér erfiða framtíð í veikindum og þjáningum. Þótt fær sérfræðingur hafi í byrjun með nærgætni dregið upp nokkuð raunsæja mynd af því sem líklega væri framundan gátu aðstandendur engan veginn ímynd- að sér hversu erfið hún raunveru- lega varð fyrir drenginn og móður hans. Nú hófst barátta þessa litla, fal- lega drengs með móður sinni. Drengs, sem læstur var í afar fötl- uðum líkama sínum. Barátta við hörð og erfið veikindi, spítalavistir, sem skiptu hundruðum, oftast fáir dagar í einu, en gátu varað allt upp í nokkra mánuði. Barátta lítils ein- staklings, sem undir slíkum kring- umstæðum gat einungis tjáð sig með hljóðum vegna þjáninga. Barátta með móður, sem barðist af ótrúlegu þreki og hlúði að og sýndi allt það fegursta, sem í móðurástinni býr. Móðurástinni, sem líklega er sterk- asta aflið í tilveru mannsins. Síðar barátta með fósturföður til viðbótar sem frá fyrsta degi kom sterkur inn í tilveru Magnúsar Óla og opnaði hjarta sitt upp á gátt fyrir þessum fjölfatlaða dreng og gekk honum í föðurstað án skilyrða. Frá fyrstu tíð hafði litli, ljósi drengurinn góða návist. Hann reyndi að koma góðu til skila með hlýrri nærveru sinni, blíðum augum og lágum, óskýrum hljóðum. Hann hafði yndi af því að hlusta á fagra rödd móður sinnar og þeir, sem við- staddir voru giftingu hennar og fóst- urföður hans, gleyma aldrei tilraun hans til að syngja með móður sinni og samgleðjast yfir hamingju henn- ar, þegar hún söng ástaróð í kirkj- unni til brúðguma síns. Það var söngur hans til Mömmu. Þegar þrek móður og fósturföður var þrotið í erfiðri umönnun drengs- ins fékk hann vist á sérhæfðu heimili í Laugardal fyrir fjölfötluð börn í umönnun góðs starfsfólks. Þar var vel um hann hugsað og af kærleika. Pétri Lúðvíkssyni, sérfræðingi á barnadeild Landspítalans, og öllu því frábæra starfsfólki, sem þar vinnur, er þakkað hér af einlægni fyrir alla þá fjölþættu og frábæru umönnun sem nafni minn fékk. Einnig góða fólkinu á heimili hans í Laugardal síðustu misserin. Peggy og Sigurði Helgasyni og Icelandair er sérstaklega þakkað fyrir klúbb- inn Vildarbörn sem þau komu á fót og Icelandair styður dyggilega, auk fjölda einstaklinga. Nafni fékk að fara með allri fjölskyldu sinni, móð- ursystur og og Gillian hjúkrunar- fræðingi í stórskemmtilega hinstu utanlandsferð sína þar sem hann naut hverrar mínútu. Veiktist hann aldrei í ferðinni, svaf á nóttunni, og brosti hamingjusamur frá morgni til kvölds. Frá þessari ferð er til fjöldi ómetanlegra mynda sem sýna hve vel hann naut sín. Í flugferðinni heim sofnaði hann brosandi í sjúkra- rúmi sínu í háloftunum, notalega þreyttur eftir skemmtiferðina og vaknaði ekki aftur. Eins og hann væri að segja við móður sína, fóstur- föður, systkin sín og okkur hin: Takk fyrir allt. Ég get ekki meira. Ég bið Guð almáttugan að blessa minningu þessa sérstaka drengs og dóttursonar míns um leið og ég hugsa til Magnúsar Óla í nýrri til- vist, án þjáninga, hlaupandi og hlæj- andi um grænar grundir, sem hann gat ekki hér. Magnús Hreggviðsson. Elsku hjartans vinur Magnús Óli. Þið megið ei gráta þótt færi’ ég svo fljótt, burt frá ykkur, pabbi og mamma. Það hendir svo títt, að það skyggir svo skjótt og skelfir um blómskreytta hvamma, en ég á þá vissu, því er mér nú rótt, að aftur skín sól eftir koldimma nótt, þið vitið það afi og amma. Við finnumst brátt aftur, þótt fjarlægjumst stund, því fögnum, – við megum ei kvarta, en minningageislarnir létta’ okkar lund. þeir lýsa og verma í hjarta. Sem vorsólin smáblómin vekur á grund, svo vaknar hver sál eftir andvana blund, við ársólar ylgeisla bjarta. (Ágúst Böðvarsson) Lífsins göngu gekkstu glaður, ljúfur, stilltur alla elsku fékkstu yndislegur piltur. Þínar þrautir barstu þögull kæri vin enda alltaf varstu eins og sólarskin. Við munum þína léttu lund þú lífsins gleðigjafi, nú komið er að kveðjustund þig kveðja amma og afi. (S.F.) Amma og afi, Barðastöðum. Þegar Kristján Már sonur minn hringdi og sagði mér að þú værir farinn, hefðir sofnað í flugvélinni á leið heim til Íslands, var mér mikið brugðið. Hann hafði sagt mér deg- inum áður hvað þið skemmtuð ykkur vel, hve þú værir ánægður og sæll með elsku mömmu, honum og systr- um þínum á þessu merkilega ferða- lagi ykkar og hvað þið væruð búin að upplifa stórkostlega hluti saman. Það er svo ómetanlegt fyrir ykkur öll að hafa deilt þessum yndislegu ellefu dögum saman áður en þú ákvaðst að kveðja þennan heim. Elsku Moli minn, þú varst oft bú- inn að vera mikið veikur, inn og út af spítala, en alltaf varð lífsviljinn yf- irsterkari og þú komst til baka, til mömmu sem var vakin og sofin yfir þér alltaf og þegar þau Kristján Már giftu sig eignaðist þú svo óendan- lega góðan föður. Þegar þú svo flutt- ir á sambýlið við Holtaveg fékkstu dásamlega umönnun og hlýju frá starfsfólkinu þar, sem, eins og mamma þín sagði svo fallega, elsk- aði þig allt. Ég gleymi aldrei þegar ég sá þig fyrst heima hjá mömmu þinni þegar þau Kristján Már byrjuðu að vera saman. Þú sast þarna í stólnum þín- um, það stirndi á gullna hárið þitt, fallegu bláu augun ljómuðu eins og stjörnur og brosið þitt eins og sól í heiði. Þú varst svo ótrúlega fallegur drengur og bjartur. Nú ertu laus úr viðjum þíns veika líkama og getur alltaf verið hjá mömmu, Kristjáni pabba og þínum yndislegu systkin- um. Ég er svo þakklát fyrir að hafa kynnst þér og mun ávallt geyma minningar um þig og myndir í hjarta mínu. Um leið og ég kveð þig, elsku eng- illinn minn, og bið góðan Guð að geyma þig, vil ég votta mömmu, Kristjáni pabba, Birtu Ósk, Sigrúnu Lilju, Hauk Jarli og öðrum ættingj- um mína dýpstu samúð. Sigrún amma. Jæja Magnús Óli. Litli frændi. Má ég tala við þig beint? Ef það má, þá langar mig til að tala við þig eins og sál þín og hugur standi fyrir framan mig, laus úr viðjum líkam- ans. Einmitt þessa líkama sem ekki leyfði þér að tala með orðum né standa í fæturna, aldrei. Því það er þannig sem ég vill ávarpa þig og votta þér virðingu mína og hug, eins og það sé allt að baki. Alveg áttu inni fyrir því. Ég hef alltaf trúað því að sál þín hafi brosað í gegn um orð- leysið og jú, það gastu – brosað og hlegið – óspart og innilega. Og ég, sem get aðeins reynt að ímynda mér hversu mikinn aðgang þú hafðir að vitsmunum þínum og þessu undra- tæki, heilanum, eða skyni og hreyf- ingu, er hinsvegar alveg sannfærð um nærveru þína, Magnús Óli, því hún fór ekki á milli mála. Ég trúi því að á einhvern hátt sé sumt fólk gangandi skóli. Þetta er einkennilegt orðalag en samt er það þannig að ég get ekki betur lýst minni sýn á þitt líf, en einmitt með þessum orðum. Ekki ætla ég að taka mér það vald að hafa nokkra skoðun á því hvernig þín fötlun kom til, hver ákvað þetta, eða hvort hægt sé að tala yfirleitt um ákvörðun þegar barn er látið undirganga slíkt lífs- hlaup og lífsreynslu. Um réttlæti og óréttlæti verða aðrir að fjalla, ég er ekki þess umkomin að tala um slíkt í þinni návist. Forlög og ákvörðun sál- ar, fyrir eða eftir líf og annað slíkt, veit ég ekkert um með neinni vissu. Samt er það þannig, að einmitt þú og þín nærvera nánast þröngvaði manni til að hugleiða allt þetta og meira til. Nærvera þín kallaði á svo margt innra með manni sem annað fólk jafnaðarlega gerir ekki – nema það sé fólk mikilla örlaga. Því það varst þú. Manneskja mikilla örlaga. Á hljóðlátan og lágstemmdan máta lifðir þú það sem við hin munum aldrei skilja, en skildir eftir hjá okk- ur það sem við hefðum aldrei fengið án þín, Magnús Óli. Þú verður mér alltaf minnisstæður og mér þykir heiður að hafa fengið að kynnast þér og verða samferða þér um stund. Því miður er það svo að manneskjur eins og þú eru hafðar utan við megin- straum hins daglega lífs, því miður segi ég, eftir að hafa fengið að kynn- ast þér og fundið fyrir áhrifum þín- um. En það hefur allt sinn gang og sínar ástæður í þeim ólgusjó sem líf- ið er. Svo, áður en ég lýk máli mínu, Magnús Óli, vill ég nota tækifærið og hrósa þér fyrir hana móður þína. Þar var nú vel valið hjá þér, góði minn. Þegar kom að þeirri umönnun sem þú þurftir og rétti til atlætis, gastu ekki valið betri né ástríkari móður. Og hún barðist fyrir þér eins og mæður einar geta gert. Það skal ekki vanmetið. Fyrir hennar ást fékkst þú reisn og ljóma sem ella hefði ekki borið jafn hátt. Og bróðir minn, sem er giftur móður þinni og á með henni systur þínar, gekk þér strax í föðurstað með heiðri og sóma. Þeim hjónum og öllum öðrum sem kenna til við að missa þig og þína nærveru, votta ég mína samúð. Nú er kominn tími til að kveðja. Það geri ég með trega. En mér til huggunar sé ég þig fyrir mér hlaup- andi og talandi, loksins. Og alveg örugglega skellihlæjandi. Það hjálp- ar svolítið á sinn hátt að hugsa sér að einmitt þú sjálfur skiljir núna sam- hengið í þessu öllu saman, lífi og dauða, þótt við hin sitjum eftir. Og hafi ég nokkurn tíma snert við þér, gefið þér eitthvað sem vakti bros þitt eða vellíðan eða nokkurn þann annan hlut sem einhverju máli skipt- ir, þá veistu Magnús Óli, litli frændi – okkar á milli – hvað það var mér. Hafðu þökk fyrir. Hallgerður. Það er tómlegt á Holtaveginum núna, hann Magnús Óli er farinn. Það leita ótal minningar á hugann. Stóru bláu augun, fallega bjarta brosið, ferðin okkar í Daðahús. Óendanleg þolinmæði á erfiðum stundum og innileg gleði með blíðu spjalli þegar allt gekk vel. Þú kynnt- ist Magnúsi Óla og elskaðir hann, annað var ekki hægt, hann fór bein- ustu leið inn í hjartað þitt. Það er lítil stúlka á Holtaveginum sem saknar vinar síns. Það leið aldr- ei sá dagur að spjall frá Magnúsi Óla kallaði ekki fram gleðibros og hlát- ur, hann var svo skemmtilegur. Það er okkur, sem vinnum á Holtavegi ómetanlega dýrmætt að hafa kynnst og unnið með Magnúsi Óla, hann var einstakur. Elsku Guðbjörg, Kristján, Birta og Sigrún, fjölskylda og ástvinir, við sendum okkar einlægustu hjartans samúðarkveðjur Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Takk fyrir samveruna, vinur. Starfsfólkið á Holtavegi. Ég skil ekki hvernig þetta gerist, það bara verður þannig í Nangijala. Ég á við – að maður getur allt, handan við stjörnurnar. (Þýð. Þorleifur Hauksson) Miðvikudagurinn 2. maí rann upp, bjartur og fagur. Öll vorum við spennt yfir því að í dag kæmi Magn- ús Óli heim eftir ferðina til Flórída, en svo kom fréttin. Magnús kæmi ekki í dag og aldrei aftur. Sorgin færðist yfir alla á Lyngási. Fallega brosið blíða og káta spjallið, aldrei aftur. Magnús Óli var farinn til Nangijala, landsins handan við stjörnurnar. Ótalmargar og dýrmætar minn- ingar eigum við héðan frá Lyngási sem við geymum nú í hjörtum okkar sem dýrasta fjársjóð. Magnús Óli var svo margt. Hann var töffarinn sem var alltaf svo flottur í tauinu að við göntuðumst með það að hann hlyti að vera með stílista á launum einhvers staðar. Hann var tónlistar- unnandinn sem naut þess að hlusta á góða tónlist, þá sérstaklega ef hann fékk að hlusta á mömmu syngja, þá ljómaði hann eins og sólin, montinn mömmustrákur. Hann var húmor- istinn sem hafði gaman af að kúra í Lazy-boy og spjalla á sinn einstaka hátt um allt milli himins og jarðar. Hann var vinurinn sem fannst gam- an að gantast með félögum sínum á B-stofu. Hann var drengurinn sem hjúfraði sig í hálsakotið og brosti svo blítt þegar við tókum hann í fangið og föðmuðum hann. Hann var bróð- irinn sem þótti svo undurvænt um systkini sín og sonurinn sem elskaði mömmu sína meira en allt annað og vissi fátt skemmtilegra en að fá að sitja frammí með pabba á rúntinum. Magnús Óli var hetja, gullfalleg hetja með blá augu, heillandi bros og fallegustu hendur í heimi. Óbilandi kjarkur og æðruleysi var það sem einkenndi Magnús og gerði hann að þeim gullmola sem hann var. Hann kenndi okkur að lífið er það sem maður gerir, úr því sem maður fær. Með allri sinni tilveru sýndi hann okkur á svo margvíslegan hátt hversu þakklátur hann var fyrir alla þá umönnun, ást og vináttu sem hann naut allt til hinsta dags. Fjöl- skyldu valdi Magnús Óli vel, mömmu sem sá ekki sólina fyrir prinsinum sínum, pabba sem Magn- úsi þótti mest kúl í heimi og frábær systkini sem léðu lífi hans lit og gleði. Magnús Óli hefur skilið eftir sig fótspor á hjörtum okkar sem seint verða afmáð. Síðustu daga hef- ur gleðin verið fallvölt og við sökn- um Molans okkar sárt, stórt skarð hefur myndast í litla vinahópnum á B-stofu.Við þökkum allar þær stundir sem við áttum með Magnúsi Óla í gegnum árin. Erum við sér- staklega þakklát fyrir að hafa fengið að kveðja hann í hinsta sinn með knúsi og kossum áður en hann hélt í draumaferðina til Flórída með fjöl- skyldunni. Magnús Óli kvaddi þenn- an heim á sama hátt og hann lifði, á sinn einstaka hátt valdi hann stund- ina í faðmi fjölskyldunnar sem var honum svo kær. Magnús hefði viljað að við kveddum hann með brosi og fallegum minningum því þær eru langtum fegurri en tár. Við erum þess fullviss að núna hleypur hann um í landinu handan við stjörnurnar. Þó vindar blási á litla logann þinn og líka streymi regn – hann blikar þarna! Því flýgurðu ekki hátt í himininn? þar hlýtur þú að vera fögur stjarna. (Þýð. Helgi Hálfdánarson) Elsku Guðbjörg, Kristján, Hauk- ur Jarl, Birta Rós og Sigrún Lilja, við biðjum Guð að styrkja ykkur á erfiðum tímum sorgar og saknaðar og gefa fullvissu um eilíft líf. Minn- ingin um yndislegan dreng lifir. Vinir á Lyngási. Besti vinur minn, Magnús Óli, er farinn. Við áttum svo margar góðar stundir saman. Það var oftast nóg að þú létir aðeins í þér heyra til þess að ég kæmist í gott skap. Ég mun svo sannarlega sakna þín. Við kynnt- umst fyrst á Lyngási fyrir rúmum 7 árum, þá varst þú fjögurra ára en ég eins og hálfs árs. Við urðum strax góðir vinir og þegar við fluttum síð- an á Heimili fyrir börn, á Holtaveg- inn, árið 2003 varð vinskapur okkar að einhverju óútskýranlegu, sam- bandi sem við ein skildum. Ég veit ekki hvernig líf mitt verður án þín, núna þegar stóru augu þín og fallega brosið lífga ekki lengur upp á tilveru mína. Minninguna um þig mun ég geyma í hjarta mér. Ég kveð þig núna kæri vinur. Þín vinkona, Sara Lind. Magnús Óli var einstakur dreng- ur sem snerti alla sem voru svo heppnir að kynnast honum. Hann bjó yfir sérstakri útgeislun og gleði þrátt fyrir allt mótlætið. Alltaf kom hann á óvart og sigraðist á öllum erf- iðleikum sem á hann voru lagðir. Hann var lítið Ljónshjarta sem lét ekkert stoppa sig. Hann var svo heppinn að eiga mömmu sem barðist svo hetjulega með honum í gegnum öll veikindin. En líf Mola voru ekki bara veikindi og fjötrar, hann gaf ómælda gleði af sér til allra í kring- um sig og fyllti umhverfi sitt af ein- hverri óútskýranlegri von og þakk- læti. Hann var stoltur stóri bróðir og augasteinn foreldra sinna. Það er mér gersamlega óskiljanlegt af hverju Magnús Óli þurfti að yfirgefa þessa jörðu en ég hugga mig við að hann sé nú hlaupandi um í Kirsu- berjadal í Nangijala, laus við alla fjötra, hann er nú einu sinni Ljóns- hjarta! Elsku Guðbjörg, Kristján og fjöl- skylda. Guð gefi ykkur styrk á þess- um erfiða tíma og þið megið vita að þið eruð hetjurnar mínar. Brynhildur. Börnin fæðast litlum systkinum sínum eins og ljós sé kveikt, eins og fyrstu blóm vorsins vakni einn morgun. Magnús Óli Guðbjargarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.