Morgunblaðið - 21.10.2007, Síða 22
22 SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Erlent | Andstæðingar Ahmedinejads, forseta Írans, eru á kreiki og hyggjast koma á hann þeim böndum, sem
löngum hafa verið á embættinu. Knattspyrna | Ný stjarna vonar af alsírsku bergi brotin hefur stigið fram í sviðs-
ljósið með franska landsliðinu í knattspyrnu. Alþjóðamál | Enn má bjarga Búrma frá martröðinni. Föst í fréttaneti | Veröld án Parísar.
VIKUSPEGILL»
kosningabaráttunni. Sem dæmi má
nefna að olíuráðuneytið veitti olíu-
fyrirtæki, sem tengist byltingar-
verðinum, 1,3 milljarða dollara
samning án útboðs, og skipaði mág
sinn ráðuneytisstjóra.
Efnahagskreppa
veldur óánægju
Fólk kynni að hafa horft fram
hjá slíkum ráðstöfunum í betra ár-
ferði í efnahagsmálum. Nú er hins
vegar 15% halli á írönsku fjárlög-
unum og erlendar gjaldeyrisbirgðir
að verða uppurnar þrátt fyrir olíu-
uppganginn. Í stað þess að dreifa
olíutekjunum til almennings með
ódýrum lánum eins og lofað hafði
verið hefur ríkisstjórnin verið
neydd til að skammta bensín og
væntingar um uppsveiflu í efna-
hagslífinu hafa vikið fyrir kreppu.
Spenna hefur einnig vaxið eftir
að Ahmedinejad ákvað að efna
kosningaloforð sitt um að fram-
fylgja íslömskum boðum og bönn-
um í samfélaginu. Í tvö ár hefur
lögreglan verið í herferð gegn kon-
um og ungu fólki. Í sumar voru
rúmlega 150 þúsund konur hand-
teknar í Teheran fyrir að vera með
„ófullnægjandi slæður“ og gefin
voru sérstök fyrirmæli til rakara-
stofa um viðunandi hártísku ungra
karla.
Mótmæli vagnstjóra strætis-
vagna, kennara, stuðningsmanna
kvenréttinda og námsmanna hafa
verið barin niður grimmilegum
hætti og tugir manna handteknir.
Ljósmyndum og myndskeiðum af
lögreglu að berja óbreytta borgara
í Teheran og öðrum borgum hefur
verið dreift á Netinu.
Nú eru andstæðingar Ahmedine-
jads hins vegar komnir á kreik og
hyggjast koma á hann þeim bönd-
um, sem löngum hafa verið á emb-
ætti forsetans. Hans helsti keppi-
nautur, Akbar Hashemi
Rafsanjani, fyrrverandi forseti,
sem Ahmedinejad sigraði í forseta-
kosningunum, hefur með ótrúleg-
um hætti gengið í endurnýjun póli-
tískra lífdaga og er kominn aftur
fram á sjónarsviðið sem leiðtogi
sérfræðingaráðsins, valdamikillar
stofnunar, sem velur æðsta leið-
toga Írans og getur jafnvel vikið
honum úr embætti.
Að auki eru íhaldsmenn, sem
höfðu spyrt sig við Ahmedinejad,
nú farnir að gagnrýna hann op-
inberlega. Meira að segja Khame-
nei erkiklerkur, sem í stöðu æðsta
leiðtoga landsins er einnig æðsti
Hnignun Ahmedinejads
ERLENT»
Reuters
Óviss staða Ahmedinejad er óspar á yfirlýsingarnar, en höfundur telur að fjarað hafi undan honum heima fyrir.
Stuðningur við forseta Írans vex í
múslímaheiminum, en þverr heima
Eftir Mehdi Khalaji
Verið getur að stuðningurvið Mahmoud Ahmedine-jad, forseta Írans, farivaxandi í múslímaheim-
inum vegna harðrar gagnrýni hans
á Bandaríkjamenn, en styrkur
hans fer þverrandi heima fyrir.
Pólitískir keppinautar hans hafa
náð sér í nýjar valdastöður og
óánægja Írana vegna áframhald-
andi hnignunar efnahagslífsins fer
vaxandi.
Staða forsetans hefur verið veik
í íslamska lýðveldinu frá stofnun
þess. Endanlegt vald er í höndum
æðsta leiðtogans, fyrst Khomeinis
erkiklerks og nú Khameneis erki-
klerks. Fyrsta forseta íslamska
lýðveldisins, Abolhassan Bani
Sadr, var vikið úr embætti ári eftir
að hann var kjörinn. Alla tíð síðan
hefur stjórnin haft litla þolinmæði
gagnvart sterkum forsetum og
ítrekað sýnt að embætti hans heyri
undir æðsta leiðtogann.
Miklar væntingar fylgdu kjöri
Ahmadinejads fyrir tveimur árum.
Hinn nýi forseti hét því að „færa
olíuverðið að matarborði allra
heimila í Íran“ og láta til skarar
skríða gegn spillingu. Þó hófst
hann handa við að verðlauna með
bitlingum stuðningsmenn sína og
félaga úr íslamska byltingarverð-
inum og basij-þjóðvarðliðinu, vopn-
uðum sveitum, sem smöluðu kjós-
endum fyrir hann í
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Gömlu nýlendur Frakkahafa gegnum tíðina veriðduglegar að sjá knatt-spyrnulandsliðinu fyrir
frambærilegum leikmönnum og hef-
ur Norður-Afríkuríkið Alsír ekki lát-
ið sitt eftir liggja í þeim efnum. Um
það er Zinedine Zidane besta dæm-
ið. Sá ágæti snillingur hafði ekki fyrr
lagt skóna á hilluna að ný stjarna
vonar af alsírsku bergi brotin steig
fram í sviðsljósið, Karim Benzema.
Pilturinn, sem verður ekki tvítugur
fyrr en í desember, er þegar farinn
að láta að sér kveða með landsliðinu
– eins og frændur vorir Færeyingar
fengu að reyna um liðna helgi. Þá
kom Benzema inn á sem varamaður
og gerði tvennu. Og þegar Frakkar
lögðu Litháa sl. miðvikudag var
hann kominn í byrjunarliðið.
Benzema hefur þegar verið út-
hlutað númeri Zidanes – 10 – hjá fé-
lagsliði sínu Olympique Lyonnais en
lengra nær samanburðurinn varla.
Benzema er allt önnur gerð af leik-
manni en Zidane. Hann er framherji
af nýja skólanum, hávaxinn, kraft-
mikill og flinkur. Menn hafa fyrir
vikið frekar tilhneigingu til að líkja
honum við Thierry Henry en þeir fé-
lagar léku saman í framlínunni gegn
Litháum, þar sem Henry skráði nafn
sitt í sögubækurnar með því að slá
markamet Michels Platinis. Þessum
penna þykir þó nær, alltént að sinni,
að bera Benzema saman við annan
franskan miðherja, Nicolas Anelka,
sem hann leysti raunar af hólmi í
vikunni. Limaburður þeirra og
hreyfingar eru um margt líkar. Þá
eru báðir hreint prýðilegar skyttur
með báðum fótum og liðtækir skalla-
menn í þokkabót.
Að færa sig upp á skaftið
Benzema er borinn og barnfædd-
ur Lyon-búi og ber öflugu unglinga-
starfi félagsins fagurt vitni. Hann
hlaut eldskírn sína með aðalliðinu
veturinn 2004-05 en fyrstu tvö árin
hafði hann litlu hlutverki að gegna í
firnasterku liði Lyon sem unnið hef-
ur frönsku deildina sex ár í röð sem
er einsdæmi.
Á liðinni leiktíð færði Benzema sig
upp á skaftið og gerði 7 mörk í 24
leikjum, þar af 2 mörk í 3 leikjum í
Meistaradeild Evrópu. Lengst af
hefur hann leikið á vængjunum – er
jafnvígur á báðar stöður – í þriggja
manna framlínu Lyon en eftir að
Norðmaðurinn stæðilegi John Ca-
rew gekk til liðs við Aston Villa á
Englandi í janúar á þessu ári hefur
Benzema í auknum mæli leikið sem
fremsti maður. Þar hefur hann farið
á kostum á þessari leiktíð og gert tíu
mörk í jafnmörgum leikjum, hvert
öðru fallegra. Það er ekki ofsögum
sagt að Benzema sé skærasta stjarn-
an í frönsku knattspyrnunni um
þessar mundir og aðeins tímaspurs-
mál hvenær stóru liðin á Englandi,
Ítalíu og Spáni fara að gera hosur
sínar grænar fyrir honum. Hann
ætti erindi í allar þessar deildir.
En risarnir fá kappann örugglega
Alsírska undrið
Reuters
Snjall Benzema í kröppum dansi í Færeyjum. Sá hlær best sem síðast hlær.
Framherjinn ungi Karim Benzema á skotskónum með
franska landsliðinu og meisturum Olympique Lyonnais
KNATTSPYRNA»
Af leikmönn-
unum tólf sem
léku fyrir Frakk-
lands hönd gegn
Litháum sl. mið-
vikudag eru níu
af erlendum upp-
runa. Ýmist inn-
flytjendur eða
synir innflytj-
enda. Þeir eru
Lassana Diarra (Malí), Claude
Makélélé (Kongó), Florent Malouda
(Franska-Gínea), Lilian Thuram og
William Gallas (Guadeloupe), Éric
Abidal (Martinique), Thierry Henry
(Guadeloupe/Martinique, sem til-
heyra Frakklandi), Karim Benzema
(Alsír) og Hatem Ben Arfa (Túnis)
Aðeins þrír „Frakkar“ voru í lið-
inu: Mickaël Landreau, Jérémy
Toulalan og Franck Ribéry.
Tveir fastamenn voru fjarver-
andi vegna meiðsla, Patrick Vieira
(Senegal) og Nicolas Anelka (Mart-
inique).
Ætli Jean-Marie Le Pen hafi
horft á leikinn?
Níu inn-
flytjendur
Hatem Ben Arfa