Morgunblaðið - 21.10.2007, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 21.10.2007, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2007 25 Þ órarinn hrærði í spagettísósu. Manstu eftir Hollendingunum sem við hittum um daginn? Þeir sögðu að margir landar sínir væru orðnir hundleiðir á rithöfundinum og Íslandsvin- inum Ayaan Hirsi Ali enda er hún mjög um- deild í Hollandi þar sem hún settist að á sín- um tíma sem flóttamaður og varð síðar stjórnmálamaður. Auður yppti öxlum. Undanfarið hefur vestur-er-best-Ali starfað meira í Bandaríkj- unum og á alþjóðavettvangi en í Hollandi. Þórarinn samsinnti því en kvaðst hafa lesið á Jp.dk að hollenska þingið vildi ekki lengur borga bandarískum lífvörðum hennar laun. Klúður, sagði Auður. Jafnvel þótt mér þyki hún taka stórt upp í sig á köflum, þá er rangt að kasta henni fyrirvaralaust fyrir úlf- ana. Hún þarf á stöðugri öryggisgæslu að halda. Róleg, sagði Þórarinn. Danir vilja ólmir redda þessu og hafa boðið henni að flytja til sín með tilheyrandi fríðindum. Hún er hjart- anlega velkomin til Árósa. Er það svo einfalt? spurði Auður. Á Jp.dk las ég einmitt um mögulega lagasetningu á Þessi indverski bóndi, að nafni Nanu Ram Jogi, fullyrti að hann ætlaði að eignast fleiri börn fyrir tírætt. Konur elska mig, sagði hann. Hugsi sneri Þórarinn sér aftur að sósunni og tuldraði: Eins gott að Jogi verði ekki FÖST Í FRÉTTANETI» Veröld án Parísar Hilton Auður Jónsdóttir og Þórarinn Leifsson audur@jonsdottir og totil@totil.com danska þinginu í janúar nk. sem sker úr um hvort tæplega tuttugu rithöfundar úr röðum flóttamanna fá að flytja til Danmerkur. ICORN (Alþjóðanet borga sem taka á móti flóttamönnum) leitar nú að bæjum sem vilja bjóða þeim heimili og PEN-samtökin í London ábyrgjast þá. Án þess að líta af sósunni sagði Þórarinn að þeir í Árósum vildu bara Hirsi Ali, jafnvel þótt það hentaði henni ekki og hana væri ekki að finna á þessum tiltekna PEN-lista frá London. Hvað með börnin í hælisleitendabúðunum í Danmörku? fussaði Auður þá. Af dönsku blöðunum að dæma undanfarin misseri hafa þau mátt þola bága vist. Ef ég man rétt varð eiginkona Anders Fogh forsætisráðherra fúl út í hann í fyrra út af aðstæðum þeirra. Hvað á að gera í málum barnanna? Ætlarðu að bjarga heiminum fyrir mat- inn? spurði Þórarinn og smakkaði á sósunni en svelgdist á henni þegar hann mundi eftir frétt á Mirror.co.uk. Hraðmæltur sagði hann henni frá Blygðunarlausa Mikka, fimm- tugum manni sem væri á góðri leið með að safna börnum í heilar hælisleitendabúðir því hann hafði átt sautján börn með fimm kon- um. Mikki þessi (Mick Philpott á ensku) heimtaði nú stærri íbúð af breskum yfirvöld- um – en uppskar lítinn skilning. Blygð- unarlaus og atvinnulaus! stóð í blöðunum. Á Mirror.co.uk hafði einnig verið frétt um elsta föður í heimi, níræðan mann sem eign- aðist nýverið sitt tuttugasta og fyrsta barn. dæmdur til að borga fjórfalt meðlag eins og Héraðsdómur Reykjavíkur skipaði íslenskum karlmanni að gera í vikunni. Þá þyrfti hann að borga áttatíu og fjögur meðlög á mánuði. Auður dæsti. Ef þessir karlar halda áfram að fjölga mannkyninu með álíka afköstum neyðumst við til að flytja á jörðina sem fannst nýverið. Hún er tuttugu ljósár í burtu, samkvæmt Guardian.co.uk. Þar með verðum við öll flóttamenn eins og PEN- rithöfundarnir og börnin í hælisleitendabúð- unum. Við getum flúið þangað þegar heimsstyrj- öldin sem Bush spáði í vikunni skellur á, sagði Þórarinn. Í Ekstrabladet.dk stóð að hann reiknaði með heimsstyrjöld ef Íranar yrðu kjarnorkuveldi. Sennilega er best að herma eftir París Hilton, sagði Auður. Í sama miðli stóð að hún ætlaði að láta frysta sig eftir dauðann til að vísindamenn gætu vakið hana undurfagra eftir þúsund ár. Hún gæti líka keypt sér geimfar og flutt á nýju jörðina með kjölturakkann sinn, sagði Þórarinn og lagði pönnuna á borðið. Þegar Auður réðst á sósuna mundi hún að blaða- maðurinn á Ekstrabladet.dk hafði byrjað greinina á þessa leið: Ímyndaðu þér veröld- ina án Parísar Hilton! Eins gott að Jogi verði ekki dæmdur til að borga fjórfalt meðlag eins og Héraðsdómur Reykjavíkur skipaði íslenskum karlmanni að gera í vikunni. Höfundar eru heimavinnandi hjón í Barcelona.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.