Morgunblaðið - 21.10.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2007 31
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Harður og þ rautseigur þ egar á þarf að halda – mjúkur, lipur og
þægilegur í dagsins önn. Að mæta ólíkum þ örfum og bregðast
hárrétt við mismunandi aðstæðum; þ etta eru kröfur samtímans.
Til afgreiðslu strax. Komdu og reynsluaktu
Mitsubishi Pajero.
Áræðni
Tækni Sólarpanelar eru notaðir til að knýja ísskápa sem geyma lyf.
Þorpsbúar Lífið á landsbyggðinni hefur ekki breyst mikið síðustu áratugi.
Landið Lífið er ekki alltaf auðvelt í
þessu hrjóstruga landi.
Afganistan!“
Schreuder talar farsi en málið er
talað í norðurhluta landsins, fyrir ut-
an hjá hirðingjum, og segist hann vel
getað bjargað sér. Hann fer til lands-
ins þrisvar, fjórum sinnum á ári, í um
tvær vikur í einu. Hann er verk-
efnastjóri en sér ekki um daglega
umsjón þjálfunarstöðvanna. Kona
hans fór með honum í eina ferðina á
síðasta ári og var það í fyrsta skipti í
þrjátíu ár sem hún kom til landsins.
Schreuder segir hana aðeins hafa
tekið eftir einum mun á daglegu lífi
bændanna. Þeir líti eins út á ökr-
unum nema hvað mennirnir séu með
farsíma í hönd. „Henni fannst það
sláandi. En fyrir utan borgirnar hef-
ur lífið þó ekki breyst mikið.“
Schreuder segir uppbyggingu í
Afganistans vera enn í fullum gangi.
„Þegar ég kom til landsins í fyrsta
skipti eftir að talibönunum var komið
frá völdum voru mikil vandræði í
landinu. Vegakerfið var í molum og
illmögulegt að ferðast um. Skemmd-
irnar voru miklar og höfðu orðið á
löngum tíma. Landið fór 50 ár aftur í
tímann og er enn um 30 árum á eftir
nágrannalöndum eins og Íran eða
Pakistan og hefur lengi verið eitt fá-
tækasta land svæðisins.“
Hann rifjar að lokum upp harm-
sögu en starfið í Afganistan hefur
tekið sinn toll. „Það er mjög gott að
talibönunum var komið frá völdum.
Við misstum einn af afgönsku verk-
efnastjórunum okkar vegna talib-
ananna. Þeir tóku hann frá konu
sinni úti á götu þegar hann var á leið
til vinnu og hentu honum í fangelsi.
Fyrstu dagana mátti fjölskyldan fara
með mat og föt í fangelsið. En eftir
nokkra daga var þeim sagt að þau
þyrftu ekki að koma lengur. Þau
vissu aldrei nákvæmlega hvað gerð-
ist. Ég var í Hollandi þegar þetta
kom upp en fór strax til landsins til
að reyna að gera eitthvað en ekkert
gekk. Maðurinn var myrtur. Það er
mjög gott að talibönunum var komið
frá völdum.
Í gegnum árin höfum við alltaf
getað unnið en starfið hefur ekki ver-
ið auðvelt og við höfum þurft að
glíma við ýmiss konar hernaðarlegar
aðstæður og mismunandi stjórn-
völd.“
Schreuder sótti Íslendinga heim í
annað skipti í ágústlok. Hélt hann
fyrirlestur um starf sitt í Afganistan
á Tilraunastöð Háskóla Íslands í
meinafræði á Keldum auk þess að
ferðast um landið. Athygli vekur
hvað þessi Hollendingur er hrifinn af
fjalllendi miðað við að heimahagar
hans eru óvenjulega flatir. Það eru
því ekki grænar grundir sem draga
hann og konu hans hingað til lands.
„Ég er mjög hrifinn af því að geta
skipt um aðstæður. Það er einhver
ævintýraþrá í mér,“ segir Schreuder
sem ætlaði að nota fríið á Íslandi til
að ferðast um hálendið. „Þetta er
átta daga ferð. Við höfum komið
hingað einu sinni áður en vorum þá
ekki með bíl til að komast á hálendið.
Núna erum við hinsvegar búin að
tryggja okkur fjórhjóladrifinn jeppa
og Landmannalaugar eru hátt á
óskaferðalistanum. Þær minna mig á
Afganistan.“
ingarun@mbl.is
» Þeir [talibanarnir]
sköpuðu ákveðið ör-
yggi því reglur þeirra
voru strangar. Ef þú
hlýddir þeim ekki var
kannski handleggurinn
tekinn af þér!“
Í HNOTSKURN
»Bram E.C. Schreuderfæddist árið 1946 í Leeuw-
arden í Hollandi. Hann út-
skrifaðist sem dýralæknir árið
1971 frá Háskólanum í Ut-
recht.
»Vann í Afganistan í tvö árskömmu eftir útskrift á
vegum FAO (Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Sam-
einuðu þjóðanna).
»Fékk doktorsgráðu árið1998 en doktorsverkefni
hans fjallar um faraldsfræði
kúariðu og riðu í kindum.
»Hefur starfað í Afganistanmeð hléum síðustu 35 ár,
nú síðast við uppbyggingu
dýralæknastarfa á vegum
DCA (Dutch Committee for
Afghanistan).
»Nánari upplýsingar umdýralæknaverkefnið er að
finna á dca-vet.nl.