Morgunblaðið - 21.10.2007, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2007 51
HALLANDI Í FLÓAHREPPI
Land á bökkum Hvítár
Um er að ræða stórglæsilegt 50 ha. land á bökkum Hvítár, gegnt Vaðnesi.
Landið er úr jörðinni Hallanda í Flóahreppi. Einstakt útsýni er yfir Hvítá. Stutt
er í alla þjónustu, á Selfossi eða um 8 km m.a golfvöll og sundlaug. Þarna er
hægt að vera í algjöru næði en samt steinsnar frá þéttbýlinu. Fyrir liggur
samþykki frá skiplagsyfirvöldum fyrir 31 frístundalóð á bilinu 5.350-9.347 fm
auk opinna svæða til útivistar og getur skipulagið fylgt með landinu. Rafmagn
er komið á svæðið. Stutt í heitt og kalt vatn. Mjög fallegar göngu- og reiðleiðir.
Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu Lögmanna Suðurlandi
Fasteignasala Lögmanna Suðurlandi
Austurvegi 3 - 800 Selfossi - sími 480 2900 - www.log.is
Löggiltir fasteignasalar: Ólafur Björnsson hrl.
Sigurður Sigurjónsson hrl. Christiane L. Bahner hdl.
Og Steindór Guðmundsson lögg.fasteignasali
Spönginni 37 – 112 Reykjavík – www.fmg.is
Sigrún Stella Einarsdóttir löggiltur fasteignasali
Mjög fallegt, 183,1 fm einbýlishús á 2 hæðum ásamt bílskúr. Falleg
aðkoma er að húsinu og er lóðin ræktuð og hellulögð með 2 sólpöll-
um og heitum potti. Hiti í bílaplani. Forstofa, glæsileg gestasnyrting,
þvottaherb., 4 svefnherb., stofa, borðstofa, glæsilegt eldhús m. vönd-
uðum tækjum, sjónvarpshol og baðherb. Svalir með glæsilegu útsýni.
Öll rými á efri hæðinni með kvistum og er hátt til lofts.
Sigrún Stella
Einarsdóttir
lögg. fasteignasali
GSM 824 0610
Karl Dúi Karlsson
sölumaður
GSM 898 6860Sími 575 8585
FALLEGU EINBÝLI MEÐ BÍLSKÚR Í GRAFARVOGI?
SMÁRARIMI
Falleg 98,4 fm, 4ra herbergja endaíbúð með sérinngang af svölum í
nágrenni við Spöngina og Borgarholtsskóla. Þrjú svefnherbergi með
góðum skápum. Íbúðin er rúmgóð og vel skipulögð. Suðursvalir.
Glæsilegt útsýni er af svölunum yfir borgina. Einnig er glæsilegt útsýni
af svalargangi m.a. yfir Esjuna og Snæfellsjökulinn. Góð geymsla er á
jarðhæð. Sérmerkt bílastæðir fylgir eigninni.
4 HERB. ÍBÚÐ MEÐ SÉRINNGANGI Í GRAFARVOGI?
LAUFRIMI
Fallegt og vel skipulagt, 4-5 herb., 126,8 fm endaraðhús á 2 hæðum
auk rislofts við Vallarhús í Grafarvogi. Húsið er staðsett innst í götu.
Garðurinn er stór, gróinn og skjólgóður. Þrjú svefn., tvö baðherb.,
rúmgóð stofa og eldhús, gluggi við borðkrók. Stutt er í leik-, grunn-,
og framhaldsskóla. Íþróttamiðstöð og sundlaug er í göngufæri.
Hús og þak nýlega málað.
4-5 HERB. ENDARAÐHÚSI MEÐ STÓRUM GARÐI?
VALLARHÚS
Falleg og notaleg, 3ja herb., 66,7 fm íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli, mið-
svæðis í Reykjavík. Opið flísalagt eldhús með borðkrók. Parketlögð
stofa, rúmgóð og björt. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og er annað
þeirra með rúmgóðum skápum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf.
Sameiginlegt þvottaherbergi á jarðhæð. Sérgeymsla í skúr í bakgarði.
Nýlegt járn á þaki og skolplögn.
GÓÐRI 3JA HERB. ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ VIÐ MIÐBÆ?
NJÁLSGATA
LEITAR ÞÚ AÐ:
HAFÐU SAMBAND VIÐ OKKUR Í
SÍMA 824-0610 OG 898-6860 OG FÁÐU AÐ
SKOÐA OFANGREINDAR EIGNIR.
SMÁAFBROT og ólæti borgara á
almannafæri hafa fengið mikla og
verðskuldaða athygli upp á síðkast-
ið. Gerist þetta í kjölfar aðgerða lög-
reglustjóra höfuðborgarsvæðisins í
miðborginni. Hefur lögreglan tekið
af skarið og fylgt eftir lögreglu-
samþykktinni af krafti
með tilvísan í hug-
myndafræði. Sú hug-
myndafræði byggist á
forvarnarhugsun (bro-
ken window theory) og
mikilvægi þess að virða
heildstætt lög og leik-
reglur samfélagsins.
Þannig hefur lög-
reglustjóri ýtt af stað
sjálfsskoðun okkar
borgaranna. Miðað við
umræðu síðustu miss-
era þá er sú sjálfs-
skoðun að leiða það í
ljós að langflestir sjá að
þetta er ekki það samfélag sem við
viljum búa við. Því er mikilvægt að
kalla eftir heildstæðari og betri
lausnum. Hvað er þá til ráða, annað
en stöðugar handtökur og sektanir?
Hvert ætlum við með þessi mál?
Tökum til í okkar eigin garði
Með aðgerðum lögreglunnar er
verið að fást við afleiðingar vanda og
valdbeiting hlýtur að vera neyð-
araðgerð sem við verðum að taka al-
varlega til skoðunar! Því vakna
grundvallarspurningar. Hvernig
urðu aðstæður sem þessar til?
Hvernig getum við reynt að koma í
veg fyrir hegðun sem
þessa? Nýlegar fréttir
af búðahnupli og
veggjakroti ungmenna
gefa okkur enn frekar
til kynna að sjálfs-
skoðun okkar þarf að
byrja enn fyrr á ævi-
ferlinum. Í raun þarf
að fara aftur til fæð-
ingardeildarinnar til
að kanna hvernig
stendur á því að sam-
félag okkar lítur svona
út í dag en fé-
lagsmótun okkar á sér
stað alla ævi. Félagsmótun skiptir
miklu máli og þá sér í lagi hvernig
menning og hvaða gildismat verður
til hverju sinni. Mikilvægasta skeið
félagsmótunar er á fyrstu æviárum
okkar og því mikilvægt að þegar við
skoðum hvað er til ráða í dag þá
verði hugsað langt fram í tímann og
byrjað verði á uppeldi barna okkar.
Þannig verður það starf sem unnið
er í hverfum Reykjavíkurborgar,
þ.e. leik- og grunnskólum, frí-
stundamiðstöðvum, heilsugæslu, fé-
lagasamtökum og þjónustu-
miðstöðvunum, mjög mikilvægt ef
við ætlum að breyta menningu okk-
ar og háttum. Enn mikilvægara er
þó hlutverk foreldra sem ábyrgra
uppalenda. Samstarf í nærumhverfi
barna um velferð þeirra er því lykill-
inn að betra samfélagi enda hefur
það verið staðfest með rannsóknum í
yfir áratug á t.d. minnkandi vím-
efnaneyslu unglinga. Á þessu grund-
vallast forvarnarstefna Reykjavík-
urborgar.
Leitum varanlegra lausna
Þegar við gerum mistök er mik-
ilvægt að við fáum tækifæri til þess
að leiðrétta þau á uppbyggilegan
hátt. Við sjálf berum ábyrgð á hegð-
un okkar og því þurfa börn og ung-
menni að taka þátt í því þegar við
vinnum að umbótum. Þjónustu-
miðstöðvar í hverfum borgarinnar
hafa átt í góðu samstarfi við hverf-
islögreglu þegar brotahegðun barna
og ungmenna birtist. Þannig hefur
verið boðið upp á umbótaverkefni
þegar t.d. ungmenni hafa verið stað-
in að hnupli og veggjakroti. Hafa
þau fengið tækifæri til að vinna í sín-
um og málum með ráðgjöf og með
markvissum verkefnum bætt fyrir
sín brot. Einnig býðst foreldrum að
fara á almenn uppeldisnámskeið til
að bæta enn frekar færni sína í upp-
byggingu barna sinna. Lausn vand-
ans felst í því að ráðast að rótum
hans heima fyrir og þá í hverfum
borgarinnar með uppbyggjandi og
félagslegri hugsun og þannig mun
samstarfið með lögreglunni verða til
þess að árangur náist að lokum í
miðborginni.
Í upphafi skyldi endinn skoða
Ráðumst að rótum vandans
segir Óskar Dýrmundur Ólafs-
son um ástandið í miðborginni
» Lausn vandans felst íþví að ráðast að rót-
um hans heima fyrir og
þá í hverfum borg-
arinnar. Samstarfið með
lögreglunni verður til
þess að árangur náist.
Óskar Dýrmundur
Jónsson
Höfundur er framkvæmdastjóri þjón-
ustumiðstöðvar vesturbæjar hjá
Reykjavíkurborg.