Morgunblaðið - 21.10.2007, Síða 53

Morgunblaðið - 21.10.2007, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2007 53 Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040 kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013 Nýleg og glæsileg 3ja herb. íbúð á 1. hæð ásamt stæði í bílageymslu. Lyfta er í hús- inu. Dyr úr stofu út á stóran timbursólpall. Vandaðar innréttingar og tæki. Þvottahús í íbúð. Þrefalt gler. Verð: 35,0 millj. Kristinn Valur Wiium Ólafur Guðmundsson sölumaður s. 896-6913 sölustjóri s. 896-4090 ÞÓRSGATA - M. BÍLSKÝLI, 101 RVK. jöreign ehf Sól og samvera, gleði og öryggi: PALACE SARADON LÚXUSÍBÚÐIR FYRIR 55 ÁRA OG ELDRI Palace Saradon er fjölbýlishús byggt á einum heilsusamlegasta stað í heiminum á Villa Martin svæðinu, Orihuela Costa rétt við Torrevieja. Örstutt er í alla þjónustu, golfvelli, útimarkaði og aðeins um 5 mínútna akstur að strönd. Úrval gönguleiða og afþreyingamöguleikar eru óþrjótandi. Veðurfarið er hvetjandi til útiveru, hreyfingar og heilsueflingar. Vegna hagstæðs verðlags marg- faldast lífeyrir Íslendinga á Spáni. Alíslensk hönnun sniðin að þörfum Íslendinga á Spáni Sími 530-6500 www.heimili.is Fasteigna- og leigumiðlun Íslendinga á Spáni Sími 517-5280 www.gloriacasa.is VERÐ F RÁ 199.00 0 € Allar nánari upplýsingar er að finna á www.gloriacasa.is í síma 517-5280 eða á skrifstofu Gloria Casa að Síðumúla 13. Fimmti hverkaupandigetur unniðsplunkunýjangolfbíl! Í GREIN sem Sigurður Grétar Guðmundsson skrifar hér í Morg- unblaðið á dögunum óskar hann eftir því að fleiri létu í sér heyra varðandi þá vísindalegu múgsefjun sem hann kýs að kalla umræðuna um gróð- urhúsalofttegundir af mannavöldum. Upp- lýst umræða um mál sem við hljótum að láta okkur varða hlýt- ur þá að vera andsvar við tali um þetta tísku- fyrirbæri eins og Sig- urður Grétar kýs að kalla loftslagsbreyt- ingar. Grundvallarspurning Sigurðar Grétars er sú hvort lofttegundin koltvísýringur (CO2) sé yfirhöfuð til tjóns á meðan aðrar lofttegundir eins og kolsýrlingur (CO) sé ban- eitruð í miklu magni í návígi. Var- ast ber að rugla saman gróðurhúsa- áhrifum í lofthjúpi jarðar við ýmsa staðbundna ógn eða mengun sem stafar af mannlegum athöfnum. Þær geta haft mikil áhrif á sitt nærumhverfi en lítil sem engin á hnattræna vísu. Sýnileg og mæl- anleg borgarmengun af völdum svifryks, kolsýrlings og þaðan af eitraðra lofttegunda eru einmitt dæmi um slíka staðbundna mengun sem yfirleitt skolast fljótt út eða þá að hinar skaðlegu gastegundir hvarfast í skaðlausar. Staðbundin mengun snertir fyrst og fremst heilsufar fólks og almenn lífsskil- yrði og er á valdi einstakra ríkja eða borga að ráða bót á. Þær lofttegundir sem valda auknum gróðurhúsaáhrifum á hnattræna vísu eru margar hverjar skað- lausar með öllu í okkar nærumhverfi. Mikils- verðasta gróðurhúsa- lofttegundin er einmitt vatnsgufa og þar á eft- ir koltvísýringur sem nauðsynlegur er fyrir ljóstillífun og vöxt allra grænna plantna í veröldinni. Með upp- söfnun koltvísýrings í andrúmslofti verður til jafnvægi milli inngeisl- unar sólar og útgeisl- unar jarðar við annað og heldur hærra hitastig yfirborðs jarðar. Um þessa grundvallarniðurstöðu er ekki deilt, en vitanlega hefur styrk- ur geislunar frá sólu áhrif á hvert jafnvægishitastigið verður á end- anum og það er rétt hjá Sigurði Grétari að hlýindaskeið hafa komið með vissu millibili sem afleiðing af breytileika í krafti sólar. Það er hins vegar afar langsótt að halda því fram að sú hlýnun sem mælanleg er síðustu áratugina sé vegna aukinnar virkni eða geisl- unar sólar. 11 ára sveiflutíma sól- bletta er oft blandað inn í um- ræðuna um loftslagshlýnun af manna völdum. Nákvæmar mæl- ingar utan úr geimi á virkni sólar sem gerðar hafa verið frá árinu 1978 gefa til kynna að breytileiki geislunar sólar hefur verið lítil og geti með engu móti skýrt þá hnatt- rænu hlýnun sem komið hefur fram síðustu 30 árin. Að sama skapi gefa niðurstöður rannsókna það til kynna að virkni sólar hefur ekki verið að aukast svo nokkru nemi a.m.k. frá því á 17. öld. Loftslagsbreytingar af manna völdum er ekki tískufyrirbæri og umræðan er það mikilvæg að hún má alls ekki verða í múgsefj- unartón eins og Sigurður Grétar óttast réttilega. Það er hins vegar mikilvægt að koma upplýsingum um þessi mál á framfæri, og er um- fjöllun Morgunblaðsins sl. sunnu- dag því virðingarverð. Við sem höf- um hlotið menntun á þessum sviðum og reynum að fylgjast með gangi rannsókna og umræðunnar úti í heimi mættum hins vegar vera duglegri að miðla upplýsingum og þekkingu og vera virkari í fjörlegri umræðunni um loftslagsmálin. Tískufyrirbærið loftslagsbreytingar Einar Sveinbjörnsson skrifar um loftslagshlýnun af manna völdum og svarar grein Sig- urðar Grétars Guðmundssonar » Það er hins vegar af-ar langsótt að halda því fram að sú hlýnun sem mælanleg er síð- ustu áratugina sé vegna aukinnar virkni eða geislunar sólar. Einar Sveinbjörnsson Höfndur er veðurfræðingur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.