Morgunblaðið - 21.10.2007, Side 55

Morgunblaðið - 21.10.2007, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2007 55 Sem gamall Ölfusingur og ná- granni Hellisheiðar get ég ekki lengur orða bundist yfir umræðum og skrifum um svokallaða Hellis- heiðarvirkjun, þar sem Orkuveita Reykjavíkur hefur reist stórt raf- orkuver við Kolviðarhól. Orkuver- ið og nær allar bor- holurnar eru í landi Kolviðarhóls og væri því réttnefni að kalla orkuverið Kolvið- arhólsvirkjun. Það er nefnilega notkunin á örnefninu Hellisheiði sem angr- ar mig. Stóra- Skarðsmýrarfjall, Hengill, Ölkelduháls og Grensdalur, en það eru þau svæði sem helst er talað er um að virkja, eru ekki á Hellisheiði. Ekki heldur Svínahraun. Okkur sem erum náttúruunn- endur og þykir vænt um landið okkar hlýtur að vera kappsmál að hvert landsvæði fái að halda nafni sínu eins og það hefur verið notað um aldir. Hvers vegna ætti að breyta því? Ég lít svo á að gömul örnefni séu hluti af þjóðararfinum ekki síður en margt það gamalt sem grafið er úr jörðu eða fornar ritsmíðar sem vitna um þjóðlega arfleifð okkar. Í skrifum og opinberri umræðu er nefnilega farið að nota Hellis- heiðarnafnið á miklu stærra svæði en áður var, jafnvel alveg vestur undir Reykjavík. Sagt er að of- anjarðarlagnir úr borholum að stöðvarhúsi við Kolviðarhól liggi um Hellisheiði og valdi sjón- mengum í stórum stíl á heiðinni. Hið rétta er að þær gufupípur sem sýnilegar eru frá þjóðveg- inum eru alls ekki á Hellisheiði, heldur fyrst og fremst í Svína- hrauni neðan við Hveradali og í Hellisskarði við Reykjafell. Orku- línur frá virkjuninni við Kolvið- arhól munu hvergi fara um Hellis- heiði, heldur um Svínahraun áleiðis á Reykjavíkursvæðið. Þeg- ar þetta er skrifað hafa einungis þrjár eða fjórar jarðhitaholur ver- ið boraðar á Hellisheiði, ein er við Hverahlíð, og önnur þar skammt frá og hvorug er nýtt við Kolvið- arhólsvirkjun. Líklega eru tvær jarðhitaholur sunnan undir Stóra- Skarðsmýrarfjalli, við rætur fjalls- ins þar sem áður var alfaraleið úr Grafningi sem kölluð var „Milli hrauns og hlíða“. Engar lagnir eru enn sýnilegar af þjóðveginum á Hellisheiði frá þessum holum. Aðrar borhol- ur eru flestar í eða norðan við Stóra- Skarðsmýrarfjall og í Hellisskarði í landi Kolviðarhóls. Ein- hverjar litlar holur hafa verið boraðar á Hellisheiði, en þær eru vart sjáanlegar og ekki ætlaðar til raf- orkuframleiðslu að því er ég best veit. Hvað framtíðin ber í skauti varðandi virkj- anir á Hellisheiði er annað mál. Til að skýra mál mitt nánar skal hér greint frá því landsvæði sem um aldir hefur borið nafnið Hellis- heiði. Við Ölfusingar erum sam- mála Eiríki Einarssyni fræði- manni frá Þóroddsstöðum sem tók saman mjög vandaða örnefnaskrá yfir vestanvert Ölfus á árunum 1966–69, auk hans sjálfs eru heim- ildamenn gamlir Ölfusingar. Þar skilgreinir hann örnefnið Hellis- heiði og önnur landsvæði í grenndinni, sem bera önnur heiti. Hann lýsir Hellisheiði svo: „Tak- mörk Hellisheiðar eru þessi: Að austan Hurðarás, sem er framhald af Núpafjalli, og Hengladalaá, að norðan Litla-Skarðsmýrarfjall og Stóra Skarðsmýrarfjall, að vestan Reykjafell og Lakahnúkar, að sunnan Hverahlíð að Hlíðarhorni og um Hurðarásvötn austur í Hurðarás“. Öll þessi kennileiti mynda eins og ramma eða hring um Hellisheiðina og eru flest greinileg þaðan sem ekið er um Suðurlandsveg eftir að komið er upp á háheiðina fyrir ofan Efri- Hveradalabrekku. Láglendið vestan við Hveradala- brekkur heitir Svínahraun og þar eru röralagnirnar sem stinga í augu á vegfarendum. Áður lá gamli Suðurlandsvegurinn eftir endilöngu Svínahrauni, frá Neðri- Hveradalabrekku, um Bolavelli þar sem orkuverið er nú risið, framhjá Kolviðarhóli og Litlu- Kaffistofu að vesturenda hrauns- ins ofan við Bolöldur austan við Sandskeið. Nú liggur vegurinn vestur um Bruna, yngra hraun og úfið sem hefur runnið yfir Svína- hraun sem er miklu eldra. Það hefur komið úr Eldborgum vestan Lambafells og hallast ýmsir að því að það sé Kristnitökuhraunið sem getið er um í fornsögum. Að vest- an nær það að Þórishamri og Draugahlíðum ofan við Litlu- Kaffistofu en til austurs hefur það runnið niður um Þrengsli. Þessi örnefni eru lifandi í hugum eldri Ölfusinga, ekki síst okkar sem smöluðum þessi lönd á árum áður, og það er nánast eins og guðlast að brengla þau eins og gert hefur verið. Það er von mín að þeir sem framvegis fjalla um þetta land- svæði fari rétt með örnefnin, ekki síst þeir sem þarna eru að reisa mannvirki sem munu standa um ókomna tíð. Ég hvet þá til að virða fornar hefðir í nafngiftum, þær fái að halda sér en séu ekki færðar til og frá í hugsunarleysi. Ég hvet líka þá sem vinna á fjöl- miðlum til að taka höndum saman um rétta notkun örnefna þegar þeir fjalla um þetta svæði og þá mannvirkjagerð sem þar fer fram. Á þessu svæði eru til nöfn á öllum kennileitum, forn nöfn sem hafa verið notuð fram á þennan dag og það er skylda okkar að varðveita þau óbrengluð fyrir komandi kyn- slóðir. Örnefni á Hellisheiði Tómas Jónsson segir frjálslega og rangt farið með örnefni á Hellisheiðarsvæðinu » Öll þessi kennileitimynda eins og ramma eða hring um Hellisheiðina og eru flest greinileg þaðan sem ekið er um Suður- landsveg Tómas Jónsson Höfundur var aðstoðaryfirlög- regluþjónn á Selfossi en er nú kirkju- vörður í Selfosskirkju. Hverfisgata 50 3ja herb. útsýnisíbúð á efstu hæð Opið hús í dag kl. 14-16 Falleg um 100 fm íbúð á efstu hæð í miðbæ Reykjavíkur í húsi sem hefur ver- ið mikið endurnýjað að utan og innan. Íbúðin er með mikilli lofthæð og upp- runalegum bitum í loftum. Eyja með góðu borðplássi í eldhúsi og ljósar gólf- fjalir á gólfum. Halogen-ýsing í aðalrými íbúðarinnar. Sérstök hljóðeinangrun milli íbúða. Útsýni að Esjunni og út á Faxaflóa. Verð 31,9 millj. Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14 til 16. Verið velkomin. Kleppsvegur 144 Góð 4ra herbergja íbúð Opið hús í dag kl. 14-16 Falleg og björt 114 fm íbúð á 1. hæð auk sér geymslu í kjallara. ÍBÚÐIN ER MERKT 0102. Íbúðin skiptist í forstofu/hol, stórar samliggjandi stofur með hlöðnum arni, eldhús með upprunalegum, fallegum innréttingum og nýlegum tækjum, 2 góð herbergi og flísalagt baðherbergi. Þvottaherb. og búr innan íbúðar. Tvennar skjólgóðar, flísalagðar svalir til suðurs og norðurs. Stór lóð við húsið. Verð 29,5 millj. Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14 til 16. Verið velkomin. Meistaravellir 9 Góð 4ra herbergja íbúð Opið hús í dag kl. 14-16 Mjög góð 100 fm, 4ra herb. íbúð á 1. hæð, ÍBÚÐ 0101, ásamt geymslu í kjall- ara í góðu fjölbýli í Vesturbænum. Íbúðin skiptist í forstofu/hol, eldhús með ný- legri innréttingu og nýlegum stáltækjum, parketlagða stofu, þrjú herbergi og baðherbergi sem er flísalagt í gólf og veggi. Útgangur úr stofu á rúmgóðar svalir til suðurs. Verð 26,5 millj. Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14 til 16. Verið velkomin. M bl .9 25 18 6 FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Kvistavellir 44 - Hf. - NÝTT Í SÖLU HRAUNHAMAR FASTEIGNASALA KYNNIR GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR Í LYFTUFJÖLBÝLI VIÐ KVISTAVELLI Í VALLAHVERFINU Í HAFNARFIRÐI. • 20 Íbúðir • 3 bílskúrar • Stór sérafnotareitur fylgir íbúðunum á jarðhæð. • Vandaðar innréttingar frá Axis. • Vönduð heimilistæki frá Húsasmiðjunni. • Vönduð hreinlætistæki • Granít á eldhúsborðum • Flísalagt þvottaherbergi og baðherbergi. • Lyfta • Glæsilegt útsýni • Afhending er áætluð í maí-júní 2008. Verð: • 2ja herb. 73-75 fm kr. 18,9-19,5 millj. • 3ja herb. 84-92 fm kr. 21,2-21,9 millj. • 4ra herb. 120-127 fm kr. 26,5-28 millj. • Bílskúrar 30-37 fm kr. 3,5 millj. og 4 millj. M bl .9 25 34 8 Mjög fallegt 397,0 fm hús- eign með tveimur íbúðum ásamt 37,8 fm bílskúr, samtals 434,6 fm. Á 1. hæðinni eru þrjár sam- liggjandi stofur, forstofa, bakforstofa, fataherbergi (áður herbergi), skrifstofa, hol, baðherbergi og eld- hús. Á 2. hæðinni er hol, baðstofa, 3 svefnherbergi og baðherbergi. Mann- gengt geymsluris er fyrir rishæðinni. Í kjallara er 3ja-4ra herbergja íbúð auk þvottahúss og mikils geymslurýmis. Lóðin er ný- lega standsett, m.a. með mikilli hellulögn, fallegri lýsingu, grasflöt og mikl- um trjágróði. 6833 Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali. Barðavogur – heil húseign M bl 9 25 58 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.