Morgunblaðið - 21.10.2007, Síða 74

Morgunblaðið - 21.10.2007, Síða 74
74 SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Geymið auglýsinguna KÍNAKLÚBBUR UNNAR til Kína með konu sem kann sitt Kína 10. - 31. maí 2008 á ári Rottunnar Farið verður til BEIJING, XIAN, GUILIN, YANGSHUO, SHANGHAI, SUZHOU og TONGLI. Siglt verður á LÍ FLJÓTINU og á KEISARASKURÐINUM og farið á KÍNAMÚRINN. Allt það merkilegasta verður skoðað á þessum stöðum. Heildarverð á mann kr. 370 þúsund Allt innifalið: þ.e. allar skoðunarferðir, gisting í tvíbýli á lúxushótelum (einb. + 70 þ.), fullt fæði, skattar og gjöld, staðarleiðsögumenn og fararstjórn Unnar Guðjónsdóttur. Þetta verður 27. hópferðin sem hún skipuleggur og leiðir um Kína. Kínakvöld: Kínaklúbbur Unnar Njálsgötu 33, 101 Reykjavík símar: 551 2596 og 868 2726 Vefsíða: www.simnet.is/kinaklubbur Netfang: kinaklubbur@simnet.is Hópar og einstaklingar geta pantað „Kínakvöld“, á Njálsgötunni eða úti í bæ, með myndasýningu og mat, sýningu á Tai-Chi og kínverskum listmunum. Kalvin & Hobbes HVAÐA TÓNLIST ER ÞETTA? ÓPERA FRÁ 1812 ÞETTA ER BARA NOKKUÐ SVALT. ÉG FÍLA TROMMURNAR ÞETTA ERU FALL- BYSSUR OG ÞETTA ER EITTHVAÐ SEM ÞEIR GERA FYRIR FULLUM SAL OF FÓLKI. ÉG HÉLT AÐ KLASSÍK VÆRI LEIÐINLEG Kalvin & Hobbes PABBI, EN SÁ DAGUR ÉG FÓR Í SKÓLANN, SVO LÆRÐI ÉG HEIMA OG EFTIR ÞAÐ FÓR ÉG ÚT AÐ LEIKA MÉR 19:35 SVALT, IT’S MILLER TIME! HVAÐ ER KLUKKAN PABBI? KOMDU HÉRNA Á STUNDINNI! Kalvin & Hobbes MILLJÓN! TAKKSIGGA! HEYRÐU, BÍDDU NÚ VIÐ?? ÞETTA ER SAMA SVAR OG HÚN GAF MÉR VIÐ 3 + 4 PSST... SIGGA, HVAÐ ER 12 + 17? Risaeðlugrín © DARGAUD VIÐ FÁUM ALDREI HEITAN MAT dagbók|velvakandi Skylduáskrift RÚV ÉG er hundleið á þessari dagskrá RÚV og öllu þessu leiðinlega efni sem fólki er boðið upp á. Ég er 82 ára gömul kona og hef ávallt greitt reikn- inga sem mér berast. Ég hef aldrei verið sjálfviljug áskrifandi af RÚV en borga alltaf. Í janúar á þessu ári 6.581 kr. og sama í maí og einnig ágúst og svo október sama verð, 6.581 kr. Þar með styttist bil á milli reikninga mik- ið á milli ágúst og október, og erf- iðara að borga svo ört. Sérstaklega fyrir eldri borgara og fólk með lágar tekjur. Ekki er tekið tillit til eldri borgara sem eru ekki með nein laun. Hvar er frelsið sem allir eru að tala um? Ég vil hafa val um hvort ég greiði til RÚV eða eitthvað annað! Eldri borgari. Kostir nagladekkja ÉG sá í fimmtudagsblaðinu að tveir lesendur voru að tala um að nagla- dekk orsaki meiri mengun en önnur dekk. Það er rétt hjá þeim að það er ekkert svo mikil hálka á daginn á vet- urna þegar mikil umferð er, en hafa þessir tveir aðilar hugsað út í það hvernig göturnar eru á kvöldin og næturnar? Þegar hefur rignt eða snjóað á daginn þá getur orðið gler- hált á götunum á næturnar, og fyrir leigubílstjóra og aðra sem þurfa að mæta í vinnu seint á kvöldin og á næturnar þá er mjög mikilvægt að vera á nagladekkjum. Hvaða bílstjóri með fullu viti mundi vilja vera nagla- dekkjalaus skautandi um götur Reykjavíkurborgar á næturnar? Svo finnst flestum vönum atvinnubíl- stjórum nagladekkin mun öruggari á næturnar en heilsárs- og harð- kornadekkin. Lesandi. Flótti hjá fréttamönnum? ÉG hef undanfarið velt því fyrir mér hvers vegna svo margir fábærir fréttamenn hafa horfið af skjánum. t.d. á RÚV. Páll Benediktsson ný- hættur, sömuleiðis Benedikt Sigurðs- son, Kristján Kristjánsson o.fl. o.fl. Þar sem ég hef horft á erlendar fréttastofur svo árum skiptir, t.d. BBC, CNN (60 minutes) o.fl. hef ég tekið eftir að margir sömu frétta- menn (stjórar) hafa starfað áratugum saman. Má t.d. nefna Peter Jennings, Tom Brokow og marga fleiri. Það tekur tíma að venjast nýjum frétta- mönnum, en hinna er saknað fyrir frábæran, faglegan fréttaflutning gegnum árin Kannske eru það launin sem skipta þarna miklu máli. Flestir ráða sig sem upplýsingafulltrúa hjá stórfyrirtækjum sem jafnvel borga betur. Svanur Jóhannsson. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Alltaf er hressandi að fara út að ganga, jafnvel þótt úti sé rok og rign- ing. Ekki spillir að hafa vini sína fjórfætlingana með í göngutúrinn, okk- ur sjálfum og þeim til ánægju. Göngutúr í Þingholtunum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.