Morgunblaðið - 21.10.2007, Qupperneq 88
SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 294. DAGUR ÁRSINS 2007
Heitast 10 °C | Kaldast 5 °C
Búist við stormi á
miðhálendi og SA-
lands. Talsverð væta
S- og V-til, víðast hvöss
V-átt um tíma. » 8
ÞETTA HELST»
Bændur vinna að aukinni
heimavinnslu afurða
Talið er að tengja megi 30% los-
unar gróðurhúsalofttegunda í heim-
inum framleiðslu og flutningi á mat.
Íslenskir bændur vinna nú að því að
auka heimavinnslu afurða svo selja
megi unnar vörur beint frá býlum og
draga þannig úr flutningi gripa og
afurða innanlands. Fækkun af-
urðastöðva hefur aukið mjög land-
flutninga matvæla. » Forsíða og 10
Njóta ekki fullra réttinda
Íslenskir sjómenn á kaupskipum,
sem eru starfsmenn erlendra dótt-
urfyrirtækja kaupskipaútgerða,
njóta ekki nema að hluta til réttinda
íslenskra almannatrygginga og fæð-
ingarorlofs. Örn Friðriksson, for-
maður VM – Félags vélstjóra og
málmtæknimanna, segir þetta óvið-
unandi. » 2
Skólar fá 200 milljónir
Oddný Sturludóttir, formaður
menntaráðs Reykjavíkurborgar,
segir að 200 milljóna króna pottur
eigi að renna til skóla sem glíma við
manneklu. Pottinn á meðal annars
að nýta til að koma til móts við þá
kennara sem leiðbeina nýjum leið-
beinendum. » 2
Framlög til UNIFEM aukin
Ríkisstjórnin mun leggja fram
87,5 milljónir króna til UNIFEM,
þróunarsjóðs Sameinuðu þjóðanna
fyrir konur, á næsta ári og er það
rúmlega helmingsaukning. Fjár-
magnið sem UNIFEM fær fer í að
styðja konur í þróunarlöndum. » 6
SKOÐANIR»
Staksteinar: Án mótmæla?
Forystugreinar: Reykjavíkurbréf |
Gleymdust reykingamennirnir?
Ljósvakinn: Sófadýr á sunnudegi
UMRÆÐAN»
Tískufyrirbærið loftslagsbreytingar
Mannanöfn og mismunun á Íslandi
Um þekkingarverðmæti OR
Ráðuneytisstjóri í vondum málum
MYNDLIST»
Goð samtímans fá góða
dóma. » 87
Whitney Houston
lítur betur út en
nokkru sinni fyrr.
Ungstirnið Lindsay
Lohan er trúlofað
snjóbrettagæja. » 87
FÓLK»
Endurkoma
og trúlofun
KVIKMYNDIR»
Carter Webb leitar að
hinni einu réttu. » 79
TÓNLIST»
Bloodgroup náði Air-
waves-samningi. » 85
Heimildarmyndin
Syndir feðranna
segir sögu fimm
Breiðavíkurstráka
með reisn. Hún fær
fjórar stjörnur. » 84
Saga með
reisn
DÓMUR»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Watson: „Ég er miður mín“
2. Verslunarþrotabú í Kolaportinu
3. Erfitt að losna við „skutlið“ …
4. Britney ók yfir fót á ljósmyndara
ATVINNA»
Vinnuverndarvikan 2007
Batnandi starfsumhverfi
Góð ráð fyrir starfsviðtalið
SA og horfur í efnahagsmálum
BORGARRÁÐ
hefur samþykkt
tillögu Dags B.
Eggertssonar
borgarstjóra um
að óska eftir við-
ræðum við bæj-
aryfirvöld í Kópa-
vogi um samstarf
við gerð nýrrar
sundlaugar í
Fossvogsdal. Slík
sundlaug gæti nýst jafnt íbúum
Reykjavíkur og Kópavogs.
Dagur sagði að á sínum tíma hefði
borist bréf frá Sigurði heitnum Geir-
dal, þáverandi bæjarstjóra í Kópa-
vogi, þar sem hann hefði lagt fram
hugmyndina um sundlaug í Foss-
vogsdal. „Nú finnst okkur að geti
verið tímabært að huga að þessu,“
sagði Dagur. „Ég lít á sundlaugar
sem lykilatriði í heilsuborginni
Reykjavík.“ Hann sagðist helst vilja
að íbúar allra hverfa borgarinnar
ættu greiðan aðgang að sundlaug í
nágrenni sínu.
Búið var að stinga upp á að stað-
setja laugina innarlega í Fossvogs-
dal á mörkum sveitarfélaganna þar
sem hún myndi ekki ganga á útivist-
arsvæði.
Í framhaldinu verður þessi hug-
mynd tekin aftur upp við Kópa-
vogsbæ. Dagur kvaðst vona að þær
viðræður gætu farið fljótlega af stað.
Sundlaug
í Fossvog
Dagur B.
Eggertsson
KRISTÍN Svava Tómasdóttir sendi
nýverið frá sér sína fyrstu ljóðabók,
Blótgælur. Kristín er aðeins 21 árs
að aldri en hefur samið af alvöru í
um fimm ár. Hún segist vera mikil
bókamanneskja og að áhuginn á að
semja hafi kviknað eftir að hún byrj-
aði að lesa ljóð.
Yrkisefni Kristínar er mjög póli-
tískt, og á köflum skín femínisminn
skýrt í gegn. Aðspurð segist Kristín
ekki hafa miklar áhyggjur af litlum
vinsældum ljóðlistar á Íslandi. „Það
er ágæt gróska í ljóðagerð á Íslandi,
og ég hef aldrei fundið fyrir öðru en
áhuga og velvild,“ segir hún og bætir
við að það verði samt enginn ríkur af
þessu. | 78
Gróska í
ljóðagerð
Ljóðskáld Kristín Svava hefur gef-
ið út sína fyrstu bók, Blótgælur.
BISKUP Íslands og forseti Hins íslenska biblíufélags,
Karl Sigurbjörnsson, afhenti fyrir hönd JPV útgáfu og
Biblíufélagsins forseta Kirkjuþings, vígslubiskupum og
fyrrverandi biskupum, þ. á m. Sigurbirni Einarssyni, föð-
ur Karls, eintök af Biblíu 21. aldar á Kirkjuþingi í gær.
Í ræðu sinni kvaðst biskupinn vænta þess að nýju
Biblíunni yrði veitt viðtaka í söfnuðum landsins við guðs-
þjónustur í dag. Sagði hann útkomu Biblíu 21. aldar vera
áskorun á hendur hirðum og kennimönnum um að nýta
þau tækifæri sem þar gefast. | 4
Biskupsfeðgar með Biblíu
Kirkjuþing 2007 var sett í Grensáskirkju í gærmorgun
Morgunblaðið/Ómar
BANNI við reykingum verður að
fylgja aðstoð við þá sem vilja hætta
að reykja, að mati dr. Helgu Jóns-
dóttur, prófessors í hjúkrunarfræði
við Háskóla Íslands og forstöðu-
manns hjúkrunar langveikra fullorð-
inna á Landspítalanum.
Helga segir að aðstoð við reyk-
ingamenn sem vilja hætta að reykja
sé í algjöru lágmarki í íslensku sam-
félagi. Öðru máli gegnir t.d. í Bret-
landi. Leiti fólk sem vill hætta að
reykja stuðnings og reglubundinnar
ráðgjafar fær það nikótínlyf á mjög
lágu verði. Hér á landi þarf fólk að
greiða sömu lyf fullu verði.
„En tóbaksnotkun er flokkuð sem
fíknsjúkdómur og því skyldi hún ekki
meðhöndluð þá á sama hátt og önnur
fíkn og aðrir sjúkdómar?“ spyr
Helga. „Ég get trúað að vandinn fel-
ist dálítið mikið í því að fólk vill ekki
reyna að skilja í hverju fíkn felst. Að
það sé ekki nóg að vilja hætta. Það
kemur í ljós að ¾ hlutar reyk-
ingamanna vilja hætta en ekki nema
lítið brot getur hætt af sjálfsdáðum.“
Helga segir reynt að koma því
verklagi á að allir heilbrigðisstarfs-
menn verji einhverjum mínútum í að
hvetja fólk til að hætta reykingum.
Það eitt að spyrja reykingamann
hvort hann reyki og hafi áhuga á að
hætta að reykja hvetji fólk og allt að
5% hætti við að fá þessar spurningar
einar. Helga segir að nú sé ekki nóg
til af úrræðum sem hægt er að vísa
fólki á.
„Ég skynja hins vegar vilja hjá
heilbrigðisyfirvöldum til að bæta að-
stoð til reykleysis og trúi því að innan
fárra ára standi reykleysismeðferð
til boða öllum sem á henni þurfa að
halda,“ sagði Helga. | 32
Skortir stuðning
Aðstoð við reykingafólk sem vill hætta er í algjöru
lágmarki hér, að sögn prófessors í hjúkrunarfræði
Í HNOTSKURN
»Helga Jónsdóttir er pró-fessor í hjúkrunarfræði
við HÍ og forstöðumaður
hjúkrunar langveikra fullorð-
inna á Landspítalanum.
»Hún hefur unnið að þróunog rannsókn reykleysis-
meðferðar fyrir fólk með
reykingatengda sjúkdóma.
»Kostnaður ríkisins afreykingum var 19 millj-
arðar skv. úttekt Hag-
fræðistofnunar.
Morgunblaðið/Ómar
Ávani Bjóða ætti upp á ókeypis
reykingameðferð, að mati Helgu.
♦♦♦