Morgunblaðið - 02.12.2007, Qupperneq 24
þýðir að sigri Liverpool Marseille í
Frakklandi í lokaumferð riðla-
keppninnar fer liðið áfram í sextán
liða úrslitin. Raunar gæti jafntefli
dugað til framgöngu vinni Besiktas
sigur á Porto í hinum leiknum í riðl-
inum en á það er varla að stóla.
Það er þó ekki frammistaða liðs-
ins sem veldur öldurótinu í hinu
rauða vígi Bítlaborgarinnar heldur
ósætti knattspyrnustjórans, Spán-
verjans Rafa Benítez, og hinna
bandarísku eigenda félagsins, auð-
kýfinganna Tom Hicks og George
Gillett. Deila þeirra um stefnu fé-
lagsins varðandi kaup og sölur á
leikmönnum hefur ekki farið
framhjá neinum sparkelskum manni
og fyrir fáeinum dögum leit út fyrir
að Benítez yrði hreinlega settur út
af sakramentinu. Það lítur nú ögn
betur út.
Í fjötrum fjarlægðar
Í fljótu bragði virðist fjarlægðin
milli málsaðila vera helsti vandinn.
Benítez vill styrkja lið sitt þegar
skrúfað verður frá viðskiptum með
leikmenn í janúar en eigendurnir,
sem búa í Bandaríkjunum, vilja ekki
ljá máls á útgjöldum fyrr en þeir
munu heiðra Rauða herinn með
nærveru sinni í tilefni af viðureign-
inni við meistara Manchester Unit-
ed 16. desember næstkomandi.
Fram hefur komið að Benítez
þykir það heldur seint enda verða
menn að hafa unnið heimavinnuna
sína þegar leikmannaglugginn verð-
ur opnaður svo keppinautarnir
skjóti þeim ekki ref fyrir rass. Bení-
tez óttast að hinir háu herrar vestur
í Ameríku skilji þetta ekki enda
eignuðust þeir félagið bara í febrúar
á þessu ári og hafa kannski ekki
gert sér grein fyrir mikilvægi leik-
mannagluggans í janúar sem er
eina tækifæri liða til að styrkja sig
fyrir lokaátökin á tímabilinu.
Blaðamannafundurinn fyrir rúmri
Rafa bundinn á klafa
Rafa Benítez knattspyrnustjóri hefur átt í útistöðum við
eigendur Liverpool en er öldurnar að lægja á Anfield?
Reuters
Okkar maður Aðdáendur Liverpool lýsa yfir stuðningi við Benítez á Anfield.
KNATTSPYRNA»Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Það hefur verið öldugangurá gjöfulustu miðum enskuknattspyrnunnar, Anfieldí Liverpool, að undan-
förnu – eiginlega bara haugasjór.
Gengi liðsins hefur ekki verið öllum
stuðningsmönnum þess að skapi á
yfirstandandi leiktíð enda menn
góðu vanir gegnum tíðina. Það
stendur þó allt til bóta, Liverpool
hefur mjakað sér nær efstu liðunum
í úrvalsdeildinni og er enn á lífi í
meistaradeildinni eftir afleita byrj-
un. Góður sigur á Porto í vikunni
24 SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Úrskurður dómstóls á Spánium að birting skopmynd-ar af Filippusi prinsi ogLetiziu prinsessu bryti í
bága við lög hefur vakið deilur. Manel
Fontdevila, ritstjóri skopmynda hjá
spænska ádeilutímaritinu El Jueves,
og skopteiknarinn Guillermo Torres
voru dæmdir fyrir að „skaða orðspor
krúnunnar“ og gert að greiða 3.000
evrur (270.000 kr.) hvorum í sekt.
Umrædd teikning birtist á forsíðu
El Jueves í júlí. Á myndinni mátti sjá
Filippus og Letiziu í ástarleik og voru
krónprinsinum lögð í munn orðin:
„Gerir þú þér grein fyrir því að ef þú
verður ólétt er það það næsta, sem ég
hef komist því að vinna allt mitt líf?“
Tilefni brandarans var ákvörðun
spænsku ríkisstjórnarinnar um að
hvetja til aukinna barneigna með því
að verðlauna mæður og greiða þeim
2.500 evrur (225.000 kr.) við fæðingu
barna þeirra.
Fyrst ritskoðun, svo málsókn
Höfundar skopmyndarinnar sögðu
að ætlunin hefði ekki verið að gera
grín að krónprinsinum, heldur barna-
greiðslum stjórnarinnar. Dómurinn
vísaði því á bug með þeim rökum að
ekki hefði þurft teikningu af kónga-
fólkinu til að koma ádeilunni á stjórn-
ina til skila.
Ritskoðunin hófst um leið og blaðið
kom út. Upplagið var gert upptækt
með dómsúrskurði á þeirri forsendu
að teikningin væri móðgun við
spænsku konungsfjölskylduna
nokkrum klukkustundum eftir að því
var dreift og var lögreglu sigað á
blaðasala um allan Spán til að taka
upplagið í sína vörslu. Þeir náðu þó
ekki þeim hluta upplagsins, sem þeg-
ar hafði selst, og verða þau eintök
sennilega einhvern tímann verðmæt.
Viðbrögð spænskra yfirvalda við
teikningunni hafa verið harðlega
gagnrýnd. Sú gagnrýni hefur komið
úr ýmsum áttum. Þau hafa verið sök-
uð um að skora sjálfsmark og vekja
miklu meiri athygli á teikningunni en
hefði hún verið látin óátalin og um
leið að draga neikvæða athygli að
Spáni með ritskoðunartilburðum.
Grundvallarmál eða afstætt?
Mörgum þykir skjóta skökku við
að eftir allt írafárið vegna birtingar
skopteikninganna af Múhameð spá-
manni í Jyllands-Posten skuli yf-
irvöld í vestur-evrópsku ríki bregðast
við skopteikningu af kóngafólki með
því að fara í mál. Í fyrra tilfellinu hafi
verið vísað í málfrelsið til að verja
birtingarréttinn, í því síðara hafi
hvorki verið um að ræða hættu á því
að kynt væri undir spennu milli ólíkra
hópa, né aðför að þjóðaröryggi. Fil-
ippusi hafi ekki verið lýst sem hryðju-
verkamanni, heldur við iðju, sem vit-
að var að hann stundaði þar sem hann
ætti þegar tvö börn með konu sinni.
Einnig var spurt hví þetta mál
hefði ekki valdið uppnámi meðal mál-
svara málfrelsisins. Ef um grundvall-
aratriði – það er að einu gilti um efn-
ið, birtingin ein skipti máli – hefði
verið að ræða þegar skopmyndirnar
birtust af Múhameð í Danmörku, átti
þá ekki það sama við á Spáni? Eða
var málfrelsið afstætt eftir allt sam-
an? Reyndar var mótmælt á Spáni og
Flísast úr viðkvæmu frelsi fjölmiðla
MÁLFRELSI»
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
7
2
0
2
9