Morgunblaðið - 02.12.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2007 35
Reykjavík til að ná góðri mynd af
Fokker-vél. „Ég reikna með að
farþegarnir hafi verið orðnir
óþreyjufullir að komast út á land,“
segir hann og hlær að minning-
unni.
Það eru ekki alltaf farþegar um
borð og hefur Baldur farið í mý-
mörg ljósmyndaflug gegnum tíð-
ina. Þá segir hann Landhelg-
isgæsluna hafa verið sérstaklega
liðlega. Oft tekið sig með í þyrlu-
flug og „hent mér út á fjöllum“.
Svo myndar hann æfingar Gæsl-
unnar úr hlíðunum.
Baldur hefur ekki tölu á flug-
vélamyndunum sem hann hefur
tekið um dagana en segir þær
skipta tugum þúsunda. „Ég fór í
gegnum mestan hluta af safninu
mínu fyrir bókina og það voru hátt
í þrjú þúsund myndir í fyrsta úr-
takinu. Það segir sína sögu.“
Hann hefur lengi gengið með þá
hugmynd í maganum að gefa út
bók og færði það fyrst í tal við út-
gefendur fyrir um áratug. Því var
fálega tekið á þeim tíma.
Komdu með fleiri myndir!
„Það var svo í byrjun þessa árs
að ég átti leið framhjá húsakynn-
um Eddu útgáfu og ákvað sísona
að skella mér inn. Mér var vísað
inn á skrifstofu hjá Árna Ein-
arssyni forstjóra. Ég sýndi honum
nafnspjaldið mitt með mynd af
flugvél og spurði hvort hann hefði
áhuga á að gefa út bók með svona
myndum. Hann horfði á spjaldið
og sagði: „Þetta er athyglisvert.
Komdu með fleiri myndir!“ Ég
gerði það og nokkru síðar lá fyrir
ákvörðun um útgáfu.“
Þegar Baldur er spurður um
markhópinn gefur hann hið óræða
svar „fólkið í hlíðinni“.
Beðinn að útskýra það nánar
segir hann: „Ég gef mér að flug-
menn og flugáhugamenn hafi
áhuga á bókinni. Það segir sig
sjálft. Það er aftur á móti ekki sér-
lega stór markhópur, þannig að
hugsa þarf lengra. Í mínum huga
er markhópurinn fólkið í hlíðinni,“
endurtekur hann og flettir upp á
mynd í bókinni frá flugsýningu.
Þar er sannarlega fólk upp um all-
ar hlíðar að fylgjast með. „Ég er
að tala um fólk sem kemur á flug-
sýningar. Fólk sem dáist að formi
og eiginleikum flugvélarinnar. Síð-
an vona ég auðvitað að bókin höfði
öðrum þræði til fólks sem hefur
áhuga á ljósmyndum úr íslensku
umhverfi.“
Enda þótt bókin sé komin út er
Baldur Sveinsson hvergi nærri
hættur að mynda. „Sumir safna
bókum, aðrir frímerkjum og enn
aðrir málverkum. Ég safna mynd-
um af flugvélum. Þessi söfnunar-
árátta er ástríða. Eini munurinn á
mér og hinum söfnurunum er sá að
ég verð seint ríkur á þessu…“
McDonnell Douglas Vél bandaríska hersins í maí 1979. Myndin er tekin
meðan vél Baldurs var í svokallaðri tunnuveltu.
Mustang Breska vélin Miss Velma sem hafði hér viðkomu sl. sumar.
Þessi söfnunarárátta er
ástríða. Eini munurinn á
mér og hinum söfn-
urunum er sá að ég verð
seint ríkur á þessu…“
orri@mbl.is
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tm.is / www.tm.is
TM Ánægja
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
/
T
M
I
40
16
3
11
/0
7
Samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni
eru viðskiptavinir TM þeir ánægðustu
af viðskiptavinum tryggingafélaga,
þriðja árið í röð.
Ánægjuvog
tryggingafélaga
2007
TM SJÓVÁ VÍS
„Ekkert röfl og ekkert vesen. Ef svo illa vildi til að ég yrði
fyrir tjóni aftur þá þyrfti ég greinilega engu að kvíða
með það. Takk fyrir mjög góða þjónustu.“
Bestu kveðjur,
Guðrún Jónsdóttir og Ludwig H. Gunnarsson
„…sem sagt
fljót og góð
þjónusta!“
Ummæli fólks sem lent hefur í tjóni segja
mest um þjónustu tryggingafélaga.
Ármúla 42 · Sími 895 8966
mánudaga - föstudaga 10-18
laugard. 10-18 · sunnud. 11-17Opið
Tekynning!
Hvaða te hentar
þér best?
Svarið fæst með
Kínverskri
púlsmælingu.
Tilboð á kínverskum
listmunum til jóla
2 fyrir 1
Einnig fullt af
nýjum vörum