Morgunblaðið - 02.12.2007, Blaðsíða 25
viku verður lengi í minnum hafður
en þar var Benítez eins og véfréttin
í Delfí. Talaði vægast sagt órætt við
fjölmiðla. „Eins og endranær ein-
beiti ég mér að þjálfun liðsins og
hvers vegna ætti ég að hafa áhuga á
því að tala um aðra hluti?“ var svar
hans við fyrstu spurningunni og það
svar endurtók hann svo í sífellu,
stundum í styttri útgáfu.
Frekur til buddunnar
Í landsleikjahrinunni á dögunum
lagði Benítez upp á sitt eindæmi
drög að samkomulagi við eigendur
Argentínumannsins Javiers Masc-
heranos upp á 17 milljónir sterlings-
punda og leitaði hófanna um kaup á
landa hans, Ezequiel Garay, frá
Racing Santander á allt að 10 millj-
ónir punda. Þegar þessi tíðindi bár-
ust mönnum til eyrna í Texas þótti
Hicks nóg um og sló símleiðis á
putta knattspyrnustjórans sem
móðgaðist heiftarlega. „Það má vel
vera að Benítez hafi mislíkað inn-
grip okkar en það er tími til kominn
að hann einbeiti sér að því að vinna
mikilvæga leiki,“ sagði Hicks. Hlýj-
an drýpur ekki beinlínis af þessum
ummælum kaupahéðinsins sem er
frægur fyrir að vera harður í horn
að taka.
Rick Parry, framkvæmdastjóri
Liverpool, hefur reynt að bera
klæði á vopnin en samkipti þeirra
Benítez hafa verið spennu þrungin
síðustu daga eftir að eigendurnir
skipuðu þeim fyrrnefnda að hrifsa
budduna af knattspyrnustjóranum
áður en frekara kaupæði rynni á
hann.
Stuðningur aðdáenda
Aðdáendur Liverpool hafa upp til
hópa verið ánægðir með störf Bení-
tez og það kom glögglega í ljós í
vikunni að hann er ennþá „hinn út-
valdi“ í huga þeirra. Leikurinn gegn
Porto var öðrum þræði stuðnings-
fundur. Benítez var bersýnilega
hrærður og eftir leikinn var annað
hljóð komið í strokkinn. „Samband
mitt við þá [eigendurna] hefur hing-
að til verið gott. Nú verðum við að
setjast niður og ræða vandamálið
svo við getum haldið áfram.
Kannski er enskukunnátta mín ekki
nægilega góð? Hugsanlega er það
rót vandans? Það er alltént betra að
ræðast við augliti til auglitis í stað
þess að nota síma og tölvupóst. Það
liggur fyrir að við verðum að fara
yfir málið og átta okkur á því hvað
er best fyrir félagið. Ég er sann-
færður um að við munum reyna
það. Ég var bara að reyna að sinna
mínu starfi,“ sagði Benítez á mið-
vikudaginn en síðar kom í ljós að
þeir Parry áttu gagnlegan fund fyrr
um daginn. Benítez er því hugs-
anlega orðinn öruggari um eigið
skinn en áður.
Þar með er ekki öll sagan sögð
því á síðustu dögum hefur verið á
kreiki orðrómur þess efnis að Hicks
og Gillett séu komnir í hár saman
og sá fyrrnefndi vilji selja hlut sinn
í Liverpool. Hvorki Hicks né félagið
hafa tjáð sig opinberlega um þetta
mál en enskir vefmiðlar segjast
hafa heimildir fyrir því að Hicks
hafi brugðist ókvæða við þessum
orðrómi og tilkynnt mönnum á An-
field að hann sé síður en svo í sölu-
hugleiðingum.
Ljóst er að Benítez, Hicks og Gil-
lett verða að brjóta odd af oflæti
sínu um miðjan þennan mánuð, fara
gaumgæfilega yfir málið og setja
ágreining sinn til hliðar. Uppákom-
ur af þessu tagi eru vondar fyrir
góða ímynd eins merkasta knatt-
spyrnufélags í heimi. Leikurinn
gegn Marseille verður þá um garð
genginn og ljóst hvort Liverpool er
inni eða úti úr meistaradeildinni
þetta árið. Brottfall þaðan hefði
verulegt fjárhagstjón í för með sér.
Portúgalski skugginn
Ekki myndi tekjutap gleðja hina
bandarísku eigendur sem berjast nú
á hæl og hnakka fyrir því að tryggja
fjármögnun nýs leikvangs í Stanley
Park sem lengi hefur verið á döf-
inni. Áætlaður kostnaður við það
verkefni er hvorki meira né minna
en 400 milljónir sterlingspunda og
hefur tvöfaldast frá því Hicks og
Gillett tóku við stjórnvelinum.
Frá faglegu sjónarmiði ætti Bení-
tez að þola eina sneypuför í Evrópu,
ekkert bendir til þess að hann sé á
rangri leið með Liverpool. Þá gæti
liðið líka einbeitt sér að deildinni
heimafyrir sem það hefur ekki unn-
ið síðan 1990. Mörgum þykir tíma-
bært að það markmið verði sett á
oddinn. Hitt er annað mál að fáir
knattspyrnustjórar geta andað ró-
lega meðan José Mourinho er ennþá
á atvinnuleysisbótum. Skuggi hans
hvílir á þeim eins og mara.
Í HNOTSKURN
»Liverpool var stofnað árið1892 og er sigursælasta fé-
lagið í sögu ensku knattspyrn-
unnar, hefur m.a. unnið átján
meistaratitla, þann síðasta ár-
ið 1990.
»Rafa Benítez tók við starfiknattspyrnustjóra sumarið
2004 og gerði liðið strax fyrsta
árið að Evrópumeistara.
»Bandarísku auðkýfing-arnir Tom Hicks og
George Gillett festu kaup á fé-
laginu í febrúar á þessu ári.
Fastur fyrir Tom Hicks, annar
eigenda Liverpool.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2007 25
þar endurbirti til dæmis dagblaðið El
Mundo teikninguna til að sýna sam-
stöðu. Á Spáni muna menn þá tíma
þegar Franco var við völd, ritskoðun
var við lýði og málfrelsið takmarkað.
Þrengt að fjölmiðlum?
Þetta mál þykir bera því vitni að
þrengt sé að fjölmiðlum um alla Evr-
ópu um þessar mundir. William
Horsley, blaðamaður hjá BBC, skrif-
aði fyrir skömmu grein á fréttavef
BBC um vaxandi fjölda dæma um rit-
skoðun eða sjálfsritskoðun og rakti til
heftandi laga eða mynsturs einok-
unar á eignarhaldi fjölmiðla.
„Sum tilfellin eru eins og á Spáni
þar sem reynt er að sækja blaðamenn
til saka fyrir að brjóta lög, sem veita
vernd þeim sem eru valdamestir og
njóta mestra forréttinda í opinberu
lífi,“ skrifaði hann. „Í Rúmeníu er
nýbúið að setja lög um að blaðamenn
eigi yfir höfði sér sjö ára fangelsi ef
þeir birta myndefni, sem tekið hefur
verið á laun af stjórnmálamönnum að
taka við mútum. Þau fylgja í kjölfar
máls þar sem mynd af ráðherra að
þiggja greiðslu á laun var birt í sjón-
varpi og leiddi til afsagnar hans.
Í Frakklandi var blaðagrein, sem
skrifuð var meðan á baráttunni fyrir
forsetakosningarnar stóð um að Ce-
cilia Sarkozy, þá eiginkona Nicolasar
Sarkozys, frambjóðandans sem sigr-
aði, hefði ekki greitt atkvæði, kippt út
samkvæmt skipun frá eiganda blaðs-
ins, nánum samverkamanni nýja for-
setans.“Horsley vísar einnig til Tyrk-
lands þar sem mörg hundruð
blaðamenn hafa verið sóttir til saka
fyrir brot á lögum, sem gera refsivert
að móðga herinn eða háttsetta valda-
menn. Hinn vaxandi vandi kemur
fram í úttekt á fjölmiðlafrelsi í 20
löndum, sem nefnist Frelsið kvatt? og
kom út hjá hinum óháðu Samtökum
evrópskra blaðamanna. Þar segir að í
18 af Evrópulöndunum 20 hafi blaða-
menn átt yfir höfði sér málsókn eða
verið fangelsaðir fyrir að brjóta lög,
sem komi í veg fyrir að þeir fjalli um
mál, sem varði almannahag.
„Með því að sækja til saka og
dæma seka teiknarana, sem birtu
fyndna teikningu af spænskum prinsi
til að fá lesendur sína til að hlæja, hef-
ur aðeins meira flísast úr brothættri
súlu fjölmiðlafrelsis í Evrópu,“ skrif-
ar William Horsley.
Reuters
Aðgát skal höfð Filippus krónprins og Letizia óritskoðuð í Cordoba.
» „Gerir þú þér grein
fyrir því að ef þú verð-
ur ólétt er það það næsta,
sem ég hef komist því að
vinna allt mitt líf?“
* Ef keypt er fyrir 3.000 kr. eða meira á meðan birgðir endast.
Framtíðarreikningur Glitnis
– fyrir káta krakka með stóra drauma
• Bestu vextir sparireikninga bankans
• Verðtryggður reikningur
• Auðvelt og þægilegt að spara reglulega
• Bundinn þar til barnið verður 18 ára
Gefðu inneign á Framtíðarreikning
Glitnis og fáðu fallega Latabæjarderhúfu
í Latabæjaröskju í kaupbæti.*
Framtíðarreikning færðu í næsta útibúi
Glitnis. Það er líka sáraeinfalt að ganga
frá málinu á www.glitnir.is og fá
glaðninginn sendan beint heim.