Morgunblaðið - 02.12.2007, Blaðsíða 27
rnin
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2007 27
Kristján á Kumbaravogi var iðinn við
bréfaskriftir til að afla fjár til heim-
ilisins. Áður en starfsemin byrjaði á
Kumbaravogi 1965 varð hann sér úti
um styrk frá „háttvirtri fjárveiting-
arnefnd Alþingis til að standa straum
af stofnkostnaði við heimili á Kumb-
aravogi í Árnessýslu fyrir umkomu-
laus börn“. Kristján hafði hvorki
menntun né mannúð til að veita upp-
eldisheimili forstöðu til að sinna
fjölda niðurbrotinna barna. En hann
var búinn að kaupa Kumbaravog og
með fimm meðmælabréf upp á vas-
ann, sjálfum sér til framdráttar, sem
hann sendir Símoni Jóh. Ágústssyni,
sálfræðingi hjá Barnaverndarráði Ís-
lands. Barnaverndarráð Íslands lagði
blessun sína yfir reksturinn og
menntamálaráðuneytið gaf út starfs-
leyfi árið 1965 fyrir barnaupptöku-
heimili á Kumbaravogi. Kumb-
aravogshjónin höfðu enga menntun
hlotið, hvorki til kennslu né uppeldis-
starfa. Hvernig gátu alls ómenntaðir
einstaklingar fengið leyfi barna-
verndarnefndar til að taka að sér 14
börn? Börnin 14, sem vistuð voru á
Kumbaravogi á þessum árum, voru
öll á svipuðum aldri og komu flest af
brotnum heimilum. Á Kumbaravogi
bjuggu einnig tveir synir hjónanna
svo alls voru börnin 16 talsins.
Tveimur árum eftir að starfsemin
hófst var ráðist í viðbótarbyggingu
við gamla húsið. Sumarið 1967 skrifar
Símon Jóh. Ágústsson hjá Barna-
verndarráði: „Viðbótarbygging er
langt komin og verður tekin í notkun
með haustinu. Fást þar leikstofur og
húsnæði fyrir starfsfólk.“ Sú varð
ekki raunin. Viðbótarbyggingin var
tekin undir sérherbergi fyrir syni
eins og hann t.d. í Texas? Samkvæmt
máttvana lagabókstaf íslenskum er
Karl Vignir laus allra mála. Málin
fyrnd! Í skjóli laganna getur trú-
rækni barnaníðingurinn Karl Vignir
raulað fyrir munni sér: „Ó Jesús
kastar öllum mínum syndum á bakvið
sig/og ég sé þær aldrei meir.“
Háttvirt Alþingi
Talsvert af bréfum og skjölum hef-
ur komið í ljós á Borgarskjalasafninu
sem varðar persónulegar upplýs-
ingar fyrrverandi vistbarna og hina
ýmsu styrki til Kristjáns á Kumb-
aravogi. Í mars 1962 skrifar Kristján
bréf til Símonar Jóh. Ágústssonar hjá
Barnaverndarráði Íslands og leitar
ráða hjá sálfræðingnum. Kristján vill
fara í skóla og „læra það sem krafist
er af forstöðumönnum uppeldisheim-
ila í Danmörku sem er tveggja til
þriggja ára nám“. Í sama bréfi segir
Kristján: „En þar sem ég hef fyrir
heimili að sjá [konu og tveim drengj-
um 6 og 8 ára] en er ekki efnaður
maður, gæti ég þá fengið lán eða
styrk til slíks náms hjá öðrum að-
iljum en Menntamálaráði?“ Svo virð-
ist sem hvorki lán né styrkur hafi gef-
ist og ekkert varð úr tveggja til
þriggja ára uppeldislegu sérnámi
Kristjáns, sem starfaði um tíma hjá
Æskulýðsráði Reykjavíkur og árið
1963 félagasamtökunum Vernd. Árið
1964 festir hann kaup á Kumbaravogi
og skv. bréfum er hann farinn að leita
leiða til að fá peningastyrki og sam-
þykki Barnaverndarráðs til að stofna
og reka upptökuheimili fyrir börn.
Kristján er mikill „peningamaður“
þótt engir séu peningarnir, en það er
enginn bóndi nema hann barmi sér.
forstöðuhjónanna og sparistofu.
Sumarið 1970 var búið að byggja
annað upptökuheimili á jörðinni. Í
október 1970 biður Kristján um
aukna fjárveitingu fyrir nýja húsið:
„… Fjárveitingarnefnd Alþingis
hefur áður veitt mér styrk á fjár-
lögum, sem skylt er að þakka. Á
þessu ári var mér veittur styrkur að
fjárhæð kr. 75.000.00, en vegna mik-
illa útgjalda við að opna síðara heim-
ilið er mér mjög mikil nauðsyn á að fá
styrkinn hækkaðan í umbeðna fjár-
hæð … fer þess hér með á leit við
fjárveitingarnefnd hæstvirts Alþingis
að mér verði veittur styrkur á fjár-
lögum ársins 1971 að upphæð kr.
200.000.00 vegna stofnkostnaðar og
reksturs barnaheimilisins í Kumb-
aravogi.“
Í dag er verðgildi 75 þúsund króna
u.þ.b. 4,5 milljónir og verðgildi 200
þúsund króna er í kringum 12 millj-
ónir. Allverulegar peningaupphæðir
virðast hafa gengið til Kumbaravogs-
heimilisins í nafni meðlaga, hjálp-
arkennslu- og húsbyggingastyrkja,
fata- og peningagjafa.
26 fósturbörn
Nýbyggingin var ætluð 12 vist-
börnum því fjöldinn var kominn í 26
börn. Umsjón með þeim rekstri
höfðu hjón úr aðventistasöfnuðinum,
maðurinn kennari, sem átti m.a. að
sjá um hjálparkennslu beggja upp-
tökuheimilanna. Hugsjónin um
vernduð upptökuheimili með um-
hyggjusömum fósturforeldrum var
ákaflega falleg en fjarlæg mynd.
Upptökuheimili með fagmenntuðum
stjórnendum hefði eflaust nýst fáein-
um börnum, en ekki 14 eða 26
Harmleikur Einar Þór Agnarsson 23 ára, um ári áður en hann fannst látinn
ásamt öðrum ungum manni í bíl í Daníelsslipp í Reykjavík. Systkini hans
berjast nú fyrir að fá niðurstöðu rannsóknar á þessum harmleik í hendur.
» Hámark refsingarinnar var
þegar Einar Þór var sendur 14
ára gamall í nokkurra mánaða
„hegningarvist“ í Breiðavík.
(í sama húsi og Bílaapótek og NC Næs Connection)
Hæðasmára 4 · Kópavogur · 555 7355
Síðumúla 3 · Reykjavík · 553 7355
Ný ver
slun
Nægbílastæði
Gleðileg jól
Glæsilegar jólagjafir
M
b
l 9
25
33
1