Morgunblaðið - 02.12.2007, Page 36
kvikmyndir
36 SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Enn ein gæðamynd til viðbótar
sem sýnd var á RIFF og hlaut
tilnefningu (besti leikur og handrit),
er ísraelska gamandramað The
Band’s Visit. Aukinheldur er hún
eina myndin til viðbótar þeim tveim
fyrrgreindu sem hlaut tilnefningu
og er framleidd utan
Vestur-Evrópu.
Síðasti kóngur Skotlands The Last King of Scotland er tilnefnd sem besta myndin og McDonald besti leikstjóri.
RIFF og Græna ljósið
opna Evrópugluggann
Flestar myndirnar semhlutu tilnefningu til Evr-ópsku kvikmyndaverð-launanna hafa verið sýnd-
ar hérlendis. Það gerir gæfumuninn
að kvikmyndahátíðir og kvikmynda-
klúbbar hafa eflst verulega á und-
anförnum árum og víkkað sjóndeild-
arhringinn í austurátt og eins má
marka það á ýmsu að síðustu kvik-
myndaár hafi verið óvenju góð um
alla álfuna.
Við Íslendingar höfum lítillega
komið við sögu EFA, 1991 stóð tón-
skáldið Hilmar Örn Hilmarsson uppi
sem sigurvegari fyrir tónlistina í
Börnum náttúrunnar, Sigríður
Hagalín var tilnefnd fyrir leik í sömu
mynd og í gegnum árin höfum við
fengið einhverjar tilnefningar til við-
bótar. Ef svo heldur sem horfir þá er
ljóst að uppsveiflan sem blasir við í
íslenskri kvikmyndagerð á eftir að
skila okkur fyrr en síðar upp á hátíð-
arsviðið.
EFA eru mikilvægustu kvik-
myndaverðlaun Evrópu að BAFTA
undanskildum (sjálfsagt eru ekki all-
ir sammála), og eiga að vera mót-
vægi við Óskarsverðlaun Banda-
rísku kvikmyndaakademíunnar.
EFA, sem kennd voru við Felix
fyrstu árin, eru veitt árlega og fer
afhendingarhátíðin fram í Berlín
annað hvert ár en hitt árið í höf-
uðborgum annarra landa álfunnar,
hún var t.d. haldin í Varsjá í fyrra.
Til að byrja með naut hátíðin geysi-
legs áhorfs sem fóru dalandi þegar
kom fram á 10. áratuginn. Yfir-
bragðið var þunglamalegt og fram-
vindan löturhæg. Breytt skipulag og
áherslur hafa aukið vinsældirnar á
nýrri öld og jafnframt hafa bestu
myndirnar hlotið meiri aðsókn síðari
árin og akademían er áberandi víð-
sýnni.
Drottningin og fleiri góðkunn-
ingjar sigurstranglegir
Fátt kom á óvart þegar tilnefn-
ingarnar vegna EFA 2007 voru
kynntar á kvikmyndahátíðinni í Se-
villa í síðasta mánuði. The Queen,
opnunarmynd RIFF í fyrra, hlaut
flestar, eða sex talsins, þ.á m. sem
Besta mynd ársins og Stephen Fre-
ars fyrir besta leikstjórn. Með næst
flestar tilnefningar, eða einni færri,
er annað uppáhald íslenskra kvik-
myndaunnenda, The Last King of
Scotland, eftir Skotann Kevin
MacDonald, og var frumsýnd hér-
lendis á vegum Græna ljóssins.
Þar með er ekki öll sagan sögð,
því þrjár myndir til viðbótar af þeim
sex sem berjast um æðstu verðlaun-
in í ár, hafa þegar verið sýndar í ís-
lenskum kvikmyndahúsum. Þær
eru 4 mánuðir, 3 vikur og 2 dagar –
4 Months, 3 Weeks and 2 Days,
rúmenska Gullpálma-myndin frá
Cannes; þýsk/tyrkneska ádeilan
Himinbrúin – The Edge of Heaven,
og loks hin sjálfsævisögulega La
Vie en Rose, sem segir af lífshlaupi
franska söngfuglsins Edith Piaf og
er á almennum sýningum hér heima
um þessar mundir. Sjötta myndin
sem hlaut tilnefningu sem Besta
mynd ársins og sú eina sem enn er
ósýnd hérlendis, er franska teikni-
myndin Persepolis. Hún lítur út fyr-
ir að eiga minnstu möguleikana.
A.m.k. hafa þrjár tilnefndar
myndir til viðbótar borið fyrir augu
íslenskra kvikmyndaunnenda:
Heimsókn hljómsveitarinnar – The
Band’s Visit (Ísrael); Útlegð – The
Banishment (Rússland), og Þið, lif-
endur – You, the Living (Svíþjóð.)
Ítalska spennumyndin The
Unknown, eftir Giuseppe Tornatore
(Paradísarbíóið), hlaut tilnefningar
fyrir leikstjórn, leik og kvikmynda-
töku og kom á óvart að hún var
sniðgengin sem besta mynd ársins.
Aðeins ein önnur mynd, Perfume:
The Story of a Murderer, eftir
Þjóðverjann Tom Tykwer, hlaut
fjölda tilnefninga.
Kvikmyndaakademíunni, sem telur
1.800 meðlimi, er legið á hálsi fyrir
að einblína á Vestur-Evrópu, það
breyttist ekki í ár. Að undanskilinni
hinni rúmensku 4 mánuðir, 3 vikur
og 2 dagar, fengu aðeins tvær
myndir frá Mið- og Austur-Evrópu
tilnefningar, Banishment, eftir
rússneska leikstjórann Andrei
Zvyagintsev, og serbneska dansa-
og söngvamyndin Gucha, eftir
Dusan Milic. Við erum því á svipuðu
róli og gömlu austantjaldslöndin, en
verkin sem við lögðum fram í ár,
Mýrin og Börn, hlutu ekki náð fyrir
augum akademíunnar.
Hvort það er einhver huggun
harmi gegn, er svo allt annað mál.
Líklegir sigurvegarar
Sérfræðingar á meginlandinu
hallast sumir hverjir á að Helen
Mirren (The Queen) sé
sigurstranglegust þeirra gæða
leikkvenna sem tilnefndar eru í ár í
flokki kvenleikara. Firna sterkur
leikur Marion Cotillard sem Edith
Piaf í Rose, gæti vissulega sett strik
í reikninginn. Ben Whishaw og
James McAvoy eiga mikla
möguleika í hópi karlleikara. Ég tek
hins vegar undir með þeim sem
veðja á Sasson Gabai, sem er
eftirminnilegur í mögnuðum
leikhópi gæðaverksins The Band’s
Visit. Reyndar er gamli, góði
sjarmörinn Michel Piccoli með í
flokki tilnefndra og ekki leiðinlegt að
sjá hann vinna.
Persónulega hefði ég viljað sjá
meistaraverkið Himinbrúna meðal
bestu mynda ársins, og fara með
sigur af hólmi, en vonandi vinnur
Akin a.m.k. í öðrum flokknum sem
hann er tilnefndur.
Drottningin Ekki kom á óvart að Drottningin fékk flestar tilnefningar til
Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna árið 2007.
Líf rósarinnar La Vie en Rose segir
frá lífshlaupi Edith Piaff.
Drottningin og fleiri
góðkunningjar
íslenskra bíógesta
eru líklegir til afreka
við verðlauna-
afhendinguna í
kvöld.
Íslendingar hafa sjald-
an komið við sögu Evr-
ópsku kvikmyndaverð-
launanna (EFA) og þau
lítið verið í umræðunni
hérlendis. Ástæðurnar
má m.a. rekja til þess
að við höfum sárasjald-
an haft tækifæri til að
kynnast þeim útvöldu
af eigin raun. Sæbjörn
Valdimarsson komst
að raun um að því er
öðruvísi farið í ár.
4 mánuðir, 3 vikur og 2 dagar Rúmönsk kvikmynd sem hefur vakið athygli víða um heim og hreppti Gullpálmann í Cannes.
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin
Reuters