Morgunblaðið - 02.12.2007, Side 54
54 SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA
Á
aðventu og jólum eru
ýmsir góðir og fagrir
siðir, venjur og hefð-
ir sem við fylgjum ár
eftir ár og berum
þannig áfram til næstu kynslóðar,
án þess kannski að vita alveg
hvaðan það allt er runnið. Eftir-
farandi samantekt ætti þá að
koma að gagni.
Aðventukransinn
Aðventukransinn á uppruna
sinn í Þýskalandi. Hið sígræna
greni táknar lífið sem er í Kristi
og hringurinn táknar eilífðina.
Fyrsta kertið nefnist spádóma-
kertið og minnir á fyrirheit spá-
manna Gamla testamentisins er
höfðu sagt fyrir um komu frels-
arans. Annað kertið nefnist Betle-
hemskertið. Þar er athyglinni
beint að þorpinu sem Jesús fædd-
ist í og þar sem ekkert pláss var
fyrir hann. Þriðja kertið nefnist
hirðakertið en snauðum og
ómenntuðum fjárhirðum voru
sögð tíðindin góðu á undan öllum
öðrum. Fjórða kertið nefnist síð-
an englakertið og minnir okkur á
þá sem báru mannheimi fregn-
irnar. Önnur heiti eru (í sömu röð)
kerti vonarinnar, kærleikans,
gleðinnar og friðarins. Undanfari
aðventukransins voru stjakar
með fjórum kertum, sem tendrað
var ljós á, einu af öðru, á sunnu-
dögum jólaföstunnar.
Englahár
Sagt er að kona nokkur, sem
unnið hafði af kappi að undirbún-
ingi jólanna, hafi á aðfangadags-
kvöld uppgötvað sér til mikillar
skelfingar, að jólatréð hennar var
þakið köngullóarvef. Og mædd
gekk hún því til sængur. En
næsta morgun hafði Kristur
breytt köngullóarvefnum í glitr-
andi englahár.
Jatan
Heilagur Franz frá Assisi, sem
uppi var á 12. og 13. öld, tók upp á
því að setja fæðingu Jesúbarnsins
á svið í minnkaðri útgáfu í kirkju
sinni. Fyrst í stað tíðkaðist þessi
skreyting aðeins í Guðs húsum en
síðar inni á heimilum fólks líka og
er hún ómissandi þáttur víða,
einkum meðal kaþólskra.
Á gömlum myndum af jólafrá-
sögunni má sjá að barnið liggur á
hveitistráum og knippi er þar á
gólfi. Er það vísun í altarissakra-
mentið. Stundum er jatan nánast
sýnd eins og altari. Nautið var
tákn Gyðinga, tákn fórnar, styrks
og þolgæðis, asninn tákn heiðingj-
anna en líka auðmýktarinnar. Í
helgisögunni vermdu þau dýr
sveininn nýfædda með því að
blása á hann.
Jólaklukkur
Klukkur hafa alltaf verið og eru
enn eitt höfuðtákn jólanna. Í ýms-
um löndum Evrópu er það siður
að hringja dánarhringingu í
kirkjum í eina stund á aðfanga-
dagskvöld og á það að merkja, að
hinn vondi (myrkrahöfðinginn) sé
allur. Á miðnætti er svo hátíðar-
hringing til að fagna Kristi.
Jólaljósin
Ljósadýrð er óaðskiljanlegur
hluti þessa tíma. Mun kristnin í
því efni hafa þegið ýmislegt frá
ljósahátíð gyðinga. Á miðöldum
var það siður með Ítölum og Bret-
um að gefa kerti á jólunum. Á Ír-
landi settu menn þau í gluggakist-
ur til að lýsa Jesúbarninu og
Maríu Guðsmóður. Á Norður-
löndum voru þau höfð á jólakök-
unni.
Jólagjafir
Á hátíð sem Rómverjar efndu
til 17.-24. desember árlega til
heiðurs guðinum Satúrnusi gáfu
þeir hver öðrum gjafir, og oft er
því haldið fram að kristnir menn
hafi tekið upp þann sið á jólahá-
tíðinni. Þó er rétt að minna á vitr-
ingana í þessu sambandi, og í
raun algjör óþarfi að leita skýr-
inga í öðru.
Jólakort
Jólakort komust fyrst í tísku
skömmu fyrir miðja 19. öld í Eng-
landi, en menn greinir á um upp-
hafið. Ein hugmyndin er sú, að
ræturnar sé að finna í jólaljóðum
sem börn rituðu á arkir og
skreyttu með teikningum úr fæð-
ingarfrásögunni.
Jólasöngvar
Sálmar hafa ætíð verið snar
þáttur í jólafagnaðinum, en heil-
agur Franz er sagður hafa átt
upptökin að því að ýmiss konar
jólasöngvar fóru að tíðkast. Það
var skoðun hans að menn ættu að
njóta gleðskapar í hófi á jólunum.
Söngvarnir voru að megninu til
léttir, enda sniðnir eftir frönskum
danskvæðum.
Jólatréð
Vinsælasta tákn jólanna er til-
tölulega ungt að árum. Heimildir
virðast fyrst geta um sérstakt tré
við jólahald árið 1510, í Riga í
Lettlandi. En árið 1807 voru
fullbúin jólatré til sölu á markaði í
Dresden í Þýskalandi. Greinilegt
er, að siðurinn var þá búinn að ná
öruggri fótfestu þar um slóðir.
Hann fór svo að berast til
Norðurlanda eftir 1800. Til Ís-
lands munu fyrstu jólatrén hafa
komið um 1850, í kaupstaði, og
voru þau aðallega hjá dönskum
fjölskyldum.
Fjölmargar sagnir eru um til-
komu jólatrésins. Ein er á þá leið,
að barn hafi knúið dyra í fátæku
hreysi á aðfangadagskvöld. Íbú-
arnir tóku því vel og gáfu að
borða. Næsta morgun heyrðist
englasöngur og Kristur birtist í
dýrð sinni. Hann braut grein af
tré, setti í jörð og lét svo ummælt,
að það sem upp af henni yxi
myndi bera ávöxt á jólum hvert ár
þaðan í frá. Jólatré voru í fyrstu
eingöngu skreytt hnetum og epl-
um og þvíumlíku.
Jólasiðir
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Aðventan er byrjuð og
landsmenn í óðaönn að
undirbúa komu fæðing-
arhátíðar meistarans.
Sigurður Ægisson er af
því tilefni með fróðleik
um nokkra jólasiði og til-
urð þeirra, sem er flest-
um vonandi til upplýs-
ingar og gleði á þessum
bjarta og dýrlega tíma.
MINNINGAR
Kæri afi, í dag hefð-
irðu orðið 68 ára. Mik-
ið söknum við þess að
heyra í þér hláturinn
og fá heimsóknir frá þér.
Henning Frederiksen
✝ Henning EmilFrederiksen
fæddist í Søvang í
Køge í Danmörku 2.
desember 1939.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Suðurlands 3.
júní síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Stokkseyrar-
kirkju 9. júní.
Það er skrítið að
hugsa til þess að þessi
jól verður þú ekki hér,
þú átt ekki eftir að
koma í heimsókn seint
á aðfangadagskvöld
eins og þið amma
gerðuð alltaf.
Þú varst svo góður
elsku afi, svo góður við
alla og gerðir aldrei
upp á milli neinna.
Vildir alltaf hjálpa
ef eitthvað bjátaði á og
varst alltaf til staðar
fyrir okkur.
Þín er sárt saknað.
Minning þín lifir í hjörtum okkar.
Afmæliskveðjur
Ösp.
Afi minn var bestur,
hann var allra manna
mestur,
svo góður og gjafmildur
hann var líka svo bros-
mildur.
Hann hafði mikinn áhuga
á fiskum,
en ekki mikinn á diskum.
Afi minn var bestur
og allra manna mestur.
Afmælis- og sakn-
aðarkveðjur
Eygerður.
HINSTA KVEÐJA
✝ Gunnar Rík-harður Gunn-
arsson fæddist á
Hofi í Dýrafirði 5.
ágúst 1924 og ólst
þar upp til sextán
ára aldurs, síðan lá
leið hans til
Hafnarfjarðar.
Hann andaðist 14.
nóvember á
Hjúkrunarheimil-
inu Sóltúni í
Reykjavík.
Foreldrar hans
voru hjónin Gunnar
Guðmundsson bóndi á Hofi í
Dýrafirði, f. 30.5. 1898, d. 23.10.
1987, og Guðmunda Jóna Jóns-
dóttir, f. 19.10. 1905, d. 21.10.
1991. Faðir Gunnars Guðmunds-
sonar var Guðmundur Einarsson
refaskytta, fæddur á Hegg-
stöðum í Lundarreykjadal 19.7.
1873, d. 21.7. 1964. Móðir Gunn-
ars Guðmundssonar var Katrín
Gunnarsdóttir húsfreyja, fædd í
Gullberastaðaseli hinn 20.5. 1865,
d. 8.8. 1944 í Hafnarfirði. Faðir
Guðmundu Jónu Jónsdóttur var
Jón Guðmundsson, smiður og
bóndi á Kirkjubóli í Valþjófsdal,
f. 21.10. 1854 í Grafargili í
Kirkjubólsdal í Önundarfirði, d.
27.10. 1933, móðir Guðmundu var
Marsibil Guðbjörg Kristjáns-
dóttir, f. 22.10. 1869 á Innri-
Veðrará, Mosvallahreppi við Ön-
undarfjörð, d. 22.1. 1954. Systkini
Gunnars voru níu: Jón bóndi á
Þverá, f. 8.8. 1921, d. 6.3. 1991,
Guðmunda Steinunn húsmóðir, f.
1.3. 1923, Guðmundur Aðalsteinn,
f. 17.4. 1926, d. 15.6. 1927, Aðal-
maki Sigfúsar Ólafs er Erny
Hastudy Sigurðsson, f. 1.4. 1976,
og eiga þau börnin Brandon
Gunnar, f. 28.5. 2000, Jason Syl-
veríus, f. 14.9. 2001, og Tristan
Ólaf, f. 14.4. 2004. Eyþór Sig-
urðsson, f. 16.1. 1974, maki Helga
Torvik, f. 22.3. 1975, börn þeirra
eru Steinar Torvik, f. 25.7. 2001,
Katrín Torvik, f. 9.1. 2004, og
Sindri Torvik, f. 9.10. 2007. Ólöf
Sigurborg Sigurðardóttir, f. 1.12.
1982, maki Björn Heiðar Þórð-
arson, f. 19.11. 1980, börn Freyja
Líf, f. 25.1. 2001, og Embla Sól, f.
11.7. 2005. Barnabörn Gunnars
Ríkharðar og Ólafar Sigurborgar
eru fjögur og barnabörnin eru
tólf.
Gunnar Ríkharður ólst upp á
Hofi í Dýrafirði til 16 ára aldurs.
Þá fór hann til Hafnarfjarðar til
föðursystur sinnar, Herdísar í
Kassahúsinu. Dvaldi hann hjá
henni og vann á togurum. Eftir
þennan tíma lá leið hans til
Reykjavíkur þar sem hann dvaldi
hjá móðurömmu sinni, Marsibil
Guðbjörgu, á Grettisgötu. Þar
kynntist hann Ólöfu sinni. Gunn-
ar Ríkharður stundaði nám í Iðn-
skólanum þar sem hann lauk bif-
reiðasmíði árið 1957 sem dúx og
voru honum veitt heiðursverð-
laun í tilefni þess. Einnig lauk
hann bílamálun 1964. Á efri árum
fór hann á nýjan leik í Iðnskól-
ann og lærði tréútskurð hjá Matt-
híasi Andréssyni og árið 1994
lærði hann trérennismíði hjá fé-
lagi trérennismiða. Ólöf Sigur-
borg og Gunnar Ríkharður fóru
fyrst að búa á Seljavegi í Reyja-
vík, fluttu síðar á Grettisgötu í
Reykjavík og byggðu sér síðan
heimili í Litlagerði 8 í Reykjavík
þar sem þau bjuggu allan sinn
búskap.
Jarðarför Gunnars fór fram í
kyrrþey í Fossvogskapellu þann
23. nóvember síðastliðinn.
steinn vélsmiður, f.
2.3. 1928, Björgvin
Hofs bifvélavirki, f.
23.11. 1931, Marsibil
Anna Guðrún hús-
móðir, f. 22.2. 1933,
Katrín húsmóðir, f.
25.1. 1941, og Krist-
ján vélsmiður, f.
19.5. 1943.
Gunnar Ríkharður
kvæntist 15.9. 1945
Ólöfu Sigurborgu
Sylveríusdóttur, f.
6.7. 1921, d. 2.10.
2001. Foreldrar
Ólafar Sigurborgar voru hjónin
Sylveríus Hallgrímsson, f. 20.6.
1988 á Staðarfelli í Dölum, d.
13.4. 1977, og Helga Kristjáns-
dóttir, f. 6.2. 1887 í Reykjavík, d.
6.8. 1979. Gunnar Ríkharður og
Ólöf Sigurborg eignuðust fjögur
börn, þar af fæddist fyrsta barn
þeirra andvana, síðan komu þrjár
dætur: 1) Sylvía Gunnarsdóttir, f,
29.12. 1942, d. 19.6. 1993, maki
Kristinn G. Bjarnason, f. 4.1.
1942. Sonur þeirra er Gunnar
Ríkharður Kristinsson, f. 15.2.
1965, börn hans Róbert Már, f.
15.9. 1990, Kristinn Aron, f. 9.12.
1992, og Gunnar Ríkharður, f.
14.1. 1999. 2) Katrín Gunn-
arsdóttir Trotter, f. 15.10. 1948,
maki Haynie F. Trotter. 3) Björg
Gunnarsdóttir, f. 20.1. 1951, maki
Sigurður Gylfi Sigfússon, f. 19.3.
1950, börn þeirra eru Sigfús
Ólafur Sigurðsson, f. 14.12. 1969.
Fyrrverandi maki hans Denise
Marie Sigurðsson og áttu þau
einn dreng, Ryland Gylfa Sig-
urðsson, f. 6.9. 1996. Núverandi
Nú ertu lagstur liðinn,
ljúfasti faðir minn.
Alsælan fær nú friðinn,
fríðastur andi þinn.
Leystur frá lífsins mæðu,
ljómar þú fegri sól.
Hjá guði á himnahæðum,
hefur þú eilíft skjól.
(G.T.)
Elsku hjartans pabbi minn. Nú
ertu kominn til mömmu og Sillu syst-
ur. Við misstum svo mikið þegar
mamma dó. Söknuðurinn frá hjarta
þínu var svo mikill, þú sagðir við mig:
„Ég man mömmu enn og mun aldrei
gleyma henni.“ Þú varst aldrei sátt-
ur, elsku pabbi minn, það var svo sárt
að sjá þig svona dapran. Elsku pabbi
minn, nú eruð þið saman á ný og nú
líður þér vel, elsku hjartans pabbi
minn.
Elsku pabbi minn, mikið var ég
glöð þegar ég kom til þín um morg-
uninn og Þorbjörg sat og hélt í hönd-
ina á þér. Hún var svo hlý og góð við
þig. Svo áttum við góða stund til að
tala saman.
Guð sá að þú varst þreyttur
og þrótt var ekki að fá,
því setti hann þig í faðm sér
og sagði: „Dvel mér hjá“.
Harmþrungin við horfðum
þig hverfa á annan stað,
hve heitt sem við þér unnum
ei hindrað gátum það.
Hjarta, úr gulli hannað,
hætt var nú að slá
og vinnulúnar hendur
verki horfnar frá.
Guð sundur hjörtu kremur
því sanna okkur vill hann
til sín hann aðeins nemur
sinn allra besta mann.
(Þýtt Á.Kr.Þ.)
Við komum um morguninn í Sóltún
og þú varst farinn frá okkur og allt
var svo tómt en allt samt svo gott því
englarnir sendu okkur stuðning. Það
voru þau Pálína hjúkrunarfræðingur
og Jón djákni. Þau veittu okkur
stuðning, við töluðum saman og átt-
um svo góða stund, sem var svo inni-
lega góður stuðningur og allir sem
komu veittu okkur stuðning þennan
morgun.
Þú heyrir spurt: Er hjálp að fá
og hvar er ljós og dag að sjá?
Ef hjartað týnir sálfu sér
hvar sé ég leið, hver bjargar mér?
Þú heyrir svar ef hlustar þú
af hjartans þörf, í barnsins trú
því Kristur Jesús þekkir þig
og þú ert hans, hann gaf þér sig.
(Sigurbjörn Einarsson.)
Elsku Pálína, Þorbjörg og Jón
djákni. Innilegar þakkir fyrir mig og
pabba. Öllu starfsfólki á Sóltúni færi
ég innilegustu þakkir fyrir veittan
stuðning.
Elsku pabbi og tengdapabbi,
Við kveðjum þig með þessu ljóði:
Hér er svo dapurt inni, –
ó, elsku pabbi minn,
ég kem að kistu þinni
og kveð þig hinsta sinn.
Mér falla tár af trega
– en treginn ljúfsár er –
svo undur innilega
þau einmitt fróa mér.
Ég þakka fræðslu þína
um það, sem dugar best,
er hjálpráð heimsins dvína,
og huggað getur mest.
Þú gekkst með Guði einum
og Guði vannst þitt starf,
hið sama af huga hreinum
ég hljóta vil í arf.
Nú ertu farinn frá mér,
en föðurráðin þín,
þau eru ávallt hjá mér
og óma blítt til mín:
Guðs orðum áttu að trúa
og ávallt hlýða þeim,
það mun þér blessun búa
og ber þig öruggt heim.
(B.J.)
Guð geymi þig, elsku pabbi minn,
Þín dóttir,
Björg Gunnarsdóttir.
Látinn er Gunnar R. Gunnarsson
bílasmiður á 84. aldursári. Gunnar
Gunnar Ríkharður
Gunnarsson