Morgunblaðið - 02.12.2007, Síða 66
...grætur yfir senunni
þegar Chewbacca
setur C-3PO aftur saman í
The Empire Strikes back... 73
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„ÉG OG mitt góða samstarfsfólk er-
um undir jákvæðu álagi vegna þessa
góða gengis,“ segir Björgvin Hall-
dórsson. Að fylla Laugardalshöllina
þrisvar á örskotstund verður að telj-
ast dálaglegt afrek. „Fyrst og fremst
er ég þó fullur þakklætis í garð þess
fólks sem er að bera sig eftir þessu.
Sinfóníutónleikarnir í fyrra gengu
vonum framar og við erum að streit-
ast við að toppa okkur með þessum
tónleikum. Einhvers staðar segir að
maður sé bara jafngóður og síðasta
gigg.“
Undirbúningur fyrir tónleikana er
nú í fullum gangi og upplýsir Björg-
vin að Björn G. Björnsson (stórvinur
og fyrrum meðlimur Savanna tríós-
ins) leggi nótt sem nýtan dag við að
útbúa sviðið fyrir tónleikana.
„Auk gesta sem syngja með mér
verða þarna strengjasveit, stórsveit,
gospel-, karla- og barnakór, auk ann-
arra hljóðfæraleikara. Þannig að það
er heilmikið um að vera á sviðinu.
Trikkið við þetta er að búa til í senn
hátíðlega og heimilislega stemningu.
Þau sem syngja með mér eru annars
þau Raggi Bjarna, Stefán Hilmars-
son, Sigga Beinteins, Helgi Björns,
Svala, Friðrik Ómar, Edgar Smári,
Björgvin Franz, Erna Hrönn, Bjarni
Ara og Eyfi.“
Það er svo annar stórvinur Björg-
vins og samstarfsmaður til margra
ára, Þórir Baldursson, sem útsetur
lögin fyrir tónleikana en hljóm-
sveitin er skipuð þeim Þóri, Eyþóri
Gunnarssyni, Þóri Úlfarssyni, Tatu
Kantoma, Kristjáni Grétarssyni,
Einari Scheving, Róberti Þórhalls-
syni, Matthíasi Stefánssyni og Vil-
hjálmi Guðjónssyni. Í vikunni kemur
svo út ný jólaplata, Jólagestir 4, þar
sem Björgvin syngur ásamt góðum
gestum. Á sama tíma koma eldri
plöturnar þrjár, sem komu út fyrir
allmörgum árum, út í sérstakri við-
hafnarútgáfu.
Jólakúlur á ítölsk lög
Á Jólagestum 4 fara saman lög
sem eru gædd hátíðarbrag og svo lög
sem eru bundin í dægurlagaformið.
Það er sérstök list að blanda í svona
plötur, að sögn Björgvins. „Ég er
alltaf að búa til plötur,“ segir hann.
„Ég er með möppur inni á tölvunni
minni þar sem ég er raða lögum sam-
an, og leita um leið að jafnvægi. Ég
byrja þessa nýju plötu dálítið bratt,
með laginu Við vöggu í Betlehem („A
Cradle In Bethlehem“) sem Nat
King Cole gerði frægt á sínum tíma.
Ég fékk eðaltextasmiði í lið með mér,
þá Jónas Friðrik, Stefán Hilmarsson
og Friðrik Erlings, en mér finnst slík
vinna skipta miklu máli hvað svona
lagað varðar.“
Björgvin segist hafa sungið öll þau
lög sem plötuna prýða ótt og títt
undanfarin ár og rifjar upp að upp-
runalega hugmyndin að Jólagesta-
plötunum hafi kviknað á Ítalíu.
„Ég er gríðarlega mikill aðdáandi
Ítalíu. Og þegar ég fer þangað skil
ég sviðakjammann við mig. Ég reyni
eins og ég get að samlagast stemn-
ingunni úti. „When in Rome,“ eins og
sagt er. En þar sem ég er þar úti fer
ég að pæla í þessum ítölsku dægur-
lögum og það er eitthvað við þau, há-
tíðlegar melódíur sem höfðuðu til
mín. Þannig að þegar heim var kom-
ið prófaði ég að „jóla“ þau aðeins
upp, hengja kúlur á þau og þau tóku
vel við slíkri meðferð.“
Á plötunni nýju eru svo nokkur
kántrískotin lög, en Björgvin hefur
löngum verið hallur undir þá eðlu
tónlist. Þess má geta að Paul Frankl-
in, einn eftirsóttasti stálgítarleikari
heims, spilar inn á þau lög. „Ég hef
alltaf notast við BJ Cole,“ segir
Björgvin. „En hann sagði alltaf við
mig að ég ætti að fá Paul í þetta.
Hann væri bestur.“
Þetta er í fyrsta skipti sem Björg-
vin heldur sérstaka jólatónleika og
stefnt er að því að gera þá að hefð.
„Undir niðri er líka smá tilefni en
það eru fjörutíu ár síðan ég byrjaði
fyrst í hljómsveit. Hugsaðu þér það
… okkur þótti því við hæfi að marka
það með einhverjum hætti.“
En hvað einkennir hið fullkomna
jólalag?
„Ef ég vissi það þá væri ég í góð-
um málum,“ svarar Björgvin og
hlær. „Og kannski slæmum líka.
Gott jólalag verður að búa yfir ein-
hverjum óræðum töfrum. Það verður
að hafa visst innihald, vissa lykt jafn-
vel. Þegar þú heyrir fyrstu tónana í
„White Christmas“ með Bing
Crosby, bara blábyrjunina, þá ertu
umsvifalaust kominn á einhvern
stað. Lagið kveikir ljós og veitir
hlýju inn í herbergið. Þegar þú heyr-
ir „The Christmas Song (Chestnuts
Roasting on an Open Fire)“ með Nat
King Cole þá er bara kominn arinn
inn í stofu til þín.“
En hvað er það sem veldur því að
eftir öll þessi ár í „bransanum“ virð-
ist Björgvin aldrei hafa verið vin-
sælli?
„Ég veit ekki hvað þetta er,“ segir
Björgvin. „Kannski á ég einhverja
innistæðu. Það borgar sig oftast að
velja verkefnin vel, segja oftar nei en
já, og þá er eins og maður eigi meira
inni á bókinni. En ég hef verið af-
skaplega heppinn með samstarfsfólk
í gegnum tíðina og það er góður andi
í hópnum. Já, ég verð bara að segja
það, mér finnst ég vera í svaka stuði
um þessar mundir og ég er strax far-
inn að hugsa fram í næsta ár. Þá ætla
ég að vinna nýja sólóplötu með nýju
efni.“
Á næsta ári mun Björgvin einnig
halda sannkallaða stórtónleika í
Kaupmannahöfn, sumardaginn
fyrsta, hinn 24. apríl. Þar mun hann
m.a. njóta fulltingis strengjasveitar
Sinfóníuhljómsveitar Konunglegu
Óperunnar í Kaupmannahöfn. Einn
af gullmolunum úr sagnabanka
Björgvins er að það sé ekki „gó fyrr
en Bó segir gó“. Það er því heldur
betur gó á næsta ári.
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON HEFUR HAFT SÖNG-
INN AÐ ATVINNU Í 40 ÁR EN HEFUR LÍKLEGA
ALDREI ÁTT MEIRI VINSÆLDUM AÐ FAGNA EN
EINMITT NÚ. „ÞAKKLÆTIÐ ER MÉR EFST Í
HUGA,“ SEGIR ELVIS ÍSLANDS.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Bó „[M]ér finnst ég vera í svaka stuði um þessar mundir og ég er strax farinn að hugsa fram í næsta ár.“
GÓÐA VEISLU
GJÖRA SKAL …
»Fæddur 16. apríl 1951 og ólstupp í Hafnarfirðinum þar sem
hann býr í dag. Björgvin á fjögur
systkini, tvo bræður og tvær systur.
»Kona er Ragnheiður BjörkReynisdóttir. Saman eiga þau
Svölu og Odd Hrafn eða Krumma.
Björgvin á son frá fyrra sambandi,
Sigurð Þór.
»Fyrir fjörutíu árum ákvað hannað sýna hljómsveitinni Bendix
hvernig „ætti að gera þetta“. Hann
hefur ekki hætt að syngja síðan.
»Björgvin söng síðan með Flo-wers en stofnsetti svo Ævintýri.
Sem söngvari þeirrar sveitar var
hann kosinn poppstjarna ársins árið
1969, þá átján ára.
»Brotin framtönn Björgvins þóttiflott á þessum tíma, svo flott
reyndar að tannlæknar höfðu ekki
við að brjóta tennurnar á forföllnum
aðdáendum sem vildu líkjast goðinu
sem mest.
»Björgvin heitir fullu nafni Björg-vin Helgi Halldórsson og það
skýrir nafn HLH-flokksins sem
hann stofnaði með þeim Halla og
Ladda. Halli, Laddi … og Helgi.
»Hinar frægu Bo-sögur og setn-ingar og tilvitnanir eignaðar
Björgvini eru einslags nútíma goð-
sögur, og sumt af því sem hrokkið
hefur upp úr honum hefur tekið sér
bólfestu í tungumálinu.
»Börn Björgvins, þau Krummi ogSvala, eru og tónlistarmenn.
Svala syngur í dag með rafpopp-
sveitinni Steed Lord en Krummi er
bæði í rokksveitinni Mínus og
kántríbandinu Esju.
»Uppselt varð á þrenna tónleikaBjörgvins með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands í Laugardalshöll í
fyrra. Björgvin lék sama leikinn nú
með jólatónleika – utan að það seld-
ist hraðar upp í þetta sinnið.
»Björgvin hefur tekið þátt í gerðfleiri tuga hljómplatna í gegnum
tíðina, bæði með hljómsveit og svo
einn. Samanlögð sala hleypur á fleiri
tugum þúsunda eintaka, t.d. seldist
upptaka með honum og Sinfóníu-
hljómsveitinni sem út kom fyrir jólin
í fyrra í tæpum tuttugu þúsund ein-
tökum.
Bó í tíma
og rúmi
Fjölskyldumaður Björgvin Hall-
dórsson ásamt börnum sínum Svölu
og Oddi Hrafni seint á níunda ára-
tug síðustu aldar.