Morgunblaðið - 14.06.2008, Side 24

Morgunblaðið - 14.06.2008, Side 24
Morgunblaðið/Frikki Litlar tær Þessi vinalegi pönkari er af loðhamstrakyni. Honum þótti athyglin ekki leiðinleg. Vinkonur Erla Mekkín, Sandra Sjöfn, Ásta Katrín, Gígja Björg, Hólmfríður og Sara Helena hittast með stóran hóp af vinalegum loðdýrum tvisvar í mánuði. Eftir Guðrúnu Huldu Pálsdóttur gudrunhulda@mbl.is Við þekktumst fæstar, en kynntumstí gegnum dýraspjall og erum núallar orðnar vinkonur,“ segir ErlaMekkín Jónsdóttir, 12 ára hamstraræktandi. Fyrsti „hittingurinn“ var haldinn fyrir um hálfu ári þegar nokkrar stelpur og hamstrarnir þeirra komu saman. Hópurinn fer þó ört stækkandi með hverj- um fundi og nú er svo komið að margir tugir hamstra og nokkrar kanínur mæta á hvern fund með eigendum sínum. „Það er gaman að hitta aðrar stelpur með sama áhugamál. Á fundunum skoðum við dýrin, sjáum hvernig þau þroskast og deilum reynslusögum og þekkingu,“ segir Ásta Katrín Viggósdóttir, 13 ára hamstra- og kanínueigandi. Að sögn stelpnanna eru hamstrar og kan- ínur góð og skemmtileg gæludýr ef natni er lögð í uppeldið. „Ég tek hamstrana úr búrinu tvisvar á dag. Þannig kynnast þeir mér vel en hamstrar eiga það til að verða svakalega háð- ir eigendum sínum.“ Stelpurnar segja hamstra og kanínur mikla persónuleika, sum séu einfarar en önnur séu afskaplega fé- lagslynd. Þær segja lítið þurfa að hafa fyrir hömstrum og kanínum. „Við pössum að dýrin hafi alltaf nóga fæðu og þrífum búrin þeirra einu sinni í viku,“ segir Ásta Katrín. Ásta Katrín og Erla Mekkín láta sér ekki gæludýraeign nægja heldur standa í ströngu við hamstraræktun. „Við þurfum að sjá til þess að pörunin eigi sér stað en síðan sjá mömmurnar alfarið um ungana sína þar til þeir eru orðnir nógu stórir til að eignast ný heimili,“ segir Ásta Katrín. „Það sem gerir hamstraræktun auðvelda og skemmtilega er að meðgöngutími hamstra er stuttur. Við þurfum því ekki að bíða óþreyjufullar eftir ungunum. Ræktunarmarkmið okkar er að- allega að ná fram sem flestum litum, við reynum því að para saman hamstra með ólíka liti,“ segir Erla Mekkín. Stelpurnar halda báðar úti veglegum heimasíðum kringum ræktun sína með al- mennum upplýsingum um hamstra og frétt- um af ræktuninni. „Við auglýsum og seljum ungana gegnum heimasíðurnar og dýra- spjallið,“ segir Erla Mekkín. Stelpurnar segja að nokkur eftirspurn sé eftir hömstrum frá þeim. „Samt sem áður finn ég að mark- aðurinn er að mettast, áður var ég með bið- lista eftir hömstrum en núna er aðeins erf- iðara að koma þeim á heimili,“ bætir Ásta Katrín við. „Hamstrahittingar“ kallast reglulegar samkundur telpna sem kynntust á dýraspjallsíðu á netinu. Þær vita fátt skemmtilegra en að eyða tíma með litlum loðdýrum og mannlegum nagdýravinum. Harðduglegir hamstraræktendur Skór sem syngja, skór sem brosa og skórsem dansa í hring. Sumarið er tími gleðiog sumarskórnir í ár standa einmitt fyrirþað. Skótískan í sumar er hönnuð til að vekja athygli. Æpandi skærir glanslitir víkja fyrir uppbroti á formum og sérkennilegu útliti. Litirnir eru heitir og mjúkir, og eru rauðir tónar í fyrirrúmi. Skótískan endurspeglar að við eigum að láta okkur líða vel í sumar, þægindin eru færð framar í forgangsröðunina. Táin er ávalari en ella og hæll- inn lægri. Skrautið er leikandi, munstrið áberandi, reimar á þvers og kruss og krúttlegar slaufur toppa allt saman. Litfagurt par af þægilegum skóm er nokkuð sem konur ættu að láta eftir sér fyrir garðveislur, brúðkaup eða tilefnislausa göngu í góðu veðri. Nóg er úrvalið fyrir konur sem syngja, konur sem brosa og konur sem dansa í hring. gudrunhulda@mbl.is Frakkir Silfraðir með skemmtilegum hæl. Fást í Trippen á 25.900 krónur. Syngjandi sumarskór Leikandi Þægilegir í miðbæjarráf. Fást í Trippen á 23.000 krónur. Krúttlegir Grænir og skrautlegir frá Wond- ers. Fást í Iljaskinni á 10.990 krónur. Rauðköflóttir Camper-skór með litríkum tölum. Fást í Kron á 13.990 kr. |laugardagur|14. 6. 2008| mbl.is daglegtlíf  Hamstrar geta lifað í allt að 12 ár. Algeng ævilengd er þó þrjú til sex ár.  Algengustu tegundir hérlendis eru dverghamstrar og gullhamstrar.  Hamstrar eru næturdýr. Þeir at- hafna sig á næturnar og sofa á daginn.  Meðgöngutími hamstra er 16-18 dagar.  Fjórir til átta hamstraungar fæðast í hverju goti. Heimur hamstranna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.