Morgunblaðið - 14.06.2008, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.06.2008, Blaðsíða 25
Djarfir Grænir og glæsilegir frá Chie Mihara. Fást í Kron á 28.900 krónur. Dömulegir Smekk- legir fyrir garðveisl- una eða brúðkaupið. Fást í Iljaskinni á 11.990 krónur. tíska MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 25 Kvæðamannafélagið Iðunnstendur fyrir lautarferð í Heiðmörk á sunnudagskvöld og er mæting kl. 20 við Maríuhella, sem eru rétt innan við hliðið að Heiðmörk, það sem snýr að Vífilsstöðum. Ekki aðeins verður trjálundur sem félagsmenn hafa komið upp skoðaður, því „skógarþröstur einn hefur gert sér hreiður á þúfu við lundinn góða. Enginn skyldi ætla að þrösturinn verði hljóður meðan kvæðamenn kveða, heldur má búast við samkveðskap þrasta og manna í þetta skiptið og verður það heimsviðburður“. Rétt er að gefa Iðunnarfélagan- um Jóni Ingvari Jónssyni orðið: Harður vetur vori mein vann og færði í hlekki. Fallegt blað á birkigrein brumið verður ekki. Þá kveður sér hljóðs hin síunga Bjargey Arnórsdóttir: Þegar að klemmu kemst ég í og klúður stór að vanda, ég gái hvar helst er húllirí og heppilegt að stranda. Og Iðunnarformaðurinn Steindór Andersen: Algerlega orðinn blankur um hef margt að kvarta, eldsneytis er tómur tankur tekur vart að starta. Að síðustu Ragnar Böðvarsson: Núna hefur vorið völd og víst er það að um það verður ort í kvöld, eða hvað? VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is Heimsviðburð- ur Iðunnar Þetta er þægileg förðun sem hentar nútímakon-unni mjög vel. Í henni eru fáar vörur notaðar áeinfaldan hátt til að draga fram það besta í and-liti hverrar konu,“ segir Björg Alfreðsdóttir, förðunarmeistari og verslunarstjóri MAC í Debenhams, um förðunina á vinkonunum fjórum í kvikmyndinni Beð- málum í borginni. Björg segir að aðalförðunarfræðingur Söruh Jessicu Parker í kvikmyndinni hafi lagt upp með að draga fram náttúrulega fegurð leikkonunnar og að láta hana líta út eins og hún væri ekki mikið förðuð. Lögð var áhersla á að búa til sterka augnháralínu sem rammaði inn augun og nota mikinn maskara. Til að fá fram ferskt náttúrulegt útlit var notaður léttur farði og kremkinna- litur til að gefa andlitinu frískleika og gljáa. Varaliturinn var hafður í bleikum lit sem tónaði vel við kinnalitinn. Björg farðaði Soffíu Eiríksdóttur, aðdáanda Beðmála í borginni, með sömu vörum og notaðar voru í myndinni og er ekki hægt að segja annað en útkom- an myndi sóma sér vel í öllum helstu tískuborgum heimsins. sibba@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Björg Alfreðsdóttir Náttúruleg fegurð beisluð Beðmál í borginni Einfaldleiki Á Soffíu Ei- ríksdóttur var notaður kremkinnalitur sem gef- ur húðinni fallegan gljáa. Paint Pot-kremaugn- skuggi Groundwork. Powepoint-blýantur Engraved. Slimshine- varalitur Funshine. Kremkinnalitur Lady- blush. Allt frá MAC. Það sem Björg gerði  Léttur farði notaður og hyljari settur á þau svæði sem þurfti. Púðr- að yfir með léttu púðri á þá staði sem glönsuðu.  Húðlitur krem- augnskuggi settur yfir allt augnlok- ið.  Steingrá blý- antslína dregin meðfram efri og neðri augnhára- línu og unnin vel inn í augnhárin með bursta til að þétta og styrkja augnháralínuna. Svartur krem-eyeliner settur yfir blýantinn til fá aðeins meiri dýpt. Augnhárabrettari notaður ásamt tveimur umferðum af maskara á augnhárin til að styrkja augnsvipinn.  Björg mælir með að hita aðeins upp kremkinnalitinn á handarbakinu og svo dreifa svo úr honum á kinnarnar. Þegar fitan í kinnalitnum hitnar dreifist betur úr honum. Að lokum var varaliturinn borinn á varirnar og þá var þetta komið. „Íslenskar trjáplöntur eru aðlagaðar okkar veðráttu.“ Björn Sigurbjörnsson, garðyrkjumaður. Í áratugi hafa íslenskir garðplöntuframleiðendur unnið að því að byggja upp og rækta úrval af garðplöntum fyrir íslenska veðráttu. Nýttu þér dýrmæta þekkingu og reynslu íslenskra garðplöntuframleiðenda. VELDU ÍSLENSKAR TRJÁPLÖNTUR, SÉRMERKTAR ÞÉR. Sarah Jessica Parker
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.