Morgunblaðið - 14.06.2008, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.06.2008, Blaðsíða 26
lifun 26 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Mörgum útlendingumsem hingað komafinnst svo merkilegtvið þetta hús hvað sálin í því æðir upp um leið og þeir koma hingað inn. Þeir súpa líka hveljur út af því að Esjan, sjórinn og nánast allur sjóndeildarhringurinn skilar sér hingað inn um gluggana,“ segir Sigrún Einarsdóttir glerlistakona en húsið hennar er klætt að utan með dökku bárujárni. „Við Søren maðurinn minn heit- inn upplifðum það eins og helli sem væri dimmur að utan en bjartur að innan. Við byggðum þetta hús sam- an, gáfum okkur góðan tíma og leyfðum hlutunum að vaxa inn í rýmið. Eldhúsið varð til dæmis allt öðruvísi en við ætluðum fyrst. Við keyptum neðri skápana frá Dan- mörku, en þeir eru gerðir úr end- urnýttum gólfborðum úr þýskum húsum. Stiginn upp á loftið er skandinavísk útfærsla á japönskum tröppum en hann þjónar hlutverki skáps, sem sparar pláss og er auk þess svo fallegur. Hugmyndina fengum við úr bókum sem japönsk vinkona mín lánaði okkur.“ Sigrún er mikið fyrir að hafa hluti í kringum sig sem hafa tilfinn- ingalegt gildi og tengjast minn- ingum, ýmist frá útlandsárum eða bernskunni. Hátt uppi í rjáfri hanga bænaflögg frá Tíbet og á hillum er fjöldi glerlistaverka. „Þetta er mikið frá kollegum mínum og vinum. Ég er agalega mikill hlutasafnari. Ég safna til dæmis flöskum sem eru hér um allt. Mér þykir mjög vænt um klukku og spólubox sem ég er með hér hjá mér en þessa hluti átti amma mín sem var bláfátæk.“ Ein er sú hirsla á heimilinu sem nær næstum yfir heilan vegg og á henni eru ótal hólf og hillur. Þar úir og grúir af gömlum hlutum með sögu. Sigrún segir þessa mublu sennilega hafa verið undanfara tölv- anna. „Søren hirti þetta í skólakjall- ara í Danmörku þar sem það beið þess að fara á haugana. Væntanlega hefur þessi mubla þjónað sem flokk- unargræja, því bókstafur er við hverja hillu. Søren hafði rétt eins og ég veikleika fyrir gömlum hlutum. Borðið frammi í forstofu er til dæm- is 250 ára gamalt og við borðuðum við það þegar við bjuggum í Dan- mörku.“ Sigrún segist vera hætt að safna hlutum og vilji nú aftengja sig eign- um. Hún hafi meiri áhuga á að ferðast og kynnast ólíkri menningu og upplifa með sálinni og andanum. Margar skemmtilegar veislur hafa verið haldnar í húsinu, enda segir Sigrún að Søren hafi verið gestgjafi af Guðs náð. „Mér er minnisstæð ein veisla þar sem við buðum öllum vinum okkar sem voru af erlendu bergi brotnir og bjuggu á Íslandi. Þau kölluðu sig síbúa og á meðal þeirra voru Baltasar Samper, Lena Bergmann, ein afrísk kona sem var gift vini mínum og önnur kona frá Japan. Allir komu með mat frá sínu heimalandi og þetta var rosalega gaman. Við enduðum svo á að dansa við suðurameríska tónlist.“ Frá öllum heimshornum Íslenskt kaffibox, dönsk vog og japönsk Sakekrús er meðal muna sem leyn- ast í fjölmörgum hirslum og hornum í húsinu hennar Sigrúnar Einarsdóttur. Japanskar tröppur Þær nýtast sem skápar, spara pláss og eru fagrar. Fátækrakeramik Eldhúshirsla frá frænku Sørens og sjaldgæfar fornar flöskur. Opið og bjart Sigrún með dísarfuglinn sinn Patta Pavarotti á öxlinni en hann syngur Mozart fagurlega. Hellir bjartur að innan Í húsi Sigrúnar Einarsdóttur glerlistakonu á Kjal- arnesi fengu hlutirnir að vaxa inn í rýmið og þar hafa margar veislur danskar verið haldnar. „ÞEGAR við vorum búin að setja gólfefni á eldhús og stofur héldum við stóra og skemmtilega matarveislu. Þá áttum við engin húsgögn en Søren smíðaði borð og við feng- um lánaða stóla héðan og þaðan. Þetta var mjög eftirminnilegt sitjandi danskt borðhald og við vorum í fjóra klukkutíma að borða. Það voru skemmtiatriði við borðið og eftir borðhald fóru gestir inn í bílskúrinn sem við höfðum breytt í danssvæði. Stofunum breytt- um við í franskt kaffihús. Vinur okkar gekk svo um með flöskur og hrópaði á japönsku spurningar um hvað fólk vildi drekka. Verk- fræðingur hússins sá um að spila á harm- onikku undir dansinum og síðustu gestirnir fóru góðglaðir undir morgun. Enn eru þessir skemmtilegu vinir að minnast þessarar veislu sem var allt í senn, reisugilli, brúðkaups- veisla okkar og fertugsafmæli Sørens.“ Rosalegt reisugilli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.