Morgunblaðið - 14.06.2008, Page 27

Morgunblaðið - 14.06.2008, Page 27
„Søren hafði rétt eins og ég veik- leika fyrir göml- um hlutum. Borð- ið frammi í forstofu er til dæmis tvö hundr- uð og fimmtíu ára gamalt og við borðuðum við það þegar við bjuggum í Dan- mörku. Myndina af konunni erfði Søren eftir frænku sína en hún er máluð af Skagen-málara. Stóllinn kemur frá afa hans.“ úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 27 Maímánuður hefur verið Austur- Húnvetningum gæfur hvað veður áhrærir og ekki hefur júní brugðist til þessa. Undangengin ár hefur maí verið hálfgerður harðindamánuður en nú er eins og takturinn í árstíð- unum sé kominn á rétt ról.    Fyrir utan að farfuglarnir eru óskeik- ulir vorboðar er opnun Hafísseturs og Heimilisiðnaðarsafns einnig áþreifanleg tákn um sumarkomu en í byrjun mánaðarins voru þau opnuð almenningi með pomp og prakt. Það hefur verið fastur liður í starfi Heim- ilisiðnaðarsafnsins að opna listsýn- ingar sem tengjast handverki kvenna á einhvern hátt. Að þessu sinni sýnir Snjólaug Guðmundsdóttir (Sóla) verk sín þæfð og ofin og kallast sýningin „Af fingrum fram“. Þó safnið sé lokað almenningi yfir veturinn geta menn skoðað það í samráði við Elínu Sig- urðardóttur forstöðumann og eins fer þar fram ýmis starfsemi. Til dæmis lauk nýverið 40 klukkustunda þjóð- búninganámskeiði undir stjórn Helgu Sigurbjörnsdóttur frá Sauðárkróki og skörtuðu konur nýju þjóðbúning- unum við opnunina.    Þjóðhátíðardagurinn nálgast og hef- ur verið ákveðið að færa hátíð- arhöldin úr Brautarhvammi á hið nýja miðbæjartorg. Margir fagna þessu og telja hátíðina loksins komna í hjarta bæjarins.    Ísbjörninn frægi er fallinn og mun ekki vakna til lífs aftur þó svo menn ræði ákaft örlög hans. Það sem eftir er af bjössa er hamurinn sem hefur verið ákveðið að stoppa upp og koma fyrir á Sauðárkróki. Ætli það hafi aldrei hvarflað að nokkrum manni að koma þessu dýri uppstoppuðu fyrir á Hafíssetrinu á Blönduósi, sem meðal annars fjallar á fræðandi hátt um birni í tengslum við hafísinn? Margir telja að við séum einstaklega lagin við að dreifa kröftunum um víðan völl í stað þess að sameina þá. Til gamans má geta þess að þau rök hafa verið notuð máli þessu til stuðnings að það var Blönduósingur sem fyrstur sá dýrið og það var Blönduósingur sem felldi það og svo má ekki gleyma því að bjarndýr er í skjaldarmerki sýsl- unnar. Það þykir nokkuð víst að ung stúlka á Blönduósi sá bjarndýrið dag- inn fyrir dauða þess er hún var á leið sinni ásamt foreldrum á Krókinn að sjá Hvöt leggja Tindastól 5:0 í bik- arnum í knattspyrnu.    Talandi um knattspyrnu þá verða Smábæjarleikarnir í knattspyrnu háðir á Blönduósi í fimmta sinn um aðra helgi. Áætluð fjölgun hér í bæn- um þessa helgi er u.þ.b 2.500 – 3.000 manns, þar af tæplega 1.000 kepp- endur ásamt þjálfurum. Þessi keppni er ætluð börnum nánast frá fæðingu að þrettán ára aldri.    Bæjarstjórnin hefur samþykkt að hefja byggingu á 25 metra útisund- laug við íþróttamiðstöðina. Stefnt er að því að fyrsta skóflustungan verði tekin á Húnavöku sem verður á Blönduósi helgina 11.-13. júlí.    Af framanrituðu má sjá að það er hugur í Blönduósingum og nærsveit- ungum og nóg framundan. Einhver hafði á orði að „kreppan“ væri ekki íþyngjandi hér um slóðir heldur væru aðrir landsmenn óðfluga að nálgast okkar veraldlegu gæði. BLÖNDUÓS Jón Sigurðsson fréttaritari Uppáhald Sykurbox, sykurtöng og kleinujárn frá mömmu og ömmu. Morgunblaðið/G.Rúnar Danska hillan Aðeins brot af öllum þeim hlutum með sögu sem kúra í gam- alli flokkunarmublu sem Søren flutti heim með sér frá Danmörku. www.fi.is, fi@fi.is, sími 568-2533 M bl 1 01 30 89 Skráð u þig inn - drífð u þig út Nýir félagsmenn velkomnir í FÍ. Árgjaldið er kr. 4.900. Félagsmenn fá glæsilega árbók, afslátt í ferðir og skála, og afslátt í fjölda verslana. Félagsmenn í Ferðafélagi Íslands, munið eftir árgjaldinu! Útimálning Viðarvörn Lakkmálning Þakmálning Gólfmálning Gluggamálning Innimálning Gljástig 3, 7, 20 Verð frá kr. 298 pr.ltr. Gæða málning á frábæru verði Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli. Afsláttur af málningarvörum 20% Sætúni 4 Sími 517 1500 Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður. Skútuvogi 13, S. 517 1500 www.teknos.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.