Morgunblaðið - 28.09.2008, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Svipmynd
Eftir Valgerði Þ. Jónsdóttur
vjon@mbl.is
J
oe Biden, fullu nafni Jo-
seph Robinette Biden,
varaforsetaefni Baracks
Obama, forsetaframbjóð-
anda Demókrataflokksins
2008, er enginn nýgræðingur á
vettvangi stjórnmálanna. Hann er
nánast hokinn af reynslu eftir 35
ár sem öldungadeildarþingmaður
fyrir heimaríki sitt, Delaware, og
setur og formennsku í ótal ráðum
og nefndum. Ævinlega hefur hann
verið óðfús að bjóða sig fram til
frekari embætta, t.d. tvisvar sóst
eftir tilnefningu flokks síns til for-
setaembættisins, 1988 og 2007, en
í bæði skiptin dregið framboð sitt
til baka.
Reynslan er helst talin Biden til
tekna, hún er sögð bæta upp
mesta veikleika Obama; þekk-
ingar- og reynsluleysi í öryggis-
og utanríkismálum. Stuðnings-
menn Johns McCains, forseta-
frambjóðanda Repúblikanaflokks-
ins, voru fljótir að henda á lofti að
Obama treysti sér einfaldlega ekki
í slaginn án handleiðslu gam-
alreynds stjórnmálarefs. Andstæð-
ingunum þótti valið ennfremur til
marks um að slagorð Obama um
„breytingar“ væri hjómið eitt.
McCain-liðar settu síðan í aug-
lýsingu þau ummæli Bidens „að
Obama væri ekki tilbúinn“, sem
hann viðhafði í baráttunni um út-
nefninguna. Til gamans splæstu
þeir svo saman í auglýsinguna um-
mælum hans frá 2005 „að honum
[Biden] þætti heiður að fara fram
með eða á móti McCain“. Þeim
ósmekklegustu þótti líka fyndið að
nota „Obama Bin Biden“ um
tvíeykið, en aðallega þó í tölvu-
póstum.
Hagvanur í höfuðborginni
Þótt fáir efist um að reynsla
Bidens komi Obama til góða í
kosningabaráttunni – og forseta-
embættinu, ef til þess kæmi, vega
vonir um atkvæði hvítu milli- og
verkamannastéttanna ekki síður
þungt. Obama hefur átt erfitt með
að vinna þær á sitt band, öfugt við
Biden – sem líka, öfugt við
Obama, vílar ekki fyrir sér og
virðist hafa gaman af að þjarma
að McCain í orðræðunni. Þannig
bæta þeir Obama og Biden hvor
annan upp.
Joe Biden er þekkt andlit í
bandarískum stjórnmálum, hag-
vanur í Washington og hefur átt
samskipti við háttsetta embætt-
ismenn og þjóðhöfðingja um allan
heim. Honum er jafnan lýst sem
líflegum og baráttuglöðum pólitík-
us, áhrifamiklum ræðumanni, að
vísu fullorðmörgum og með til-
hneigingu til að koma klaufalega
fyrir sig orði, heiðarlegum – með
örfáum undantekningum, sem síð-
ar verður vikið að, alþýðlegum en
þó myndugum mjög.
Miðað við umfjöllun fjölmiðla og
heimsóknir á vefinn hitwise.com,
sem mældi hversu oft var leitað
upplýsinga á netinu um Biden og
Sarah Palin, ríkisstjóra Alaska og
varaforsetaefni McCains, voru
mun fleiri forvitnir um frúna að
norðan. Hún var enda lítt þekkt í
bandarísku þjóðlífi og trúlega hef-
ur kjósendum þótt þeir þegar vita
flest um Biden sem vert væri að
vita.
Á Íslandi gegnir trúlega svolítið
öðru máli og því sakar ekki að
stikla á örfáum atriðum í lífi, leik
og starfi hugsanlegs varaforseta
Bandaríkjanna.
Stam og svik
Biden, sem er elstur fjögurra
systkina, var tíu ára þegar for-
eldrar hans; móðir af írskum upp-
runa og faðir af enskum, ákváðu
að flytjast búferlum með börn sín
frá Pennsylvaníu til Claymont í
Delaware, þar sem atvinnuhorfur
voru vænlegri. Föðurfjölskylda
hans hafði verið vellauðug, en tap-
að öllu sínu og því var tími póló-
leikja og snekkjusiglinga Josephs
eldri löngu liðinn þegar hann fékk
starf sem bílasali í New Castle-
sýslu og fjölskyldan festi rætur í
Delaware. Þau töldust til milli-
stéttarinnar þótt fátæk væru.
Biden stamaði mikið sem barn
og unglingur en tókst að ná tökum
á vandanum með því að æfa sig
löngum stundum í ljóðalestri fyrir
framan spegil.
Hann var slakur námsmaður,
latur að eigin sögn, en góður í
íþróttum og sjálfskipaður leiðtogi
nemenda í Archmere Academy-
framhaldsskólann í Claymont, það-
an sem hann útskrifaðist 1961.
Ekki tók hann sig á svo heitið
gæti þegar í Delaware-háskólann
var komið, var 506. í röðinni af 688
nemendum, sem útskrifuðust með
BA í sögu og stjórnmálafræði
1965. Því var ekki úr háum söðli
að detta þegar hann varð 76. af 85
við útskrift úr Syracuse-lagahá-
skólanum í New York 1968.
Fyrsta árið hafði ekki verið
gæfulegt því Biden var sakaður
um ritstuld úr lagatímariti í prófi.
Óviljandi, sagði hann, og bar við
að sér hefði ekki verið kunnugt
um reglur um tilvitnanir. Hann
fékk F, en var leyft að taka önn-
ina aftur og F-ið var látið niður
falla. Geymt en þó ekki gleymt,
eins og nú hefur komið á daginn.
Herkvaðning og harmleikur
Á sjöunda áratugnum fékk Bi-
den fimm sinnum frestun á her-
kvaðningu, í fyrsta skipti 1963 og
síðasta 1968 þegar Víetnamstríðið
stóð sem hæst og staða hans var
endurskoðuð. Honum var hafnað á
þeirri forsendu að hann þjáðist af
asma sem unglingur. Biden kveðst
hvorki hafa tekið þátt í andófi
gegn stríðinu né skrýðst upplit-
uðum hippabol, heldur verið upp-
tekinn af borgaralegum gildum
svo sem hjónabandi sínu og laga-
námi.
Hann hafði kvænst Neilia Hun-
ter 1966. Þau eignuðust þrjú börn
á þremur árum, 1969-1971 og allt
virtist ganga þeim í haginn.
Að námi loknu hóf Biden störf
sem lögfræðingur í Wilmington og
var fljótlega kosinn í sveitarstjórn
New Castle-sýslu og sat þar til
1972 þegar hann, mörgum til
undrunar, vann sæti Delaware í
öldungadeildinni. Hann hafði háð
kosningabaráttuna af vanefnum,
en með góðan málstað; lagt
áherslu á brottflutning hermanna
frá Víetnam, umhverfismál, mann-
réttindi og „breytingar“. Hin,
unga og geðþekka fjölskylda er
sögð hafa átt sinn þátt í sigrinum,
auk eldmóðs hans sjálfs og hæfi-
Maður margra orða –
og mismæla
Joe Biden varaforsetaefni þykir bæta upp mestu veikleika Baracks Obama, forsetaframbjóðanda
Demókrataflokksins; þekkingar- og reynsluleysi í öryggis- og utanríkismálum
REUTERS
Breytingar Joe Biden kom víða við í ræðu sinni á flokksþingi Demókrata í Denver, Colorado, þegar hann var form-
lega tilnefndur varaforsetaefni Baracks Obama. Hann sagði báða berjast fyrir breytingum og bættum hag fólksins.
Joseph Robinette Biden fæddist 29. nóvember 1942
í Scranton, um 73 þúsund manna borg í Pennsylv-
aníu.
Hann er elstur fjögurra barna Jean og Joe Biden.
Fjölskyldan fluttist til Claymont, tæplega 10 þús-
und manna bæjar í Delaware, þegar Biden var 10
ára.
BA í sögu og stjórnmálafræði frá háskólanum í De-
laware 1965. Útskrifaðist úr lagadeild Syracuse-
háskóla 1968.
Kvæntist Neilia Hunter 1966 sem lést í bílslysi
ásamt Naomi, ársgamalli dóttur þeirra hjóna, 1972.
Synir þeirra, Joseph R. „Beau“, f. 1969, og Robert
Hunter, f. 1970, komust lífs af.
Kvæntist Jill Jacobs 1977. Þau eiga eina dóttur, As-
hley, f. 1981. Þau búa í Wilmington, um 73 þúsund
manna borg í Delaware.
Biden starfaði sem lögfræðingur í Wilmington
1968-1972 og sat í sveitarstjórn New Castle-sýslu í
Delaware 1970-1972.
Varð öldungadeildarþingmaður Delaware 1972 og
kosinn aftur fimm kjörtímabil; 1978, 1984, 1990,
1996 og 2002 og sækist eftir endurkosningu í sjö-
unda skiptið, 2008.
Tók sæti í utanríkismálanefnd öldungadeildarinnar
1975, formaður 2001-2003 og frá 2007. Í dóms-
málanefnd frá 1977, formaður 1987-1994.
Sóttist eftir útnefningu Demókrataflokksins til for-
setaembættisins 1988 og aftur 31. janúar 2007, en
dró framboð sitt í bæði skiptin.
Biden þáði varaforsetatilnefninguna opinberlega á
28. ágúst 2008 á flokksþingi Demókrataflokksins í
Denver, Colorado.
Ævisaga Bidens, Promises to Keep: On Life and
Politics, kom út 2007.
Joe Biden
Reuters
Tilbúinn í kosningaslaginn Joe Biden ásamt eig-
inkonu sinni, Jill Jacobs, framhaldsskólakennara.