Morgunblaðið - 28.09.2008, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2008 49
Lögga, læknir og lögfræðingur
Kippan
ÉG MUNDI EKKI TALA
VIÐ ÞENNAN... HANN
ER ALGJÖR TRÚÐUR!
STEINI, HVERNIG VAR
STEFNUMÓTIÐ Í GÆR?
KONAN LEIT ÚT EINS
OG CAMERON DIAZ VÁ!
EINS OG HÚN LEIT
ÚT Í SHREK 2 ÚFF!
ÞAÐ STENDUR HÉRNA
AÐ ÞÚ GETIR TALAÐ ÞRJÚ
ERLEND TUNGUMÁL
JÁ, ÉG TALA ENSKU,
FRÖNSKU OG SÍÐAN
GET ÉG LÍKA TALAÐ
TUNGUM
STARFSMANNASTJÓRI
LÆKNIRINN
BAÐ HANN
AÐ HAFA AUGA
MEÐ ÞVÍ
SEM HANN
BORÐAR
HANN SAGÐI AÐ
STEYPAN VÆRI ILLA
BLÖNDUÐ OG AÐ VIÐ
ÆTTUM AÐ BÆTA VIÐ
MEIRI SANDI
FRÁBÆRT! ÍSÖLDIN
ER KOMIN OG VIÐ ERUM
EKKI ENNÞÁ BÚIN AÐ
UPPGÖTVA ELDINN!
Velvakandi
STUNDUM er gott að færa sig yfir í annað umhverfi þegar heimalærdómn-
um er sinnt og þá eru gjarnan bókasöfn eða hugguleg kaffihús góðir kostir
eins og þetta kaffihús á Laugaveginum.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Heimanáminu sinnt
Fórnarlömb
Ég er hreint ekki
sammála því að bíða
hefði átt með leiðrétt-
ingu á launum ljós-
mæðra, og að hækk-
unin muni hleypa af
stað skriðu kaup-
hækkana, eins og Ill-
ugi Gunnarson sagði í
Kastljósi 26. sept-
ember sl. og hafði áð-
ur viðrað, að ég held, í
einhverju dagblað-
anna. Nauðsynlegt
var að leiðrétta van-
mat á mennt-
unarkröfum þeirra.
Mér finnst þakkarvert að ljós-
mæður skyldu ekki fara fram á
leiðréttingu á því misrétti, sem
þær hafa búið við fram að þessu –
ef þetta hefur í för með sér að
ekki verður hægt að halda áfram
að hlunnfara lækna, en þar er á
ferð sama réttlætismál, sem allir
hljóta að skilja.
Þetta leiðir hugann að hug-
myndum Breiðavíkursamtakanna
um bætur til Breiðavíkurdrengj-
anna. Velflestir Íslendingar basla
við það alla ævi að
koma sér upp þaki yf-
ir höfuðið. Margir
fórna heilsu og heim-
ilislífi fyrir það og
sumir eiga ekki nema
hluta af húsnæðinu,
sem þeir búa í, þótt
komnir séu á efri ár.
Eiga nú hin fórn-
arlömb þessa þjóð-
félags að afhenda
Breiðavíkurdrengj-
unum andvirði íbúðar
fyrir fárra ára mis-
þyrmingu, sem þau
bera enga ábyrgð á.
Ég veit ekki hvers
vegna þessir drengir
lentu á Breiðavík, sumir hafa vafa-
laust lent þangað að ófyrirsynju,
en ég er hræddur um að samúðin
með drengjunum hafi dvínað fyrir
aðkomu nefndra samtaka að mál-
inu.
Öðru máli gegnir um réttmætar
kröfur ljósmæðra, sem eiga stuðn-
ing þorra þjóðarinnar.
Þórhallur Hróðmarsson.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Haustlitaferð 30.
september kl. 12.30. Farið verður í Heið-
mörk, Nesjavelli, Ljósifoss og Grímsnes.
Staðarleiðsögn verður í Nesjavallavirkjun
og kaffihlaðborð í Hótel Nesbúð. Verð kr.
2.700. Skráning og nánari uppl. í síma
535-2760.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofan í Gullsmára 9, er opin á mánudög-
um og miðvikudögum kl. 10-11.30, sími
554-1226. Í Gjábakka er opið á mið-
vikudögum kl. 15-16, sími 554-3438. Fé-
lagsvist er bæði í Gullsmára og Gjá-
bakka. Sjá nánar á www.febk.is
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur kl. 20 í kvöld, danshljómsveitin
Klassík leikur. Námskeið í framsögn,
upplestri og grunnatriði leikrænnar tján-
ingar á þriðjudögum kl. 17.30 og hefst
14. okt. ef næg þátttaka fæst. Farið verð-
ur í flutning á bundnu og óbundnu máli.
Leiðbeinandi er Bjarni Ingvarss. Skrán-
ing og nánari upplýsingar í síma 588-
2111.
Félagsstarf Gerðubergs | Virka daga
eru meðal annars opnar vinnustofur,
spilasalur og margt fleira. Föstudaginn
3. október kl. 13 hefst bókband, leiðbein-
andi er Þröstur Jónsson. Bútasaums-
klúbbur er á fimmtudögum kl. 12.30,
prjónakaffi er á föstudögum kl. 10, um-
sjón hefur Ágústa Hjálmtýsdóttir. Nánari
upplýsingar á staðnum og í síma 575-
7720.
Hraunbær 105 | Glerlist Tiffany’s er eft-
ir hádegi á þriðjudögum og þurrburstun
á keramiki eftir hádegi á miðvikudögum
ef næg þátttaka fæst. Nánari upplýs-
ingar og skráning á skrifstofu eða í síma
411-2730. Toyota býður í kaffi og fyr-
irlestur un áhrif CO2 á umhverfið, þriðju-
daginn 30. september og stendur skrán-
ing til kl. 14, mánudaginn 29. september.
Nánari upplýsingar í síma 411-2730.
Íþróttafélagið Glóð | Æfingar fyrir sýn-
ingar og hópdansa eru í Kópavogsskóla
á þriðjudögum kl. 14.30-16 og á mið-
vikudögum í Lindaskóla kl. 15-16.20.
Ringó er í Snælandsskóla á mið-
vikudögum kl. 19-20 og á laugardögum
kl. 9.30-10.30. Línudans verður í Húna-
búð á fimmtudögum kl. 16.30-18. Nánari
upplýsingar í síma 564-1490, 554-2780
og 554-5330.
Korpúlfar Grafarvogi | Ganga á morg-
un, mánudag, kl. 10 frá Egilshöll.
Korpúlfsstaðir, vinnustofur | Búta-
saumur á morgun kl. 13-16. Bútasaumur
er annan hvern mánudag.
Vesturgata 7 | Haustlitaferð verður farin
frá Vesturgötu, þriðjudaginn 30. sept-
ember kl. 12.15. Ekið verður að Vífils-
stöðum um Heiðmörk að Nesjavallavirkj-
un og virkjunin skoðuð. Kaffihlaðborð
verður á Hótel Nesbúð. Einnig verður
farið að Ljósafossi og Grímsnesleiðin ek-
in heim. Nánari upplýsingar og skráning
í síma 535-2740.
Vesturgata 7 | Myndlist hefst miðviku-
daginn 1. október.
Þórðarsveigur 3 | Þjónustumiðstöð Ár-
bæjar og Grafarholts stendur fyrir opn-
um fundi um félagsstarf eldri borgara í
Grafarholti. Fundurinn verður í salnum
Þórðarsveigi 3, fimmtudaginn 2. október
kl. 14-15. Léttar kaffiveitingar.