Morgunblaðið - 28.09.2008, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 28.09.2008, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2008 37 Í einkasölu glæsileg 3-4ra herb. 105 fm íb. á 3ju hæð í góðu velstaðs. húsi ásamt bílskýli. Vand. innrétt. Ísskápur og uppþvottavél fylgja eign- inni. Parket, Mjög gott skipul. Stutt í mjög góðan skóla og leiksk. Einstakt útsýni á fjallahringinn og Heiðmörkina.Hér getur þú flutt inn við kaup- samning. Einstakt verð aðeins 27,0 millj. Ekki missa af fráb. Tækifæri. Eign á frábæru verði. Opið hús í dag sunnudag frá kl. 14-15. Opið hús í dag Rauðavað 23, íb. 0302 m.bílskýli VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍMI 588-4477  | Síðumúla 13 | www.miklaborg.is569 - 7000 Jason Guðmundsson, lögfræðingur BA og löggiltur fasteignasali Langalína 27-29, Garðabæ Stórglæsilegar Lifa innréttingar Sjóströnd Glæsilegt lúxusfjölbýli Tilbúnar til afhendingar 3ja og 4ra herbergja íbúðir Opið hús í dag frá kl. 16-17 LAUGARÁSVEGUR 1 - TIL SÖLU Falleg og björt 3ja herbergja útsýnisíbúð á efstu hæð með stórum svölum við Laugarásveg sem er 92 fm og er með miklu útsýni. Skiptist þannig: Stofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi og eldhús. Sérgeymsla í kjallara. Parket á gólfum. Tvöfaldur ísskápur fylgir. Snyrtileg sameign. Allt húsið tekið í gegn að utan 2006-2007. Til afhendingar strax. Verðhugmynd 28,5 millj. Áhv. lán til 40 ára, 14,1 millj. Vextir 4,2%. Upplýsingar veitir Karl í síma 892 0160. Í MORGUN- BLAÐINU hinn 19. september sl. var auglýst nýtt deili- skipulag við Stekkjar- bakka í Reykjavík þar sem gert er ráð fyrir slökkvistöð. Þá var jafnframt auglýst nýtt aðalskipulag fyr- ir Elliðárdalinn að sunnanverðu. Sem íbúi Stekkjahverfisins fagna ég þeirri hugmynd að slökkvistöð rísi í Breiðholti því ég tek öryggi fram yfir náttúruvernd. Á þessu svæði eru 3 íbúðarhús auk nokkurra útihúsa. Þessi hús eiga að fara og slökkvistöð verður byggð á miðju svæðinu þó þannig að hún falli vel inn í landslagið og verði því lítið áberandi. Og hvers vegna þetta svæði sem sumir vilja ekki hrófla við? Skýringin liggur í ósk Slökkvi- liðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) og var kynnt á auglýstum kynn- ingarfundi í maí sl. með íbúum Breiðholts. Þar kynntu fulltrúar SHS nýlega rannsókn á útkalls- tíma SHS síðstu 2 árin á höf- uðborgarsvæðinu. Rannsóknin sýnir að með þessari staðsetningu getur SHS þjónað íbúum höfð- uborgarinnar enn betur en nú er og mun betur en nokkur önnur staðsetning. Þarna er átt við þann tíma sem tekur fyrir slökkvi- og sjúkrabifreiðar að komast á út- kallsstað. Það er útkallstíminn sem skiptir öllu máli þegar líf er í húfi. Breiðholtið hefur verið allt of lengi afskipt í þessum málaflokki því við uppbyggingu hverfisins var gert ráð fyrir slökkvistöð uppi við Asparfell. Af því varð þó aldrei. Útakallsliðið er 2-4 mínútum lengur að komast á útkallsstað í Breiðholtinu en önnur hverfi eins og staðan er í dag, þ.e.a.s. ef farið er frá slökkvistöðinni við Tungu- háls í Árbænum. Sú stöð verður lögð niður og önnur verður byggð við rætur Úlfarsfells eins og áætl- anir SHS gera ráð fyrir. Það er margsannað ef fólk lend- ir í hjartastoppi, öndunarerfiðleik- um (aðskotahlutir í öndunarvegi) eða lendir í mjög alvarlegum áföll- um er það tíminn sem skiptir öllu máli. Hámarkstími í slíkum tilfellum er talinn í nokkrum mín- útum. Það skiptir því höfuðmáli fyrir björg- unarlið að komast 2-4 mínútum fyrr til að endurlífga. Val okkar íbúanna í Breiðholti stendur því um líf eða dauða. Íbúar sem eru næstir Stekkjarbakka og hafa útsýni yfir dalinn fjölmenntu á kynningarfundinn og höfðu í frammi hörð mótmæli. Þeir líta svo á að ekki megi snerta við þeirri nátt- úruparadís sem Elliðarárdalurinn er. Og hann er það svo sann- arlega. En þessi fyrirhugaða stað- setning slökkvistöðvarinnar er ekki í Elliðarárdalnum. Hún yrði í jaðrinum eða í efri hluta Blesu- grófar eins og hverfið hét lengi. Íbúarnir eru í raun að taka nátt- úrvernd fram yfir mannslíf. Sem íbúi í Stekkjahverfinu fagna ég þeirri hugmynd að reisa slökkvi- stöð við Stekkjarbakka. Ég er að hugsa um öryggið. Það er alltaf hægt að setja niður tré og gróður en það er ekki hægt að vekja fólk upp frá dauðum. Þó ber þess að geta að áð- urnefndir íbúar hafa bent á að borgaryfirvöld hafa lofað því að ekki verði byggt á þessu svæði en samt hafa verið reist á nálægu svæði sjoppa, bensínstöð (Staldrið) auk þvottastöðvar. Því treysta þessir íbúar, sem margir hverjir eru frumbyggjar Stekkjahverfsins, ekki því sem borgaryfirvöld segja. Ef byggð verður slökkvistöð er óttast að eitthvað annað komi síð- ar. Undir þetta tek ég og þessar áhyggjur eiga því sannarlega rétt á sér. En úr því SHS óskar eftir þessari staðsetningu og hefur fært fyrir því góð rök með athygl- isverðri rannsókn sem sýnir að þessi staðsetning er best með til- liti til útkallstíma og nálægðar við stofnæðar borgarinnar tel ég far- sælast fyrir íbúa Breiðholts að slökkvistöð verði reist á þessu svæði. Það verður þá að vera framtíðarverkefni íbúa hverfisins að mótmæla frekari uppbyggingu svæðisins ef hún þá verður. Bjóð- um SHS velkomið í Breiðholtið. Tökum lífið fram yfir dauðann. Tökum mannslíf fram yfir umhverfisvernd Sigurður Ágúst Sig- urðsson vill að slökkvistöð verði reist í Breiðholti? » Það skiptir höf- uðmáli fyrir björg- unarlið að komast 2-4 mínútum fyrr til að end- urlífga. Val okkar íbú- anna í Breiðholti stend- ur því um líf eða dauða. Sigurður Ágúst Sigurðsson Höfundur er forstjóri Happdrættis DAS og íbúi í Stekkjahverfi. FYRIR nokkru skrif- aði Eggert B. Guð- mundsson, forstjóri HB-Granda, grein í Fréttablaðið þar sem hann veltir fyrir sér göllum og kostum þess fyrir sjávarútveginn ef Ísland gengi í ESB. „Samandregið má því segja að allt umhverfi sjávarútvegsins í ESB sé fráhrindandi,“ segir Eggert undir lok greinarinnar og bend- ir á að þó svo að und- anþágur fengjust vegna sérstöðu sjáv- arútvegsins hér á landi yrði það tæpast nema til skamms tíma. Sig- rún Björk Jak- obsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, hafði nokkru áður skrif- að grein um sama efni. Sigrún Björk er bæjarstjóri í stærsta byggðarlagi utan þéttbýlisins á suðvesturhorni landsins þar sem matvælafram- leiðsla í landbúnaði og sjávarútvegi er undirstaða allrar atvinnu. Það er athyglisvert að sjá að Sigrún Björk kemst að sömu niðurstöðu og Egg- ert um áhrif inngöngu Íslands í ESB; hvorugt telur það umhverfi sem ESB muni skapa henta í þeim geira sem þau starfa. Ný sjónarmið Gagnrýni en um leið vönduð og meitluð umræða um jafnmikilvægt mál og hér um ræðir er því miður allt of sjaldgæf. Meira ber á upp- hrópunum og einfeldningslegum fullyrðingum sem oftar en ekki halda hvorki vatni né vindi þegar á reynir. Þau Eggert og Sigrún Björk hafa kosið að fara aðra leið og vakið athygli með málflutningi sínum. Sjávarútvegur og landbúnaður eru mikilvægar atvinnugreinar á landsbyggðinni og þær greinar verða settar í uppnám með inngöngu Íslands í ESB eins og þau benda bæði á í skrifum sínum. Sjávar- útvegurinn mun verða hnepptur í fjötra stjórnvaldsins í Brussel og það er fásinna að halda því fram að Ísland muni um ókomna framtíð fá undanþágu frá því valdi til að stjórna og ráða yfir mikilvægustu auðlind- um sínum, eins og hafinu í kringum landið. Makrílveiðar Íslendinga og ESB Íslensk skip hafa á þessu ári veitt yfir 100.000 tonn af makríl við land- ið. Verðmæti þess afla er mikið og er talið að útflutningsverðmæti þessa mikla afla sé yf- ir 6 milljarðar. Mak- rílveiðarnar skiptu sköpum fyrir afkomu útgerða og sjómanna á uppsjávarskipum sem máttu þola mik- inn skell fyrr á árinu vegna loðnuveiða. Mörg byggðarlög, fjölskyldur og fyr- irtæki eiga veiðum á makríl mikið að þakka, hjólin héldu áfram að snúast og óvæntar tekjur streymdu inn. Hver hefði staðan verið í þessum málum ef Ís- land hefði verið eitt af ríkjum ESB? Það er einfalt að svara því; ís- lenskar útgerðir hefðu ekki haft nokkurn möguleika á því að stunda veiðar á makríl. Sökum þess að íslensk sjáv- arútvegsfyrirtæki hafa hverfandi aflareynslu í makríl frá fyrri árum hefði ESB engu úthlutað til okkar. Það eina sem við hefðum getað gert, verandi bundin af ákvörðunum yf- irvalda í Brussel sem aðilar að ESB, hefði verið að reyna að slást við önn- ur aðildarríki um að fá hlutdeild í sameiginlegum kvóta. Engar líkur eru á að slíkt hefði skilað neinum teljandi árangri og eins víst að hefðum við að endingu fengið einhverja úthlutun á makríl- kvóta hefðum við orðið að greiða fyr- ir hana með öðrum veiðiheimildum. Þannig ganga hrossakaupin yfirleitt fyrir sig í ESB. Íslenskar sjáv- arbyggðir, íslenskar útgerðir, sjó- menn og sveitarfélög hefðu orðið af miklum tekjum og líkast til hefðu margir ekki komist í gegnum þær þrengingar sem blöstu við í sum- arbyrjun ef ESB-stjórnvaldið hefði ráðið för. Það má því segja að það hafi ekki aðeins verið makríllinn og veiðarnar á honum sem björguðu því sem bjargað varð heldur hafi það fyrst og fremst verið að þakka því að Ísland er fullvalda ríki með eigin stjórn á sínum málum. Þetta ein- falda dæmi sýnir að það er að mörgu að hyggja þegar rætt er um hugs- anlega aðild Íslands að ESB og langt því frá allt sem sýnist í þeim efnum. Það er því ástæða til að hvetja til vandaðrar og yfirvegaðrar umræðu um þessi mál og líta á þau frá öllum hliðum í stað þess að ana áfram í óvissuna. Það getur skipt máli þegar á reynir. Um ESB og Ísland Björn Valur Gíslason skrifar um Evr- ópumál Björn Valur Gíslason » Það er því ástæða til að hvetja til vand- aðrar og yf- irvegaðrar um- ræðu um þessi mál... Höfundur er varaþingmaður VG. @

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.