Morgunblaðið - 28.09.2008, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2008 35
UMRÆÐAN
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða frábært sértilboð til Sikileyjar í beinu flugi 14.
október á yndislegum tíma. Hitinn er um 25-28 gráður og hentar bæði
til sólbaða og til skoðunar á þessari stórbrotnu eyju. Dvalið er á Hotel
Santa Lucia le Sabbie d’Oro, góðu þriggja stjörnu hóteli, rétt við hinn
einstaka bæ Cefalú, um 70 km. frá Palermo. Hótelið býður góðan
aðbúnað og fyrir gesti og er fullt fæði innifalið. Cefalú bærinn, sem er
einstök perla, var t.d. tökustaður hinnar vinsælu kvikmyndar Cinema
Paradiso sem margir þekkja. Sikiley er sannkölluð perla. 2.700 ára
menningarsaga, einstök náttúrufegurð, ótrúlegar fornminjar, fallegar
byggingar og söfn, ásamt áhugaverðri matarmenningu og blómlegu
mannlífi. Sikiley býður góðar baðstrendur og góða þjónustu við
ferðamanninn. Spennandi kynnisferðir í boði (háð lágmarksþátttöku
20 manns).
Einstakursumaraukií beinumorgunflugi!
• Stórkostlegir bæir
• Stórbrotin náttúrufegurð
• Einstök matarmenning
• Ótrúlegar fornminjar
• Baðstrendur
• Góð gisting
• Spennandi kynnisferðir
Frá aðeins kr. 98.900
Ótrúlegt sértilboð
– vikuferð með fullu fæði
Sikiley
14.-21. október
Gríptu tækifærið og tryggðu
þér frábært frí og sumarauka
á einstökum stað.
Bókaðu strax! www.heimsferdir.is
Frá kr. 98.900
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með fullu fæði í viku. Aukagjald fyrir einbýli kr. 29.000.
Hotel
Santa Lucia
- með fullu fæði
Aðeins 15
herbergi í boði!
Gott hótel við
stórkostlegan bæ
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
55
0
3
ÞAÐ hefur vart far-
ið fram hjá neinum að
mjög skiptar skoðanir
eru um það hvort
virkja eigi í neðri
hluta Þjórsár. And-
stæðingar virkjana
telja að virkj-
anaframkvæmdir
muni hafa verulega
slæm umhverfisáhrif
og það beri að vernda Þjórsá.
Óþarfi sé að framleiða rafmagn til
að framleiða meira ál.
Mér finnast þessi sjónarmið
eiga fullan rétt á sér og er alveg
viss um að þetta fólk talar af ein-
lægri sannfæringu um að þetta sé
best fyrir sveitarfélagið og þjóðina
alla.
En það getur verið að aðrir hafi
þá skoðun að það sé best fyrir
sveitarfélagið og þjóðina að nýta
þá orku sem er til staðar.
Ég skil ekki hvernig andstæð-
ingar virkjana geta haldið því
fram að þeir sem
eru fylgjandi virkj-
unum séu eingöngu
að fara eftir vilja
Landsvirkjunar.
Það er gefið í skyn
að þeir hafi enga
sjálfstæða skoðun.
Þetta hefur gengið
svo langt að reynt
var að fá úrskurð
um að sveitarstjórn
væri vanhæf þar
sem hún færi alfar-
ið eftir því sem
Landsvirkjun pantaði. Auðvitað
úrskurðaði samgönguráðuneytið
að sveitarstjórn væri hæf til að
fjalla um virkjanamál. Andstæð-
ingar virkjana ráðast á embætt-
ismenn og brigsla þeim um að
vinna eingöngu eftir því sem
Landsvirkjun segir.
Mér finnst það mjög alvar-
legur hlutur þegar mönnum er
brigslað um það að hafa ekki
sjálfstæðar skoðanir og taka
ákvarðanir eftir því hvað aðrir
segja þeim að gera.
Sveitarstjórn tók sér mjög
langan tíma til að fara yfir allar
athugasemdir sem bárust. Hér var
um mjög vönduð vinnubrögð að
ræða og farið ítarlega yfir það
hvernig svara ætti hverri at-
hugasemd. Á kjörtímabilinu hef ég
kynnst vinnubrögðum sveit-
arstjórnarmanna og veit að þeir
eru fullfærir um að meta hlutina
sjálfir og taka sjálfstæðar ákvarð-
anir.
Niðurstaða sveitarstjórnar var
einróma sú að gera ætti ráð fyrir
Holta- og Hvammsvirkjun á að-
alskipulagi sveitarfélagins. Það er
þeirra mat að þannig sé hags-
munum sveitarfélagsins best borg-
ið.
Þjórsársveitir –
Miklir möguleikar.
Það hefur verið gagnrýnt að öll
sú orka sem til verður á svæðinu
hjá okkur sé flutt í burtu til að
skapa atvinnu á öðrum stöðum í
landinu. Sveitarfélögin fjögur sem
eiga land að bökkum Þjórsár hafa
myndað með sér samstarfsvett-
vang til að vinna að því að laða að
fyrirtæki, þannig að orkan nýtist á
svæðinu til atvinnuuppbyggingar.
Sveitarfélögin eru: Ásahreppur,
Flóahreppur, Rangárþing ytra og
Skeiða- og Gnúpverjahreppur.
Sveitarstjórnir þessara sveitar-
félaga vilja horfa til þess að verði
frekari virkjanaframkvæmdir á
svæðinu staðreynd þá beri að
vinna að því að fá hingað orku-
frekan iðnað. Það á að nýta
orkuna við uppsprettuna.
Eigi að verða fjölgun íbúa og
uppgangur í atvinnulífinu þurfa
að koma til nýjungar við þann
blómlega landbúnað og ferða-
mannaþjónustu sem er á svæðinu.
Það er hlutverk sveitarstjórn-
armanna að horfa til framtíðar
og hafa skoðun á því hvernig
þeir vilja sjá þróunina.
Með tilkomu virkjana í neðri
hluta Þjórsár skapast gífurlegir
sóknarmöguleikar fyrir sveit-
arfélögin á svæðinu vilji menn
nýta sér þá. Það geta svo að
sjálfsögðu verið skiptar skoðanir
um það hvort það sé eftirsókn-
arvert. Er þetta bara ekki ágætt
eins og það er? Er eitthvað unn-
ið með því að fá nýjungar í at-
vinnulífinu á svæðið? Allt eru
þetta sjónarmið sem eiga rétt á
sér.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúp-
verjahrepps er einhuga um að
taka eigi virkjanir inná skipulag
sveitarfélagsins. Sveitarstjórnin
er einnig einhuga í því að unnið
verði að því að efla atvinnulífið
með því að virkja orkuna í
heimahéraði. Allt mun það stuðla
að fjölgun íbúa, betri sam-
göngum og bættri þjónustu á
flestum sviðum.
Stöðnun eða framkvæmdir og uppbygging
Sigurður Jónsson
skrifar um virkjanir
í neðri hluta Þjórsár
»Með tilkomu virkj-
ana í neðri hluta
Þjórsár skapast gíf-
urlegir sóknarmögu-
leikar fyrir sveitarfélög-
in á svæðinu vilji menn
nýta sér þá.
Sigurður Jónsson
Höfundur er sveitarstjóri
Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
SÍÐUSTU daga
hefur mátt sjá óvenju-
legan málflutning
tengdan hveralykt.
Vísindalegar mæl-
ingar eftirlitsaðila á
hveralyktinni sýna að
styrkur hennar er yfir
lyktarmörkum í höf-
uðborginni jafn-
aðarlega einn dag í
mánuði. Lykt-
armörkin eru einn
tuttugasti af viðmið-
unarmörkum Alþjóða-
heilbrigðisstofnunar-
innar. Mesti styrkur
sem mælst hefur er
helmingur viðmið-
unarmarkanna. Til að
hveralyktin hafi áhrif
á heilsu fólk þarf
styrkurinn að vera
hundrað sinnum þetta viðmið-
unargildi, segir heilbrigðiseftirlitið.
„Ef miðað er við leiðbeiningargildi
Alþjóðaheilbrigðisstofnunar (WHO)
hefur styrkur brennissteinsvetnis
ekki farið yfir heilsuverndarmörk í
Reykjavík,“ segir þetta sama eft-
irlit. Af þessu má ljóst vera að mál-
flutningur, eins og sá sem fram hef-
ur komið vegna ætlaðs skaða
hveralyktar á höfuðborgarsvæðinu,
á sér ekki vísindalegar stoðir.
Vísindamenn Náttúrufræðistofn-
unar vöktu athygli fjölmiðla á dög-
unum á gróðurskemmdum í grennd
Hellisheiðarvirkjunar. Eftir skyndi-
skoðun ályktuðu þeir að rekja
mætti skemmdirnar til starfsemi
virkjunarinnar. Vísindafólk Orku-
veitu Reykjavíkur brást skjótt við
og kannaði umfang mosaskemmda
á svæðinu. Í ljós kom að víða á
heiðalöndunum austan Reykjavíkur
og á Bláfjallasvæðinu, í allt að 25
kílómetra fjarlægð frá virkjuninni,
er að finna áþekkar skemmdir.
Nær útilokað er að þær megi rekja
til Hellisheiðarvirkjunar.
Nú hefur Orkuveita Reykjavíkur
fengið þrjá öfluga, utanaðkomandi
vísindamenn til að rannsaka málið
ofan í kjölinn og hafa þegar verið
tekin sýni af gróðrinum til frekari
rannsókna. Vonast er
til að rannsóknin leiði í
ljós orsakir gróð-
urskemmdanna, eða að
minnsta kosti hvort til-
gáta Náttúru-
fræðistofnunar fær
staðist. Hugsanlegar
breytingar á vinnslu-
ferli jarðgufuvirkjana
verður að byggja á vís-
indalegum nið-
urstöðum – ekki misvel
grunduðum tilgátum,
hvað þá upphrópunum.
Í samræmi við þetta
var bókun stjórnar
Orkuveitu Reykjavíkur
á föstudaginn þegar
hún lagði þunga
áherslu á að botn feng-
ist í málið og lýsti
stuðningi við aðgerðir
fyrirtækisins. Um-
hverfisráðherra tók í
sama streng um
helgina og kallaði eftir
rannsókn á vegum
Náttúrufræðistofn-
unar.
Góða frammistöðu Orkuveitu
Reykjavíkur í umhverfismálum má
rekja til nokkurra þátta. Þeirra á
meðal má nefna áherslu fyrirtæk-
isins á öflun og hagnýtingu vísinda-
legrar þekkingar og virk samskipti
við þau samfélög sem það starfar í.
Orkuveita Reykjavíkur er í góðum
tengslum við íbúa höfuðborg-
arsvæðisins og er það ljóst að þeim
fjölgar sem finnst hveralyktin önug.
Fyrirtækið hefur þegar fest kaup á
búnaði til tilrauna á að hreinsa
hveralyktina úr gufunni sem frá
Hellisheiðarvirkjun kemur. Hug-
myndin er að blanda hana vatninu
frá virkjuninni sem síðar rennur
niður í jarðhitageyminn, þaðan sem
það var upphaflega numið. Í mats-
skýrslum umhverfisáhrifa Hvera-
hlíðar- og Bitruvirkjana koma fram
þau áform að hveralykt frá þessum
virkjunum verður eytt. Eftir stend-
ur að hveralyktin verður áfram af
heita vatninu heima hjá okkur
nema við kjósum að losa okkur við
hana með því að setja upp millihit-
ara. En það er þá ekki vegna þess
að hún sé svo hættuleg.
Um hveralykt
Eiríkur Hjálm-
arsson skrifar um
hveralykt og gróð-
urskemmdir
Eiríkur Hjálmarson
»Nú hefur
Orkuveita
Reykjavíkur
fengið þrjá öfl-
uga, utanað-
komandi vís-
indamenn til að
rannsaka málið
ofan í kjölinn
Höfundur er upplýsingafulltrúi
Orkuveitu Reykjavíkur.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn