Morgunblaðið - 28.09.2008, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2008 43
✝ Mangor HarryMikkelsen fædd-
ist í Skagen í Dan-
mörku 11. nóv-
ember 1918. Hann
lést á Kirkjuhvoli,
dvalarheimili fyrir
aldraða á Hvols-
velli, 15. september
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Anna Josefine
Mikkelsen, fædd Ja-
cobsen, f. 15.4.
1887, lærður kjóla-
meistari, og Christian Emil Mikk-
elsen, f. 1.11. 1885, lærður hús-
gagnasmiður en starfaði sem
skipstjóri lengst af. Alsystur Man-
gors voru Astrid, f. 1907, og
Emma, f. 1911. Þær eru báðar
látnar.
Mangor kvæntist 11. október
1947 Valgerði Jóhannsdóttur frá
Miðkrika í Hvolhreppi, f. 7.4.
f. 21.4. 1953. Sonur hennar er
Kristján Emil Guðmundsson, tölv-
unarfræðingur, f. 17.12. 1975,
kvæntur Lilju Kristjánsdóttur, f.
11.3. 1970. Þeirra dóttir er Ásdís
Vala, f. 14.6. 2007. Fyrir átti Lilja
tvö börn, Jóhönnu og Lárus.
Mangor ólst upp í foreldra-
húsum og naut venjubundinnar
skólagöngu þess tíma. Hann nam
mjólkurfræði í Danmörku en flutti
til Íslands 1938. Mangor starfaði
sem ostameistari við Mjólkurbú
Flóamanna allan sinn starfsferil
og var sérhæfður í gerð Camem-
bert-osta. Hann tók þátt í fé-
lagsstarfi Mjólkurfræðingafélags
Íslands, var einn af stofnendum
þess 1946, sat í stjórn og var gjald-
keri um árabil. Skákmaður var
hann góður og varð m.a. fé-
lagsmeistari Taflfélags Selfoss.
Um tíma var hann mjög virkur frí-
merkjasafnari og átti gott safn frí-
merkja. Valgerður og Mangor
bjuggu allan sinn hjúskap á Sel-
fossi, fyrst á Bjargi og síðar í Smá-
ratúni 10. Síðustu þrjú æviárin var
hann vistmaður á Dvalarheimilinu
Kirkjuhvoli á Hvolsvelli.
Mangor var jarðsunginn frá Sel-
fosskirkju 23. september.
1918, d. 2005. Börn
þeirra eru: 1) Val-
gerður Anna kenn-
ari, f. 18.2. 1948.
Börn hennar og Stef-
áns Haraldssonar
eru Arnar Þór hér-
aðsdómslögmaður, f.
29.10. 1979, og Ása
Sólveig hjúkr-
unarfræðingur, f.
14.3. 1983. 2) Krist-
ján, bóndi, f.
11.2.1950, sambýlis-
kona Guðbjörg María
Árnadóttir, f. 8.11. 1954. Dóttir
þeirra er Lilja Björk kennari og
bóndi, f. 17.9. 1974, sambýlis-
maður Sigurjón Grétarsson húsa-
smíðameistari og bóndi, f. 14.8.
1972. Synir þeirra eru Kristjón
Sindri, f. 30.5. 1998, Björn Ástvar,
f. 10.11. 2002, og Bergur Már, f.
28.7. 2004. 3) Ása Nanna, við-
skiptafræðingur og áfangastjóri,
Elsku pabbi.
Enginn slítur þau bönd,
sem hann er bundinn heimahögum
sínum.
Móðir þín
fylgir þér á götu, er þú leggur af
stað út í heiminn,
en þorpið fer með þér alla leið.
Frá þeirri stundu,
er þú stóðst við móðurkné og sagðir:
Ég er svona stór,
ert þú samningi bundinn.
Þú stendur alla ævi síðan fyrir augliti
heimsins.
Lítill kútur, sem teygir hönd yfir
höfuð sér og heyrir
blíðmæli brosandi móður:
Ertu svona stór?
(Jón úr Vör)
Ungur fórstu frá fæðingarbæ þín-
um, Skagen í Danmörku, til að
vinna í Mjólkurbúi Flóamanna á
Selfossi. Við vitum að það var erfitt
fyrir móður þína, föður og systur.
Þú ætlaðir samt ekki að vera lengi
en örlögin höguðu því þannig, enda
fannstu ástina á Íslandi og þá varð
ekki aftur snúið. Við trúum því að
nú sértu búinn að hitta aftur
mömmu, foreldra þína og systur,
ættingja og aðra burtfarna vini.
Takk fyrir allt.
Þínar dætur
Ása og Valgerður.
Mangor Harry
Mikkelsen
✝ Jón GunnarGíslason fædd-
ist í Brimnesi í Ár-
skógshreppi 22.
maí 1939. Hann
lést á heimili sínu,
Hvidøre 9 í Vamd-
rup í Danmörku,
22. september síð-
astliðinn eftir lang-
varandi veikindi.
Foreldrar Jóns
Gunnars voru Gísli
Sölvason og Jóna
Hansdóttir.
Jón Gunnar
kvæntist árið 1961 Ólafíu Dag-
björtu Halldórsdóttur. For-
eldrar Ólafíu voru Halldór Lár-
usson og Jósefína Ágústsdóttir
Blöndal. Jón Gunnar og Ólafía
áttu fjögur börn, Láru Jósefínu,
Gísla Rúnar, Sverri og Örn Ólaf.
Jón Gunnar lauk prófi frá
Samvinnuskólanum á Bifröst ár-
ið 1962. Hann lauk bóklegum
hluta endurskoðendaprófs frá
Háskóla Íslands ár-
ið 1974. Jón Gunn-
ar var margverð-
launaður
íþróttamaður og
voru 800 metrar
hans aðalgrein,
hann var sterkast-
ur í 1.500 metrum
en ekki var keppt í
þeirri grein. Hann
varð stigahæsti
frjálsíþróttamaður
Íslands á lands-
mótinu á Þingvöll-
um árið 1957. Jón
Gunnar starfaði fyrir kaup-
félögin og Samvinnu-
hreyfinguna á Skagaströnd og
Hrísey, hann var bóndi á jörð-
inni Vallholti í Árskógshreppi í
Eyjafirði. Leiðin lá suður til
Reykjavíkur til náms við Há-
skóla Íslands. Hann starfaði
lengst af á eigin vegum.
Útför Jóns Gunnars var gerð í
Vamdrup 26. september.
Ég gleymi ekki þegar við pabbi
vorum við heyskap á Farmal Kubb
traktor, ég fékk að sitja í fanginu á
honum allavega á heimleið, þegar
sláttugreiðan var komin upp, enda
var sláttugreiðan ekki mjög varin.
Oftar en ekki þurfti að heimsækja
hann Þorstein Marinósson sem rak
verskæði í Árskógshreppi til að láta
gera við greiðuna. Þegar heyið var
tekið saman kom mamma með kakó
og nesti handa okkur. Á meðan tími
gafst var pabbi alltaf duglegur að
fylgja okkur systkinunum í leik og
starfi. Hann reyndi ekki að stjórna
of mikið í okkur systkinunum en tók
á hlutunum ef á þurfti að halda, það
sem pabbi tók sér fyrir hendur gerði
hann af alúð og einstakri vandvirkni.
Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi
að starfa með pabba við bókhald og
endurskoðun á Akureyri, þar sem
vandvirkni var í heiðri höfð, einnig
tókum við þátt í tölvubyltingunni
sem þá var að hefjast og átti eftir að
marka líf mitt um ókomin ár.
Okkar leiðir skildu of fljótt á þess-
um vettvangi sem öðrum þar sem
hann fluttist til Reykjavíkur og síðan
búferlum til Danmerkur.
Hann var mín stoð og stytta í veik-
indum dóttur minnar Bryndísar
Óskar Gísladóttur, enda mikið um
ferðir til Reykjavíkur sem bitnuðu á
starfi mínu á þeim tíma. Jón afi var
mikið fyrir öll sín 9 afabörn, sökum
búsetu var því miður ekki mikið um
sunnudagsgraut, en þegar færi gafst
þá gafst vel. Ég sagði nú eitt sinn að
pabbi og mamma hefðu notað garð-
inn sinn sem þau ræktuðu í Dan-
mörku, af þvílíkri alúð og myndug-
leik, að hann hafi komið í stað barna
og barnabarna.
Ef ég ætti að lýsa pabba með einu
orði myndi ég nota orðið vandaður,
hann var vandaður maður.
Við kveðjum pabba og afa eftir
erfið og langvarandi veikindi.
Aldrei framar óttast þú
eldraun dags né kalda nótt:
kvatt þú hefur heimsins bú,
heimför gert og laun þín sótt.
(3. Simlir konungur
William Shakespeare.)
Gísli Rúnar Jónsson og börn.
Jón Gunnar Gíslason
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
STEFÁN EINAR STEFÁNSSON
rafverktaki,
Breiðabliki 3,
Neskaupstað,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
mánudaginn 22. september.
Útför hans fer fram frá Norðfjarðarkirkju þriðjudaginn
30. september kl. 14.00.
Ása Stefánsdóttir,
Bergþóra Stefánsdóttir, Elmar Halldórsson,
Guðný Stefánsdóttir,
Þuríður Stefánsdóttir, Björn Kristjánsson,
Aldís Stefánsdóttir, Rúnar Gunnarsson,
Þóra Stefanía Stefánsdóttir, Karl Gunnar Eggertsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi,
ÞORLÁKUR SÆVAR HALLDÓRSSON
barnalæknir,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtu-
daginn 2. október kl. 13.00.
Sigrún Erla Skúladóttir,
Dóra Soffía Þorláksdóttir,
Linda Sif Þorláksdóttir
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir, amma og systir okkar,
MARGRÉT MUCCIO,
Hjallabraut 3,
Hafnarfirði,
lést þriðjudaginn 23. september.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 30. september kl. 15.00.
Rúnar Gregory Muccio,
Metta Margrét Muccio
og systkini.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞÓRU RANNVEIGAR SIGURÐARDÓTTUR,
Marklandi 2,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki kvenna-
deildar Landspítalans, heimahlynningar og
líknardeildar í Kópavogi.
Sigrún Þórarinsdóttir, Ólafur Þór Kjartansson,
Sigurður Þórarinsson,
Helga Sigríður Þórarinsdóttir,
Edda Ólafsdóttir, Rúnar Helgason,
Þóra Ólafsdóttir, Vignir Óðinsson,
Óli Valur Ólafsson,
Ásbjörn Þórarinn Sigurðsson,
Helga Þóra Siggeirsdóttir,
Viktoría og Adam Fannar Vignisbörn.
✝
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐLAUG GÍSLADÓTTIR
frá Hvalsnesi,
Borgarholtsbraut 73,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Hvalsneskirkju laugardaginn
4. október kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Gjafasjóð Hvalsneskirkju,
Sparisjóðnum í Sandgerði sími: 423 8190.
Tómas Grétar Ólason,
Margrét Tómasdóttir, Matthías Guðm. Pétursson,
Anna Guðrún Tómasdóttir, Matthías Kjartansson,
Guðlaug Þóra Tómasdóttir, Daníel Þór Ólason,
Magnea Tómasdóttir, Pétur Gauti Valgeirsson,
ömmubörn og langömmubarn.
✝
Innilegt þakklæti til þeirra fjölmörgu sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát, minningar-
athöfn og útför elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og bróður,
JÓNS SNÆS SIGURJÓNSSONAR
frá Snæhvammi í Breiðdal.
Guð blessi ykkur öll.
Hlíf Þ. Jónsdóttir,
Sigurjón Jónsson, Helga Ágústína Lúðvíksdóttir,
Guðný Elín Jónsdóttir, Reynir Loftsson,
Ingibjörg Guðlaug, Jón Garðar Steingrímsson,
Ólavía Sigurjónsdóttir, Alejandro Arias,
Jón Viðar Reynisson,
Hlíf Ágústa Reynisdóttir,
Jóna Snædís Reynisdóttir,
Solveig Sigurjónsdóttir.