Skinfaxi - 01.11.1933, Page 1
Skinfaxi IV.—VI. 1933.
Fræðslumál sveitanna.
Ekki verður um það deilt,
að framfarir síðustu ára liafa
verið allstórstigar og fært oss
nokkuð í áttina til þeirra
þjóða, sem ekkert spara til að
færa sér i nyt aukna tækni
og þekkingu. Þessa gætir þó
einkum i verklegum efnum,
og þótt við séum að vísu
skammt komnir, þá er fram-
faraliugurinn vakinn og nokk-
uð ahnennur skilningur á því.
að þýðingarlaust er að sporna
á móti þeim menningarhreyf-
ingum, sem byggjast á staðreyndum eða athugun og
reynslu kynslóðanna. Um þetla hera og vitni fram-
kvæmdir siðustu ára, bæði til sjávar og sveita. Fisk-
veiðar vorar eru reknar með nýtízkusniði. í landbún-
aði liefir verið hafizt handa um ræktun, byggingar og
notkun véla, vegir og simi lagðir um landið, brýr
byggðar, skólar reistir.
Tilraunir hafa og verið gerðar með ýmsar nýjar
greinar í húnaði og sannað, að þær eiga hér framtíð
fyrir höndum og hafa mikla þýðingu, vegna aukinnar
atvinnu, fjölbreytni i framleiðslu og nýting náttúru-
gæða. Má þar til nefna ræktun ýmissa matjurta, ali-
fuglarækt, fiskiklak og loðdýrarækt. Þá má og nefna