Skinfaxi - 01.11.1933, Blaðsíða 16
96
SKINFAXI
hverju leyti að standast nauðsynlegan kostnað við
í'ræðsluna, svo sem lil bókakaupa o. fl. þessháttar, sem
miðaði að þvi að skapa sem bezt skilyrði fyrir fræðslu
og félagslíf liéraðsbúa. Þess vegna er stofnun fræðslu-
sjóða í sambandi við starfs- og skólabeimili nauðsynja-
mál.
Tillaga þessi er komin frá Birni Guðnasyni á Stóra-
Sandfelli i Skriðdal. Reit liann um það merkilega grein
í Menntamál 1928, er liann nefndi „Myndun fræðslu-
sjóða í sveitum“. í þessari grein rekur bann nauðsyn
þess að stofna heimavistarskóla i svcitum, skapa þar
skilyrði fyrir góða fræðslu. Hann segir: „Skólarnir
þurfa að vera fyrirmyndarskólar, sem vinna jafnt að
andlegum og líkamlegum þroska æskunnar, i sem nán-
ustu sambandi við beimilin.“ Hann gerir sér von um
mikinn árangur. Sjálfur liefir liann gengizt fyrir stofn-
un fræðslusjóðs í sinni sveit, og hvetur aðra til að gera
það og vinna að framgangi þessara mála. Annar bóndi,
Jón H. Fjalldal á Melgraseyri við Isafjarðardjúp, stofn-
aði síðastl. ár fræðslusjóð fyrir sveit sína til minningar
um konu siua látna. Ábugi og bjartsýni þessara tveggja
bænda og vmissa annarra, er eg befi átt tal við, gefa
bendingu um, að áhugi og skilningur sé mikill á þess-
um málum og því þess að vænta, að elcki verði langt
að bíða þess, að hafizt verði handa um framgang þeirra.
Allir skólar vilja vinna að menntun og þroska nem-
enda sinna. En það vill oft brenna við, að nemandinn
er slitinn um of úr sambandi við bið raunverulega
líf og starl'. Því þarf að gefa meiri gaum, bverjar eru
þarfir einstaklinga og þjóðarinnar og sníða fræðsluna
eftir |)vi — þroska félagshyggju, starfhæfni og slarfs-
gleði, fá einstaklingana til að setja metnað sinn í að
mynda fyrirmvndarheimili og lifa framkvæmdasömu
athafnalifi. Á livern bátt skólarnir geti bezt unnið að
þessu aðalhlutverki sinu er og verður að vera rann-
sóknarefni á hverjum tima og bverjum stað. Það á