Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1933, Side 37

Skinfaxi - 01.11.1933, Side 37
SKINFAXI 117 Unglingar og börn ern berskjölduð fyrir aldarfarinu. Erfðasyndin, ríkjandi lestir, leggst eins og martröð á bverja kynslóð, áður en henni er vaxinn fiskur um lirygg. Hamingja manns fer mjög eftir því, livar þeir fæðast og alast upp. Umhverfið elur upp manninn. Kennarastéttin á að ráða bót á þvi böli, sem spillt- ur aldartiáttur er. Hún á að kenna sannara og gleggra mat á verðmætum. Hún ó að leiðrétta andleg mæli- tæki og Nogaráböld fólksins. Hún á að beina kröft- um liins komandi fólks að vandamálum samtíðarinn- ar, láta það vaxa og berjast í samræmi við gróandi þarfir þjóðlífsins. Og ungmennafélagar eru sjálfsagð- ir stuðningsmenn kennarastéttarinnar að þessu leyti. Tilgangur bvorra tveggja er í böfuðdráttum binn sami, að leggja hlessun beilbrigði og vaxlar yfir nýgræðing þjóðarinnar. Kennarastéttin liefir yfirstigið ýmsa örðugleika, sem á vegi hennar voru. Hún hefir sligið það stóra spor, að lá forréttindi lil kennsluslarfa. Það eru dýrmætar aðstöðubætur fyrir liana. Við það verður hún styrk- ari og meiri kraftur i þeim siðareglum, sem luin skap- ar sér. Það er erfiðara l'yrir skilningslausa aðila, að drepa niður kröfur hennar. Forréttindin eru svo dýr- mæl aðstöðubót, að þau margfalda þýðingu stéttar- viljans. En það er enginn sigur i menningarbaráttu, að ná undir sig forréttindum. Það er cinungis aðstöðubót, auknar vonir um sigur. Og þau forréttindí, sem ekki slyðjast við sanna yfirburði, eru siðleysi. Það verður kennarastéttin að liafa hugfast, að ef bún vanrækir þær siðferðiskröfur, sem eru fagrar og lieilbrigðar, vcrða forréttindi hennar að siðleysi. Og ef hún gerir ráð fyrir, að ungmennafélagar verði liðsmenn liennar, verður hún að styðja þá í menningarbaráttu þeirra. U. M. F. t. er bindindisfélag. Þess er krafizt af hverj- um ungmennafélaga, að liann neyti ekki áfengis. Fé-

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.