Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1944, Síða 14

Skinfaxi - 01.12.1944, Síða 14
86 SKINFAXI af þunga í niðurlagsorð beggja vísuhelminga: glöggv- inga, þjóðlygi. Þarna eru sex orð, sem vísan er aðallega gerð utan um, meginlmgsun hennar snýst um inntak þeirra. Og þessi sex orð voru alls eklci mál liversdags- manna á timum Egils heldur eru þau mjög sérkenni- legur hluti af Agli sjálfum, runnin úr andslæðufullri skapgerð Iians. Ekkert þessara orða er kunnugt fyrir hans daga né tíðkað mjög af alþýðu eftir það. Orðið þagmælskur vann sér vinsældir löngu síðar. Ekkert er líldegra en jiessi sex orð séu nýyrði gerð af Agli, en þau eru svo samkvæm eðli tungunnar, að liver skýr maður skilur þau undir eins og hann heyrir. Egill er fljótur að yrkja um höfðinglynda menn eins og Arinbjörn, en um féglöggvar smásálir, glöggvinga, glepst honum mál. Hann talar opinskátt um konung- leg afrek, en þjóðlygina vill hann þegja steindauða. Orðgnótt Egils hefur lifað í tungunni lil þessa dags. Enn er meira að segja óbreyttur fyrirlitningarhreim- urinn, sem hann gaf orðinu þjóðlygi. Og enn kann framtið að eiga eftir að nota sér kynlegar andstæður Egils í orðinu þagmælskur, sem getur þýtt þann, er með þögn sinni verður mælskur. Á þann hátt einan vildi Egill heita mælsku sinni gegn þjóðlygi. Orustukvæði Egils, svo sem Höfuðlausn, og annarra fornkappa mótuðu tunguna á margan liátt, og mynd- auðgi þeirra varð ótæmándi auðlegð fyrir seinni tíðar skáld. Hetjuhugur þeirra kvæða varð það ekki siður. Til dæmis skal einungis tekinn helmingur snjallrar visu eftir Þorbjörn Ilrómundarson á Fögruhrekku, þegar Hrafn kom þar á glugga og boðaði feigð þeirra feðga. Þorhjörn kvað, áður en bardaginn hófst, um þennan váveiflega fyrirboða: Hlakkar hagli stokkinn hræs er kemr að sævi (inóðr krefr morgunhráðar) már valkastar báru.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.