Skinfaxi - 01.12.1944, Page 49
SKINFAXI
121
B. Hopp-snúnings aðferðin. (2. mynd).
Mismunur þessarar aðferðar frá stig-snúningnum er eingöngu
fólginn í fœrslu líkamans í atrennunni. Samanburður á mynd-
um nr. 1 og nr. 2 sýna mismuninn gléggst. Iíastarinn tekur
sér stöðu. llœgri fóturinn er þétt við kasthringinn, en sá vinstri
25 til 35 cm. framar, en báðir mynda rétt horn við kaststefn-
una. Sá er notar þessa aðferð verður að standa í fæturnar nær
hvor öðrum, þvi að maður er i betri hoppaðstöðu þannig en
þegar gleiðara er staðið. I framhaldi af seinustu undirbúnings-
sveiflunni hoppar kastarinn snögglega af báðum fótum og tekur
í loftinu heilaii snúning til vinstri, lendir á báða fætur. Lengd
stökksins er venjulega 90—105 cm. Fjarlægðin milli fótanna að
loknu stökkinu (í kaststöðunni) er 80—90 cm. Kastið er framið
úr þeirri stöðu, sem kastarinn tekúr sér við lúkningu hopp-
snúningsins. („Gormboginn“ kastfótur, hliðhallur bolur og
kastarmur seilist langt aftur).
Úr þessari stöðu beitir kastarinn allri orku, og þunga og eyk-
ur á þann hraða, sem náðst hefur í hopp-snúningnum, með kröft-
ugri framvindu hægri mjaðmar, réttingu kastfótar bolvindu til
vinstri, framsveiflu kastarmsins o. s .frv.
Kringíukastarar, sem nota þessa aðferð mega ekki treysta
of mikið á hraðann, sem fæst við hopp-snúninginn, jiví sé
of mikið í hann lagt, getur það orðið á kostnað fótspyrnunnar.
Viðskilnaðurinn er i seilingarfjarlægð út af eða framan við
kastöxlina. Stefna kasthæðarinnar um 30°.
Hömlunin við beitingu þessarar aðferðar verður að vera
enn nákvæmari en i hinni aðferðinni. Hennar þarf frekar með,
en í stig-aðferðinni. Fótskiptingin má alls ekki fara fram
fyrr en kringlunni hefur verið spyrnt út í loftið. Ef fótskipt-
ingin fer of snemma fram þá glatast dýrmætur kraftur frá
hægra fæti.
Héraðsmótin 1944.
Flest ungmennasamböndin héldu héraðsmót á s.l. sUmri. Skip-
uðu íþróttirnar þar jafnan öndvegi. Verður hér gefið stutt
yfirlit um þau. *
Héraðsmót U.M.S. Ivjalarnessþings
var háð á Sólvallarhölckum í Mosfellssveit 10. júlí. Formaður
sambandsins, Gísli Andrésson Hálsi, setti mótið. Leikstjóri var
Stefán Runólfsson Reykjavík. Lúðrasveitin Svanur lék. Kepp-
endur voru frá öllum félögum sambandsins, en jiau eru jiessi:
9