Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1944, Síða 57

Skinfaxi - 01.12.1944, Síða 57
SIvINFAXI 129 Stangarstökk: Guttormur Sigurbjörnsson (Samvirkjafél. Eiðaþinghár) 3,00 m. Hástökk: Björn Magnússon (Umf. Hróar) 1,70 m. Þrístökk: Ólafur Ólafsson (Huginn, Seyðisfirði) 13,29 m. -— sem er ísl. drengjamet. Kringlukast: Þorvarður Árnason (H., Sf.) 39,85 m. Hann vann einnig kúluvarpið (12,30 m.). Spjótkast: Tómas Árnason (II., Sf.) 51,37 m. 100 m. bringusund: Sigþór Lárusson (II., Sf.) 1:29,4 mín. 50 m. sund, frjáls aðferð: Ragnar Magnússon (Umf. Hróar) 30,1 sek. Umf. Borgarfjarðar og Umf. Austri á Eskifirði kepptu í knattspyrnu. Borgfirðingar unnu með 7:2. íþróttafélagið Huginn á Seyðisfirðið vann mótið með 42Vz stigi. Umf. Hróar hlaut 28)4 stig og Umf. Borgarfjarðar 13 stig. Af einstaklingum hlutu flest stig: Tómas Árnason og Ólafur Ólafsson, 14 stig hvor. Næstir urðu Þorvafður Árnason með 12 stig og Guttormur V. Þormar, Björn Magnússon og Björn Andrésson með 10 stig hver. Skarphéðinsmótið var haldið að Þjórsártúni 2. júlí. Sigurður Greipsson, formað- ur Héraðssambandsins Skarphéðinn, setti mótið með ræðu og stjórnaði því. Ræðu flutti sr. Árelíus Níelsson, Eyrarbakka, og lúðrasveitin Svanur lék. Keppendur í mótinu voru 41 frá 12 ungmennafélögum. Orslit urðU: 100 m. hlaup: Ólafur Jónsson, Umf. Skeiðamanna, 13,2 sek. Hann vann einnig langstökkið (6,37 m.). 800 m. hlaup: Þórður Þorgeirsson, Umf. Vaka, 2:1,8 mín. Hástökk: Árni Guðmundsson, Umf. Samhyggð, 1,61 m. Þrístökk: Marteinn Friðriksson, Umf. Selfoss, 12,81 m. Kúluvarp: Sigfús Sigurðsson, Umf. Selfoss, 12,26 m. Hann vann einnig kringlukastið (31,42 m.) og spjótkastið (43 m.). Glíma: Þátttakendur voru 8. Hlutskarpastur varð Einar Ingimundarson frá Umf. Vöku í Villingaholtshreppi. Lagði hann alla keppinauta sina og hlaut glímuskjöld Skarphéðins. Næslur varð Andrés Sighvatsson frá Umf. Samhyggð og lilaut hann einnig 1. verðlaun í fegurðarglímu. Umf. Selfoss vann mótið með 25 stigum og hlaut i þriðja sinn Skarphéðins skjöldinn fyrir frjálsar íþróttir. Umf. Skeiða- manna hlaut 8 stig og Umf. Hvöt í Grímsnesi 7 stig.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.