Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1944, Page 66

Skinfaxi - 01.12.1944, Page 66
138 SKINFAXI Félagsmál. Heillaóskir færeyskra ungmennafélaga. Hann 17. júní fékk U.M.F.Í. eftirfarandi kveðju: Á þessum mesta hátíðisdegi í sögu íslenzku þjóðar- innar sendum við bróðurþjóðinni hjartans kveðjur okkar með innilegustu óskum um hamingjuríka fram- tíð. ísland lifi. Fyrir hönd Ungmennafélags Færeyja Pall Patursson, Kirkjubæ. Stjórn U.M.F.Í. sendi frændþjóðinni þakkir fyrir. kærkomn- ar heillaóskir. Fundur sambandsráðs U.M.F.f. Sambandsráð Ungmennafélags íslands, þ. e. sambandsstjórn og héraðsstjórar, héldu fund í Reykjavík dagana 24. og 25. júní. Þar voru þessar ályktanir gerðar: 1. Þrastalundur. Sambandsstjórn falið að athuga möguleika á endurbyggingu Þrastalundar. Skal bún láta gera uppdrátt, kostnaðaráætlun og athuga leiðir til fjársöfnunar mcðal ung- mennafélaga um allt land. 2. Örnefnasöfnun. Samþykkt að ráða Kristján Eldjárn cand- mag. leiðbeinanda ungmennafélaganna um örnefnasöfnun. 3. Forsetaheitið. Sambandsráðið leit svo á, að forsetabeitið eigi eingöngu að vera fyrir forseta íslands og alþingisfor- setana og skorar á öll félög og félagasambönd er notað hafa þetta heiti á forstöðumönnum sínum að fella það niður. 4. íþróttamálin. Sambandsráðið mótmælir, að gefnu tilefni og með tilvísun til brautryðjendastarfs Umf. og starfsemi þeirra fyrr og síðar fyrir íþróttamálin, hverri tilraun til að skerða þann rétt sambandsins, sem viðurkenndur er með íþróttalögunum. 5. Landsmótið. Samþykkt að landsmót U.M.F.Í. í íþróttum verði haldið að Laugum i S.-Þingeyjarsýslu eða öðrum hent- ugum stað norðanlands vorið 1940. Kosin var nefnd til þess að taka ákvarðanir um iþróttagreinar og fyrirkomulag móts- ins fyrir næsta baust. íþróttafulltrúi ríkisins starfar með nefndinni. 6. Skinfaxi. Skorað var á öll ungmennafélög að vinna ötul- lega að útbreiðslu Skinfaxa, tímarits U.M.F.Í., en breytingar á sölufyrirkomulagi hans hafa staðið yfir undanfarið, eins og Umf. er kunnugt.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.