Skinfaxi - 01.11.1947, Page 4
68
SKINFAXI
C*iríl?ur (ý. (Cirihióon :
NOREG§FÖR VORIÐ 1947.
Á síðasta sambandsþingi U.M.F.I., sem lialdið var
að Laugum í fyrra sumar, var samþykkt að fara
liópferð til Noregs vorið 1947 og heimsækja norska
ungmennafélaga.
Stjórn U.M.F.l. tók þegar í fyrra haust að undir-
búa þetta mál og var leitað til Noregs Ungdomslag
um móttökur.
Yið nánari athugun kom i ljós, að greiðast myndi
um móttökur af hendi ungmennafélaga vestan fjalls
í Noregi og var skipuð nefnd af U.M.F.Í. til þess að
undirbúa ferð til Bergen og nágrennis hennar. Lífið
og sálin i nefnd þessari var formaður Ungmenna-
félags Reykjavikur Stefán Runólfsson og er til fram-
kvæmda kom var Lárus Salómonsson glímukennari
honum öruggur samstarfsmaður. Niðurstaðan varð,
að förin skyldi farin á vegum U.M.F.R. og U.M.F.I. og
yrði glímusýningaför, þar sem þátttakendur yrðu
flestir úr U.M.F.R., en einnig úr héraðssamböndum
utan af landi. Einnig skyldu vera með í förinni nokkr-
ir ungmennafélagsleiðtogar, er færu til þess að kynna
sér norsku félögin. Fararstjóri var ráðinn sá, er þess-
ar línur ritar. Höfðu ungmennafélögin i Bergen boð-
ið honum til Noregs i kynningarferð.
af Mæri, er ég nú flyt kveðjur þaðan. Og vissi ein-
hver um ætt sína við Þórhadd, er lionum borin sér-
stök kveðja.
En annars flyt ég kveðju öllum, sem eru í Ung-
mennafélagi Islands.
Verið velkomnir til Noregs!