Skinfaxi - 01.11.1947, Blaðsíða 6
70
SKINFAXI
annað aðalgistihús borgarinnar liöfðn þeir brennt
rétt í því að þeir gáfust uiip.
Við héldum frá Stavanger með slrandferðaskipi
innan skerja til Bergen. Sú ferð var skemmtileg, og
þótti okkur merkilegt að sjá trjágróðurinn í snar-
bröttum klettum jarðvegslausum að sjá.
Til Bergen var komið
síðdegis 3. júní. Lentum
við við „Þýzkubryggju".
[Norðmenn liafa reyndar
breytt nafninu og kalla
þenna hluta bæjarins að-
eins „Bryggen“. Þessu
veldur óbeit Norðmanna á
öllu, sem þýzkt er.] Mjög
sér merki stríðsins við
höfnina í Bergen og eru
hafnarmannvirkin á stór'u
svæði í rústum. Af bygg-
ingum, sem iiafa eyði-
lagzt, er einkum að nefna
Hákonarhöllina, sem tóft-
in ein stendur af. Á hafn-
arbakkanum var mætt-
ur til þess að taka á
móti okkur formaðurinn í fimleikasambandi Berg-
en (Bergens Gymnaslikk og Turnkrets) Svein Jo-
hannessen. Er hann prentari að iðn, en hefur verið
félagi i einu lielzta íþróttafélagi borgarinnar frá því
árið 1921. Hefur hann verið formaður þess og liafl
önnur ábyrgðarstörf með liöndum í félaginu. 1 stjórn
fimleikasambands borgarinnar hefur hann verið frá
árinu 1936 og formaður þess frá 1945. Jóhannessen
átti mikinn þátt í hinum góðu viðtökum, sem við
fengum. Einnig var þarna mættur Knut Fadnes banka-
ritari, sem er ritari í iþró'ttasambandi ungmennafé-
Svein Joliannessen, fom. i
Bcrgens Gymnastikk og Turn-
krets.