Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1947, Side 12

Skinfaxi - 01.11.1947, Side 12
76 SKINFAXI læi't að skilja, að þeir væru innanborðs i einum og sama báti. Til marks um það væri, live Norðmenn skipuðu sér óskiptir um konunginn. Fyrir styrjöld- ina hefðu kommúnistar ekkert viljað með liann liafa, en nú væru þeir allra manna ákafastir um fjárfram- lög til konungs og liirðar hans. Haugsöen rakti fyrir mér trúmálaskoðanir sínar og viðhorf sitt til menningar- og þá einkum þjóðernis- mála. Virtist mér liann vera á svipuðu stigi um þessa hluti og Magnús heitinn Helgason kennara- skólastjóri. Haugsöen er fæddur 22. marz 1867 á ey einni norður af Bergen. 18 ára að aldri missti hann annað augað af slysförum. Missti kjarkinn. Fór þó nokkru síðar í lýðháskóla og fann þar sjálfan sig. Námsferli hans lauk með kandidatsprófi í guðfræði frá Oslóarháskóla árið 1895. Var hann síðan mennta- skólakennari i 4 ár. Frá 1899—1903 var liann prest- ur verkamanna, sem voru að leggja Bergensbrautina. Var hann þau árin ásamt konu sinni i kofum þeim, er byggðir voru yfir verkamennina eftir þvi, sem brautinni miðaði áfram upp yfir fjöllin. Var hann stundum liætt kominn á ferðum sínum m. a. vegna snjóflóða. Löngu síðar segist hann hafa hitt aldur- hnigna verkamenn, er minntust þessara samvista með ánægju. Næstu árin frá 1903—190? var svo Iiaug- söen prestur meðal sjómanna. Um það hil og eftir að Norðmenn skildu við Svía blésu um landið hlýir vindar þjóðræknisstefnunnar. Ein hugmyndin var, að prestar yrðu fengnir, er eingöngu prédikuðu á lands- máli og skyldu þeir ferðast um sérstaklega á vegum norskra ungmennafélaga. Eftir margar atrennur var látið undan með þetta og varð Haugsöen annar þess- ara ferða- eða æskulýðspresta. Var liann siðan á nær sífelldu ferðalagi um Noreg þveran og endilang- an öll árin, frá 1907 til 1938. Var hann þá i heiðurs- skyni gerður að dómprófasti í Niðarósi og var i því

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.