Skinfaxi - 01.11.1947, Page 26
90
SKINFAXI
Thor Myldebust flutti
kveðju frá Noregs Ung-
domslag. Gunnaf Aksels-
son sýndi 17. maí kvikmynd
frá Reykjavík, sem vakti
mikla lirifningu. Daníel
Einarsson útskýrði og
sýndi kvikmynd af Hvann-
eyrarmóti U.M.F.I. 1943. —
Þjóðdansar voru sýndir og
söngvari söng einsöng. —
Dans var stiginn nokkra
hríð og var að lokum sung-
ið á norsku og íslenzku.
Samkoma þessi fór hið
prýðilegasta fram.
Sunnudaginn 8. júni var
okkur svo boðið af ung-
um nágrenni borgarinnar.
Var sú ferð hin ánægjulegasta. Um kvöldið var glímu-
sýning í Ytre-Arna og var liún afbragðs vel sótt,
(sumir stóðu úti og fengu að liorfa inn um glugg-
ana!) og tókst mæta vel. Það skyggði á, að fána-
vörðurinn okkar, Guttormur Þormar, gat eklci verið
með þarna. Lá hann í mislingum lieima í gistihús-
inu í Bergen. En bati lians varð skjótur, svo að liann
gat fylgzt með okkur heim og notið ferðarinnar að
mestu. Þarna í Arna höfðu bæjarbúar upp á að
bjóða grófan malarvöll og liéldu bann þing mikið
fyrir glímuna, en Lárusi og liði bans fannst lítt um
og varð sýningin í .kvikmyndahúsi bæjarins.
Næsta dag var íþróttahátíð Bergensbúa. Var okk-
ur boðin þar þátttaka. Gengu glímumennirnir í broddi
2000 manna fylkingar um götur borgarinnar og voru
ákaft hylltir af áhorfendum. Á aðalíþróttavangi borg-
arinnar sýndu þeir svo glimu fyrir nokkur þúsund
Lárus Salóinonsson
flytur drápu.
mennafélögum í Bergen