Skinfaxi - 01.11.1947, Blaðsíða 32
96
SKINFAXl
við allir hinir til sarnans og
loks ber að þakka þeim Þor-
steini Einarssyni íþróttafull-
trúa fyrir afskipti af þessari
för og Danícl Ágústínussyni,
ritara U.M.F.I., sem sýndi á-
liuga fyrir ferðinni.
Hópurinn okkar var ekki
stór. Það liefði og mátt finna
„fínna“ fólk til þess að fara
til fundar við Norðmenn,
frændur okkar.
í veizlu rikisstjórnarinn-
ar að Hótel Borg í sumar
við upphaf Snorrahátiðarinnar var meira mannval
Islendinga saman komið. Hver „forstjórinn“ öðrum
meiri. Þar þótti „fínt“ að vera.
En einu sinni var þessi hugmynd, að reisa Snorra
Sturlusyni minnismerki í Reykholti aðeins hugsjón
í brjósti nokkurra fátækra ungmennafélaga úti í
Noregi. Fárra og fátækra norskra ungmennafélaga,
og ég hef heimildarmann að því, að bæta megi við:
og íslenzkra.
Þegar ég i sumar bar ritara Snorranefndar A.
Skásheim, sem oft hefur verið nefndur hér á undan,
kveðju frá okkar gamla og góða félaga, Guðmundi
Jónssyni frá Mosdal, svaraði Skásheim: „Já, hann
þarf ég að hitta! Þetta er ekki allt okkur að þakka.
Snorramyndastyttan er líka Guðmundi Mosdal að
þakka og mörgum góðum ungmennafélögum, sem
komu út til Noregs og störfuðu þar með okluir að
því máli og öðrum.“
Ungmennafélagar! Ég liefi þá trú, að ferð okkar
til Noregs í vor og koma Norðmanna til okkar i
sumar verði okkur til vakningar og eflingar að vinna
íslandi allt!
Stefán Runólfsson,
form. U.M.F.R.