Skinfaxi - 01.11.1947, Side 35
SKINFAXI
99
meiri afskipti af byggingu samkomuliúsa en önnur
félög, eru þau fyrst og fremst ásökuð fyrir það, sem
miður fer i þessum málum, hvort sem það er með
réttu eða röngu. Umf. verða því að láta þessi mál
til sín taka. Hér er oft um sáralitinn kostnað að
ræða. Mest reynir á smekkvísi og liirðusemi, jafn-
framt nokkurri sjálfboðavinnu ungmennafélaganna.
Mörg húsin eru verðmæt og hafa orðið félögunum
dýr, en nokkur fegrun kostar sáralítið fé, svo bygg-
ingarnar verði Umf. samboðnar.
Ungmennafélag Islands skorar því á öll Umf., sem
samkomuhús eiga, eitt sér eða með öðrum, að taka
þessi mál nú þegar föstum tökum og umbæta allt,
sem vanhirt kann að vera. I því sambandi gæti ver-
ið gagnlegt að svara eftirgreindum spurningum:
1. Er girðing umhverfis samkomuhúsið?
2. Er svæðið innan girðingarinnar skipulagt og
plöntur gróðursettar þar?
3. Er vegur að húsinu og gangstéttir meðfram því?
4. Er hreinlegt umhverfis liúsið og engir óviðkom-
andi lilutir þar á víð og dreif?
5. Er húsið vel málað og múrliúðað?
6. Er fánastöng á því eða við það, og er lil íslenzk-
ur fáni i húsinu?
7. Eru allar rúður heilar?
8. Er húsið málað hið innra og veggir hreinir og
ókrotaðir
9. Eru gólfin þvegin eftir hverja notkun?
10. Er húsbúnaði vel við haldið?
11. Eru hreinlætistæki hússins — handlaugar og sal-
erni -— í góðu lagi?
12. Eru fullnægjandi hitunartæki í húsinu?
Hverl ])að Umf., sem getur svarað þessuni spurn-
ingum öllum játandi, á myndarlegt samkomuhús —
samboðið störfum þess og ætlunarverki. Að þvi
7*