Skinfaxi - 01.11.1947, Side 36
100
SKINFAXI
Landsmótið 1949.
Tillögur um íþróttagreinar sendar Umf. til umsagnar.
SambandsráSsfundurinn, sem haldinn var í Reykja-
vík 4. og 5. olctóber 1947, fól Ungmenna- og íþrótta-
sambandi Austurlands undirbúning að fyrirhuguðu
landsmóti að Eiðum vorið 1949 og gerði drög að fyr-
irkomulagi mótsins, einkum hvaða íþróttagreinum
skyldi keppt í. Voru teknar upp allar íþróttagreinar
frá Laugamótinu óbreyttar, nema lengstu sundin voru
stytt verulega, með því að keppa verður í köldu vatni.
Iþróttakennarar og forráðamenn héráðssambanda
og félaga eru sérstaklega beðnir að kynna sér tillög-
ur þessar. Hafi þeir Ijreytingatillögur fram að bera,
þurfa þær að sendast sambandsstjórn í síðasta lagi
1. september 1948. Þær.eru ennfremur birtar hér, svo
að Umf. geti liaft þær til hliðsjónar við íþróttastarf
sitt í vetur.
skyldu öll Umf. keppa. Og forusta Umf. í þessum
málum gæti skapað með þjóðinni þá umgengnishætti
og snyrtimennsku við samkomustaði, sem liana skort-
ir nú mjög. Stuðningur ríkisins við byggingu sam-
komuhúsa, á að hvetja Umf. til þess að skipa þess-
um málum með myndarbrag.
Ungmennafélög! Athugið ÖU, hvernig málin standa
hjá gkkur. Gerið strax í vetur ráðstafanir til end-
urbóta, eftir því sem föng eru á. Dragið ekki leng-
ur en til næsta sumars að Ijúka verkinu. Hér er að-
kallandi menningarmál fyrir ykkur að rækja. Mál,
sem þið megið ekki bregðast. Munið, að samkomu-
húsin eru vé ykkar — helgidómur — sem öllum ber
að keppast við að fegra og prýða.