Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1947, Page 39

Skinfaxi - 01.11.1947, Page 39
SKINFAXI 103 Stjórn Ungmennafélags Islands beinir þeim tilmæl- um til héraðssambandanna að ræða undirbúning mótsins á þingum sínum, og atliuga á annan bátt, bver þátttaka þeirra getur orðið í mótinu. Takmarkið er, að öll liéraðssamböndin sendi einhverja keppendur eða iþróttaflokka til mótsins. Þetta getur orðið glæsi- legasta landsmótið, ef öll samböndin leggja sig frairt og befja undirbúning strax i vetur. Örnefnamálið. Ungmennafélögin eru livött til þess að halda örnefnaskrán- ingu sinni áfram og hraða verkinu eftir föngum. Leiðarvisir um skráninguna, sem birtist í Skinfaxa 1945, fœst sérprentaður hjá U.M.F.Í. Kristján Eldjárn magister veitir og alla aðstoð, sem óskað er eftir. Honum ber og að senda úrlausnirnar, þegar þær eru tilbúnar. fþróttakennslan. Hún verður með svipuðum liætti i vetur og áður. Verður nú farið að undirbúa landsinótið á Austurlandi vorið 1949 og því munu Umf. yfirleitt kappkosta að cfla íþróttastarfsemi sina, eins og frekast getur orðið á þessum vetri. Leikritasafnið. Rannveig Þorsteinsdóttir stud. jur, Mjóuhlíð 10, Reykjavik, sér um leikritasafn U.M.F.Í., eins og áður. Skulu Umf., sem óska eftir smærri leikritum snúa sér til hennar með óskir sínar. Hún hefur skrifað öllum Umf. og sent þeim skrá yfir þau leikrit, sem til eru í safninu, með nauðsynlegustu upp- lýsingum um þau. Minningarsjóður Aðalsteins Sigmundssonar. Hann nemur nú orðið um kr. 25 þús. Þessar gjafir liafa sjóðnum borizt nýiega: Frá N. N. kr. 500.00. — I. J. — 100.00. Enn er lieitið á Umf. og aðra að minnast sjóðsins og efla hann sem mest. Stjórn U.M.F.Í. tekur á móti fjárframlöguin i liann.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.