Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1947, Page 65

Skinfaxi - 01.11.1947, Page 65
SKINFAXI 129 til að vekja með þjóðinni þann vorhug, sem knúði fram þann sterka undirstraum, sem ætíð liaí'ði vakað i þjóðarsálinni, en aðeins skorti al'l til að hrjóta af sér höndin. Þessir menn berjast ekki hinni kaldrænu og einhæfu baráttu sérhyggju- mannsins, þeir skynja þarfir samfélagsins og vinna að þvi, En sagan sýnir oss ekki alla þá, sem þann veg unnu, og voru vökumenn yfir þeim verðmætum, sem þjóðin má sizt án vera. Það er ástin til landsins, umhyggjan i'yrir hag lieild- arinnar og trúin á frelsið, sem eitt al' æðstu verðmætum lifs- ins, sem knýr þetta fólk til starfa. Og þegar vér hyllum þessar lietjur dagsins, sem vér litum í Jjósi sögunnar, þá má engum sjást yfir það, að sá nafnlausi fjöldi, sem sagan hvergi getur, hefur ef til vill spunnið snarasta þáttinn í þróunar- sögu þjjóðarinnar og á að skipa verðugan sess i hugarlieimi hverrar kynslóðar. „Og sleimlaus elja hins einfalda manns 1 annríki fábreyttra daga, hinn græðandi varmi i handtökum hans jafn heilnæmur afdal sem skaga. Iiið þögula lífsstríð án frægðar og fjár i forsælu réttar og laga. Ilin dauðtrygga varðstaða ár eftir ár er ókunna hermannsins saga.“ Þetta fólk liefir lifað og starfað um aldir. Það lief- ur þolað liungur, harðrétti og hverskyns áþján, en barist þó og haldið uppi lífi kynslóðanna. Það hvilir nú undir köldum og nafnlausum gröfum. Hin fábreyttu störf varpa ekki yfir líf þess neinum ævintýraljóma, en þau eru unnin af trú- mennsku og alúð. Kaldur veruleikinn hefur safnað þvi sjáld- ur i auga og sigg í lófa, ósigur þess er engin söguleg nýj- ung, sem greypt er á spjöldin. En upp af dufti þess vaxa rósir sem gleðja augu þeirrar kynslóðar, sem litið veit um tilveru þess. Þessi sögulegu verk mega ekki gleymast á þess- um frelsis og fagnaðardegi, þau verða að vera ljós þeirri æsku, sem landið á að erfa, þvi hennar hlutverk er það, að byggja þann veg upp hið unga íslenzka lýðveldi, að slík ör- lög sem þau er sjö alda sorti l)jó íslenzkri alþýðu, biði engr- ar íslenzkrar kynslóðar um ókomna framtið. „Mundu, íslenzk æska, enn er margt að vinna, stærstu störfin bíða styrkra lianda þinna. 9

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.