Skinfaxi - 01.11.1947, Side 73
SKINFAXI
137
sitt að Heimalandi með 220 AV ljósavél. Lék RáSskonu Bakka-
brœðra.
Umf. Hekla Rangárvöllum. Félagsmenn lial'a unnið mikið við
samkomuskála félagsins að Strönd. Bókasafn félagsins telur
518 bindi.
Umf. Ingólfur í Holtum lét mæla landið umhverfis samkomu-
lnis sitt og verður gerður af þvi skiplagsuppdráttur. Lauga-
land, en svo lieitir samkomuliús félagsins, kostar orðið um
260 þús. kr. og er hið myndarlegasta mannvirki. Lauk við
cndurbætur á sundlaug sinni.
Umf. Ásahrepps í Holtum byggir myndarlegt félagsheimili
að Ási og var mikil sjálfboðavinna unnin við það og einnig
í trjágarði félagsins. Stofnuð var yngri deild innan félagsins.
Umf. Samhygð í Gaulverjabæjarhreppi vinnur að byggingu
félagsheimilis með hreppsféláginu. Stærð 230 m2. Áætlaður
kostnaður kr. 250 þús.
Umf. Gnúpverja í Gnúpverjahreppi lék Imyndunarveikina
og Gleiðgosann. Héll margar skemmtisamkomur. Gróðursetti
mikið af birkiplöntum í skógræktarstöð félagsins að Stóra-
Núpi.
Umf. Hrunamanna, Hrunamannahreppi lék Leynimel 13 o.
fl. stór og kunn leikrit, eins og áður. Þetta félag stendur
einna fremst að leikmennt meðál Uml'. Á sundlaug að Flúð-
um í smíðum. Á trjáræktárstöð.
Umf. Hvöt í Grímsnesi vinnur að íþróttavelli við samkomu-
hús sitt að Minni-Borg. Gefur út fjölritað blað.
Málfundastarfsemi félágánna virðist mjög misjöfn. Sum-
um finnst ef tit vill, að hún skipti ekki svo miklu máli, en
slikt er regin misskilningur; Fjörug málfundastarfsemi ein-
ltennir gróandi félagslíf, og húri getur orðið mörgtim gagn-
legur skóli. Onnur og fjölbreyttari félagsstarfsemi er og lik-
leg til þess að vaxa upp af henni. Áríðandi er því, að Umf.
leggi alúð við málfundastarfsemi sína.
Nauðsynlegt er að hafa samráð við iþróttafulltrúa ríkisins
um allan undirbúning varðandi verklegar framkvæmdir, svo
skilyrði íþóttalaganna og hinnar nýju töggjafar um félags-
heimili sé fullnægt. Af öllum öðrum ástæðum er þetla fé-
lögunum einnig gagnlegt, enda virðast þau hafa fullan skiln-
ing á því. Nú þarf að sækja fram og efla störf og áhrif Umf.
sem mest.
D. Á.