Skinfaxi - 01.11.1947, Page 75
SKINFAXi
139
Milli stranda bindur bönd
bræðra andans kraftur,
hylli landans vinavönd
vitjar handan aftur.“
Að aftan er þetta skorið í kertastjakann:
Þjóðræknisfélag fslendinga í Vesturheimi.
Til minningar um íslandsferð prófessors Richards Beck 1944.
Frá U.M.F.Í.
Hugheilar árnaðaróskir og einlægar þakkir íslenzkra ung-
mennafélaga fylgja þessari gjöf til Þjóðræknisfélagsins.
Ungmennafélagar!
Vinnið ötullega að aukinni útbeiðslu Skinfaxa. Hver >nýr
skilvís kaupandi eykur vöxt hans og áhrif. Árg. kostar kr. 10.00.
Gjalddagi er 1. október. Stjórnir ungmennafélaganna sjá um
innheimtuna. Þið, sein ekki hafið greitt Skinfaxa fyrir árið
1947 eða eldri árganga, gerið strax skil til stjórnar viðkomandi
Umf. Verum samtaka um eflingu Skinfaxa.
Sendið Skinfaxa greinar um starfsemi ungmennafélaganna
og áhugamál. I.átið myndir fylgja með.
Sambandsráðsfundur U.M.F.Í. 1947.
Sambandsráðsfundur Ungmennafélags Islands var haldinn í
Reykjavík, dagana 4. og 5. október 1947. Fundinn sóttu 9
héraðsstjórar viðsvegar af landinu og stjórn Ungmennafélags
íslands. Auk þess sátu hann: Þorsteinn Einarsson íþróttafull-
trúi, Stefán Júlíusson ritstjóri Skinfaxa og Stefán Runólfsson,
formaður Umf. Reykjavikur.
Fundurinn skipulagði undirbúning að næsta landsmóti' sbr.
grein i þessu liefti, og gerði ennfremur þessar samþykktir:
Bindindismál. „Fundurinn leggur áherzlu á mikilvægi þeirr-
ar starfsemi ungmennafélaganna að lialda uppi heilbrigðu
skemmtanalífi með menningarbrag og hvetur þau til að gæta
þess vel að slá hvergi undan i því efni.
Jafnframt krefst fundurinn þess, að ríkisvaldið sjai um
það, að félögin eigi aðgang að nógu mörgum ákveðnum mönn-
um til að gæta velsæmis á almennum skemmtunum á alþjóðar-
kostnað.“
„Fundurinn skorar á Alþingi og ríkisstjórn að skajia fordæmi
um velsæmi í áfengismálum m. a. á þann hátt að afnema
veitingar áfengis í opinbermn veizlum. Jafnframt lieitir hann