Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1947, Side 78

Skinfaxi - 01.11.1947, Side 78
142 SKINFAXI iö 1949. Þá telur fundurinn sjálfsagt að taka boði færeyskra ungmennafélaga, að senda mann til þeirra, til kynningar og aukinnar samvinnu." Mikill áhugi ríkti á fundinum fyrir auknum áhrifum og við- gangi ungmennafélaganna. Fundurinn var haldinn i Breið- firðingabúð. Hann liófst kl. 5 siðdegis, þann 4. okt. en lauk kl. 6 siðdegis þann 5. okt. Fyrir hádegi þann dag störfuðu tvær nefndir, sem undirbjuggu samþykktir fundarins: Landsmóts- nefnd og starfsmálanefnd. Fundinum stjórnaði sr. Eiríkur J. Eiríksson, sambandsstjóri U.M.F.Í. Umræðnr urðu miklar um málefni fundarins. Sambandsráðsfundur þessi, sem og hinir fyrri, var liinn ánægjulegasti og áreiðanlega mjög gagnlegur fyrir starfsemi U.M.F.f. Skortir það einungis á, að allir liéraðsstjórarnir 16, geti komið því við að sækja fundina. D. Á. B æ k u r. Athöfn og uppeldi. Hlaðbúð liefur gefið út þessa bók, eftir dr. Matthias Jónas- son uppeldisfræðing. Margir munu lcannast við bók þessa og efni hennar af háskólafyrirlestrum höfundar, sem mikla at- hygli vöktu. Atliöfn og uppeldi er skipt í 15 kafla, sem heita: Hvað getum við gert fyrir börnin okkar? Sálræn þróun barnsins. Barnabrek og skaplcstir. Ósannsögli barna. Einþykkni og þrjóska. Vilji og viðfangsefni. Hlýðni og frjálsræði. Æskan og trúarbrögðin. Uppeldi og hegning. Leikir og störf. Um svefn- þörf barna og tómstundir foreldra. Samvistir barna. Sam- vinnumöguleikar heimilis og skóla. Þegar kynhvötin vaknar. Uppeldi og stjórnmál. Af heiti kaflanna má nokkuð ráða, hvert efni bókarinnar er. Hún er fyrst og fremst alþýðlegt fræðirit um eitt mesta vandamál allra foreldra, samin á mörgum árum af mikilli vand- virkni og eftir fjölþættar og ítarlegar rannsóknir liöfundar. Aðalniðurstöður lians varðandi uppeldið eru þessar: „List uppeldisins er í þvi fólgin, að sjá barninu fyrir hæfilegum viðfangsefnum og fá það til að snúast þannig við þeim, sem þau væru þess e;gin.“ Mikill fengur er að þessari merku l)ók og þyrfti hún að vera í eigu allra, sem uppeldi annast. D. Á.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.