Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1947, Page 80

Skinfaxi - 01.11.1947, Page 80
144 SKINFAXl Laugum á landsmóti U.M.F.Í. eftir Þórarin Sveinsson. — Ritstjórinn skrifar um ýmis efni. Mörg kvæði eru í ritinu. Þá eru í þvi greinar og molar um margs konar menningarstörf á Austurlandi. Snæfell er að sjálfsögSu fyrst og fremst fjórð- ungsrit, og íþróttirnar skipa þar fyrirrúmið, en ritið á eigi að síður erindi til annarra en Austfirðinga, og þá ekki sízt ungmennafélaga. Snæfell er prentað í Prentsmiðju Austurlands á Seyðisfirði. Ritstjóri er Ármann Halldórsson, kennari á Eiðum. Skinfaxi heitir á alla ungmennafélaga, og þá sérstaklega formenn liéraðssambanda og einstakra félaga, að senda ritinu ýmsar fréttir af starfinu. Þurfa það að sjálfsögðu ekki að vcra langar ritgerðir. Skal t. d. á það bent, að jafnan eiga ýmis félög út um allt land merk afmæli. Væri þá tilvalið að minnast þeirra með eins eða tveggja blaðsíðna grein í Skin- faxa, geta þar hélztu forvígismanna, benda á beztu störfin, og þá e. t. v. það, sem miður fór, ef af þvi má nokkuð læra. Sérstaklega eru myndir úr ferðalögum ungmennafé- laga eða frá störfum þeirra mjög kærkomnar ritinu. Á eng- inn ungmennafélagi góða mynd af gróðursetningu trjáplantna? Allt þess háttar getur orðið til þess, að Skinfaxi verði enn betri tengiliður milli liinna einstölui féiaga víðsvegar á land- inu, en það er ósk okkar allra, að svo megi vcrða. Ritstj. Útgefandi: Sambandsstjórn Ungmennafélaga íslands. Pósthólf 406 — Reykjavík Ritstjóri: Stefán Júlíusson, Brekkugötu 22, Hafnarfirði. FÉLAGSPRENTSMIÐJAN H.F.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.