Skinfaxi - 01.04.1949, Blaðsíða 2
2
SKINFAXI
Gerði lianii blaðið að skeleggu vopni i höndum sér,
enda voru þá mikil umbrot í þjóðiífinu, og hann sjálfur
haráttumaður, eins og síðar kom fram. Var liann rit-
stjóri um sjö ára skeið. Árið 1918 tók Jón Kjartans-
son við ritstjórninni, en liann hætli árið öftir, og varð
Ólafur Kjartansson þá ritstjóri. Helgi Valtýsson kom
enn að ritinu árið 1921. Næstu tvö árin er sambands-
stjórnin talin ritstjórn, en enginn sérstakur ritstjóri.
Þá voru í sambandsstjórninni þeir Guðmundur Dav-
íðsson, Guðmundur Jónsson og Magnús Stefánsson.
Árið 1923 varð Gunnlaugur Björnsson ritstjóri Skin-
faxa, en liann var þá starfsmaður sambandsins. í hans
ritstjórnartíð, eða árið 1925 breytti Skinfaxi um form
og var gerður að tímariti eins og nú er, en þó kom
hann fyrst út ársfjórðungslega. í september árið 192S
fluttist Skin'faxi til Vestfjarða og var gefinn þar út
um tveggja ára skeið. Ritstjóri var Björn Guðmunds-
son kennari á Núpi, en til aðstoðar honum var Guð-
mundur frá Mosdal. Árið 1930 tók Aðalsteinn Sig-
mundsson við ritinu, og var liann ritstjóri i 10 ár. Þá
tók Eiríkur J. Eiríksson við ritstjórninni, en vegna
fjarlægðar hans sá ritari U.M.F.Í., Daníel Ágústínus-
son, oft um prentnn ritsins. Núverandi ritstjóri tók
við í ársbyrjun 1945.
Skinfaxi hefur alltaf verið prentaður í Félagsprent-
smiðjunni, nema tvö fyrstu árin var hann ýmist prent-
aður í Hafnarfirði eða i prentsmiðju D. Östlunds í
Rvk, og þau tæpu tvii ár, sem hann var gefinn út fyr-
ir vestan, var hann prentaður í Prentsmiðju Veslur-
lands á Isafirði.
III.
Skinfaxi hefur jafnan haft tvenns konar hlutverki
að gegna. Annars vegar hefur hann verið tengiliður
milli hinna dreifðu ungmennafélaga víðs vegar á
landinu. Hann liefur flutt fréttir af félagsstarfinu, birt