Skinfaxi - 01.04.1949, Page 9
SKINFAXI
9
lands; Suomen Nuorison Liitto forystuna. Er ])a5
samband áþekkt finnsk-sænska ungmennasamband-
inn, dönsku ungmennafélögunum og Noregs Ungdoms-
iag, og Fræðslusambandi verkamanna i Finnlandi,
finnska hlutanum og Alþýðufræðslusambandi sænska
hlutans og hliðstæðum stofnunum á binum Norður-
löndunum.
Starfsemin er ekki sízt fólgin í leshringastarfsemi
sem er nokkuð styrkt af ríkinu með því að það styrk-
ir félögin til bókakaupa. Fyrirætlanir eru uppi um
frekari stuðning. Það er sem sé unnið að sérstökum
lögum um námshringa og samkvæmt þeim er þeim
tryggður viss ríkisstyrkur svipað og lýðháskólar og
fræðslustofnanir verkamanna fá stuðning ríkisins.
Það má marka bve víðtæk þessi starfsemi er af
því, að nú eftir stríðið sækja nokkrar þúsundir les-
liringa víðs vegar í landinu um fyrrnefndan bóka-
styrk til ríkisins. En vegna þess, að hann hefur hing-
ar til verið lítill, eru margir leshringar, sem ekki
sækja um þenna styrk. — En þessi starfsemi er aðeins
ein grein slarfsins. Innan Ungmennasambands Finn-
Þjóðdansar eru mikill þáttur i starfi finnsku Umf.